Innsýn - 01.09.1977, Síða 6

Innsýn - 01.09.1977, Síða 6
c LÍKLEGA Eftir D.A.Welch Ég hélt á matarbakkanum mínum og gekk varlega á milli borðanna á yfirfullu veitingahúsinu og fann loks autt borð og settist þar. Ég tók diskana með matnum á af bakkanum, settist niður og breiddi úr servíettunni, hneigði höfuðið og þakkaði Guði fyrir matinn og bað um blessun hans. Ég var einlæglega þakklátur fyrir þennan mat. Aðeins tveimur dögum áður hafði ég séð tvo menn betla fyrir mat sínum. Þegar ég opnaði augun aftiar tók ég eftir heiðursmanni sem sat við annað borð skammt frá mínu og horfði hann ákaft og stöðugt á mig. Hann var snyrtilega klæddur og virtist vera verslunar- maður. Maðurinn hélt áfram að fylgjast með mér en þó á kurteislegan hátt. Þar sem ég er yfirleitt fljótur að borða varð ég ekkert oondrandi þótt ég lyki við að borða minn mat áður en hann lauk sínum. Ég stóð á fætur til að borga fyrir matinn hjá gjaldkeranum en þurfti að fara framhjá borði verslunarmannsins. Þegar ég fór fram hjá borðinu hans mættust augu okkar. Hann sagði, "góðan daginn, herra minn. fékkstu gott að borða í dag?" "já, þetta var mjög góður matur,"svaraði ég."En hvað með þig,ert þú einnig ánægð- ur með málsverðinn þinn í dag?" Hann samsinnti því. Það var eitthvað við þennan náunga, augu hans og framkomu,sem kom mér til að nema staðar alveg. Ég studdi mig við auðan stól hjá honum og við skiptumst á nokkrum setningum. Þegar ég bjóst til að fara frá honum aftur leit hann ákaft í augu mín eins og hann vildi skyggnast þar inn fyrir. Hann spurði hvort ég ætti fjölskyldu. "já, ég á fjölskyldu," svaraði ég. Augu hans eins og bentu á tóman stólinn og mér skildist að mér væri

x

Innsýn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.