Innsýn - 01.09.1977, Blaðsíða 20

Innsýn - 01.09.1977, Blaðsíða 20
I FELAGl MEÐ GUÐI Eftir Dave Hill Sextán ára gamall drengur gekk flautandi eftir veginum. Hann hét William Colgate. Hann var rétt orðinn sextán ára gamall og var að fara að heiman og út í heiminn. Þegar hann gekk eftir götunni mætti hann gömlum vini sxnum, skeggjuðum gömlum sjómanni sem hann hafði þekkt frá því að hann var lítill drengur. "Svo þú ert að fara af stað til borgarinnar,William," sagði gamli sjémaðurinn. "Já, það ætla ég mér," sagði William ákveðinn. "Og gera hvað, mætti ég spyrja?" spyr sjó- maðurinn undrandi yfir hvað drengurinn var ákveð- inn. "Eina sem ég kann er að búa til sápu og kerti," sagði William, "en ef ég geri það eins vel og heiðarlega og ég get ætti það að duga.'" "Svo lengi sem þú mannst eftir að hafa Guð í félagi með þér," sagði gamli maðurinn. Hann tók í hendi Williams. "Eigum við að hafa orð með félaga þínum núna áður en þú ferð?" Saman krupu þeir í grasinu við hliðina á veg- inum og báðu Guð um að vaka yfir William er hann færi af stað út í heiminn. Þarna lofaði William að hann skyldi halda sinn hluta af samningnum.

x

Innsýn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.