Innsýn - 01.09.1977, Síða 13
10
lings Lúsifer. Hann hafði
ímyndað sér að hann hefði
á lævísan hátt blekkt Föður-
inn og Soninn. Þeir hefðu
getað refsað honum strax og
sparað englunum alla þessa
erfiðleika. Þeir hefðu get-
að varpað honum út af himni,
eða jafnvel útrýmt honim.
En hvað hefði gerst ef þeir
hefðu gert það? Þeir vissu
hvað þá hefði gerst. Þá
hefðu hinir englarnir verið
hlýðnir aðeins vegna óttans.
í hjörtum sínum hefðu þeir
þá alltaf hugleitt hvort
Lúsifer hefði ekki haft á
réttu að standa, og hvort
hann hefði fengið sanngjarna
meðhöndlun. Það var því
ekki' um neina aðra leið að
ræða. Guð hafði gefið
þeim tækifæri til þess að
þeir sjálfir gengju úr skug
skugga um hvað LÚsifer væri
í rauninni að gera.
En hvað átti þá næst að
gera? Þar sem Faðirinn og
Sonurinn voru sammála um
það að englarnir hefðu nú
haft nóg tækifæri til þess
að gera upp huga sinn, ákvá
ákváðu Þeir að nú væri einn-
ig kominn tími til þess að
binda endi á allt leyni-
makk. Þeir áformuðu að láta
hvern engil fyrir sig ákveða
opinberlega afstöðu sína, s
svo að allir aðrir vissu 'fey
hvar hann stæði. Guð gat
ekki telft á þá hættu að
hafa einn einasta uppreisnar-
engil í sínum röðimi til að
byrja erfiðleika upp á nýtt
síðar meir.
Það var því kallað á
sendiboðaenglana. Þeim var
sagt að boða allan engla-
skarann til fundar fyrir
framan hásæti hins hæsta.
Þegar hér var komið í
sögunni gripu börnin tvö
frammí fyrir frænku sinni og
sögðu, "En frænka, hvers
vegna vildu englarnir hlusta
á Lúsifer í staðinn fyrir
Guð?" Magga og Benni spurðu
bæði sömu spurningarinnar
næstum því samtímis. "Hvers
vegna?" svaraði frænka. "Að
sumu leyti vegna þess að
Lúsifer gat gert nokkuð sem
Guð gat ekki gert."
Börnin gátu .varla trúað
eigin eyrum. "Meinarðu
virkilega að LÚsifer hafi
getað gert eitthvað sem
jafnvel Guð gat ekki gert?"
Frænka var alvarleg á
svipinn "Já, ég meina það
virkilega. LÚsifer gat log-
ið og smjaðrað og blekkt.
Guð getur ekkert af þessu".
"Ó" sögðu börnin lágum
hljóðum. "Okkur datt þetta
ekki í hug."
"Lúsifer hagnýtti sér
fleiri atriði. Allt frá
því að englarnir voru skap-
aðir hafði Guð gert LÚsifer