Innsýn - 01.09.1977, Qupperneq 14
14
að foringja þeirra. Ef þeir
hefðu neitað að meðtaka hann
sem foringja sinn, hefði það
verið sama og að óhlýðnast
Guði. Svo að allt sitt líf
fram að þessum tima höfðu
englarnir þóknast Guði
með því að hlusta á LÚsifer.
Og þar sem hann var tiln
nefndur leiðtogi af Guði
höfðu þeir fullkomið traust
á honum. í fyrstu höfðu
þeir engan möguleika á því
að gera sér grein fyrir
því að einhver breyting
hefði átt sér stað, vegna
þess að LÚsifer var nógu
slægur til þess að breiða
yfir raunverulegan tilgang
sinn. Það tók englana því
langan tíma að komast að
raun lom staðreyndir og það
var einmitt ástæðan fyrir
því að Guð var svo þolinmóð-
ur og refsaði engum, ekki
einu sinni LÚsifer.
Þó getirðu ei farið um borg og bý
með boðskap um Frelsarann kæra,
sýn kærleika hans þínu umhverfi í
og allt, sem af honum má læra.
„Gamli"
Ekki er
allt sem
sýnist
Sjöunda-dags aðventisti
gekk eftir aðalgötu borgar-
innar (erlendis) dag einn
þegar hann sá safnaðarprest-
inn sinn koma út um dyr
kvikmyndahússins. Hann varð
í fyrstu mjög miður sín að
verða vitni að þessu, en tók
síðan þá skynsamlegu ákvörð-
un að ræða málið við safnað-
arformanninn. Þeir tveir
fóru síðan saman á fund
prestsins til að kanna málið
nánar, og þá kom staðreyndin
í ljós.' Presturinn var að
undirbúa opinberar samkomur
sem hann áformaði að halda
á næstiinni og hafði því farið
inn í kvikmyndahúsið til að
ræða við forstjóra þess um
hugsanlega leigu hússins á
meðan á samkomunum stæði.
- Ef við .fylgjum ráðum
Krists, munum við ekki
"dæma eftir ásýndum," heldur
dæma "réttlátan dóm." (JÓh.
7,24).