Innsýn - 01.09.1977, Side 17
17
heilbrigðisboðskap sem
mönnum hefur nokkurn tíma
verið trúað fyrir.
Og hann er vissulega
sá stórkostlegasti.
Skýrsliir gefa til kynna,
að Sjöunda dags aðventistar
lifi tæplega sex árum leng-
ur en aðrir borgarar almennt.
Það munar um styttri tímaT
Vinur minn, sem er læknir,
fullyrðir, að ef við virki-
lega lifðum í samræmi við
það sem við prédikum, mynd-
um við eflaust njóta tíu
ára umfram aðra. Getum við
virkilega ímyndað okkur, að
við komumst hjá því að vera
gerð ábyrg fyrir því, að
inniloka hjá okkur sjálfum
svo dýrmætar, lífgefandi
upplýsingar frá almenningi?
Athyglisverður þáttur
þessa fyrirbæris er viðhorf
unga fólksins í dag. Fyrir
fáeinum árum var næstum því
útilokað að ræða við það um
heilbrigðismál. Þeim fannst
heilbrigði tilheyra æskunni.
NÚ hefur það skipt um skoð-
un, og er í fararbroddi í
leitinni að betri heilsu.
Ef þakka ber einhverjum
einum hópi fyrir þessa nýju
áherslu, þá er það unga
fólkið.
Þetta hlýtur að vera
hið gullna tækifæri fyrir
heilbrigðisboðskap safnað-
arins. Það getur verið að
fólk sé ekki sérstaklega
áhugasamt fyrir andlegu
ástandi hjartans, en það er
mjög áhugasamt fyrir líkam-
legu ástandi sínu. Vegna
þessa nýja áhuga á vellíð-
an, höfum við nú aðgang að
einstaklingum, sem áður
voru ósnertanlegir. Þegar
við komum og flytjum þeim
boðskap um góða heilsu,
sjá þeir okkur sem vel-
gjörðarmenn sína og vini,
en ekki ógnun við gamlar
trúarskoðanir sínar. járn-
ið er heitt, einmitt núna.
Að sjálfsögðu hefur
hræsni aldrei reynst góð
aðferð. áður en við leit-
usmt við að miðla öðrum
góðri heilsu, þurfum við að
ganga úr skugga um að við
höfum sjálf tvöfaldan skerf.
Við þurfum að hafa itar-
legan skilning á þeim
grundvallarmeginreglum sem
stjórna líkamanum og starf-
semi hans. Fáfræði á upp-
lýstum tíma er ófyrirgefan-
leg.
Viljum við taka þátt í
áhrifamiklum og árangurs-
ríkum vitnisburði? Láttu
þróttmikið heilbrigði stafa
frá sjálfum þér inn í líf
þeirra sem umhverfis þig
eru.