Innsýn - 01.09.1977, Side 16

Innsýn - 01.09.1977, Side 16
Og þar sem við þutum í gegnum háloftin í Jumbo- þotunni í 35.000 feta hæð, gáfum við flugfreyjunni Biblíufræðslu í öllum helstu kenningunum. Hinar flugfreyjurnar komu til hennar til að hvetja hana til að njóta þess, sem hún hafði fundið, enda myndu þær sjá um skylduverk hennar. Skömmu fyrir lend- ingu spurði hún: "Má ég koma með ykkur í kirkju einhvern tíma?" - Gamli "jurtarétturinn" hafði aft- ur gert sitt gagn' Það vekur alltaf undr- un mína að sjá safnaðarfólk feimið og afsakandi þegar að því kemur að biðja um jurtamat. Það hefur ekkert annað veitt mér eins mörg og dásamleg tækifæri til vitnisburðar. JÚ, ef til vill ávaxtarétturinn.' Þegar ég geri mína pöntun á vikulegum fundum Kiwanis- klúbbsins, verða oftast nær einhverjir við borðið mitt til að spyrja: "Hvern þekkir þú í eldhúsinu?" Sxðan kalla þeir á þjón- ustustúlkuna og segja: "í næstu viku viljum við fá þetta sama líka." Með nýjum og útbreiddum áhuga fólks á heilsusamlegu líferni, erum við þó ekki lengur einangruð eins og yið áður töldiam okkur vera. Eitt sinn var ég viðstaddur veislu í aðalsal Waldorf Astoria hótelsins í New York. Næstur mér sat aðal- blaðafulltrúi kirkjudeildar baptista á alþjóðavettvangi, ásamt eiginkonu sinni. HÚn leit á sérpantaðan réttinn minn og spurði síðan: "Ert þú jurtaæta?" Þegar ég svaraði því játandi, sagði hún, að þótt þau hjónin væru það ekki ennþá, væru þau um það bil að verða það. "Ég baka sjálf öll okk- ar heilhveitibrauð," hélt hún áfram. Og ég velti því fyrir mér hve margar aðventista húsfreyjur sjái fjölskyldum sínum fyrir góðu heilhveitibrauði. "Og við látum sykur- karið aldrei á borðið nema þegar við höfum gesti," bætti hún við geislandi af áhuga. Mér varð hugsað til þeirrar sykurgræðgi, sem sumir aðventistar syna. Það er í rauninni runn- inn upp nýr tími hvað heil- brigðisáhuga snertir. Ný- leg könnun leiddi í ljós þá staðreynd, að fólk þráir góða heilsu meira en nokkuð annað í heiminum. Og það óttast heilsubrest meira en nokkuð annað. Hvílíkt tæki- færi fyrir hóp manna, sem segist hafa stórkostlegasta

x

Innsýn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.