Innsýn - 01.09.1977, Side 25
felur þegar óvinir hans ráðast á hann. Þegar
hann fer að sofa yfir veturinn, skríður hann
inn í skelina sína, kreistir allt vatn út úr
henni og lokar henni síðan með einhvers konar
kalkefni. Skordýr geta ekki skriðið inn í
gegnum þessa loku, en loft kemst þó í geng svo
að snigillinn getur haft það notalegt allan
liðlangan veturinn. Aðeins Guð á himnum gat
hafa skapað svona undarlegt og dásamlegt fyrir-
bæri sem snigillinn er. (Sjá Jóhannes 1,3)
Ekki eru allir sniglar eins litlir og
þessi náungi er. í Suður-Ameríku og á sumum
eyjum er að finna snigla sem vaxa þar til þeir
verða tveggja feta langir." Þegar litlu snigl-
arnir þeirra koma út úr eggjum sínum, eru
þeir alveg eins og foreldrar þeirra, nema hvað
þeir eru langtum minni.
Sumir sniglar lifa lengi. Risasnigillinn
lifir í þrjátíu ár. Sniglar sem finnast í
tjörnum lifa aðeins í eitt ár. Landsniglar
lifa í tvö til fimm ár.
Augu landsniglanna er að finna yst á horn-
um þeim, sem skaga út úr höfði þeirra.' Þessi
horn eru ekki hörð eins og á kúm, heldur mjúk
eins og litli puttinn þinn. Hornin eru fjögur,
og er tvö þeirra lengri en hin. Augun eru á
þeim lengri. Þegar snigillinn fer að sofa eða
felur sig yfir veturinn, eru hornin dregin inn
líkt og fingur á hanska. Augun sökkva þá inn
í hornin, svo að þau eru vel varin fyrir
hnj aski.
Snigillinn hefur margar tennur. Eitt sinn
taldi tannlæknir tennurnar í snigli og fann
þá 135 raðir af tönnum, og hafði hver röð að
geyma 115 tennur. Sniglillinn hlýtur að þurfa
að tyggja matinn sinn velf