Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 27.05.2004, Síða 6

Fréttir - Eyjafréttir - 27.05.2004, Síða 6
6 Fréttir / Fimmtudagur 27. maí 2004 Sé hér mikla ónýtta möguleika -segir Kristín Jóhannsdóttir, markaðsfulltrúi Nýsköpunarstofu sem tók til starfa í vikunni Starfsmenn Nýsköpunarstofu eru að koma sér fyrir í húsnæði Tölvunar við Strandveg. Nokkuð er síðan fram- kvæmdastjórinn, Sigurjón Haralds- son, tók til starfa en Kristín Jóhanns- dóttir, sem kemur til með að starfa að markaðsmálum ferðamála, er nýkom- in til Eyja. Þegar blaðamann Frétta bar að garði var Kristín á fullu við tölvuna, með pappakassa allt í kring. Eins og áður hefur komið fram þekkir Kristín vel til í Eyjum þar sem hún er fædd og uppalin hér. „Það má segja að ég hafi fyrst komist í snertingu við ferðamennsku hér á menntaskólaárum mínum en á sumrin vann ég á fluginu hjá Braga. Þeir segja að þegar þú kemst í snertingu við ferðamannaiðnaðinn þá smitist þú af bakteríu sem ekki sé svo auðvelt að losna við og sú er raunin hjá mér.“ Eftir að stúdentsprófi lauk flutti Kristín til Noregs, starfaði þar í tvö ár en fór svo yfir til Þýskalands í nám árið 1984. „Ég hélt þá að ég væri hætt í ferðamannabransanum, fór í nám en vann svo sem leiðsögumaður fyrir þýska ferðamenn á Norðurlöndunum. Tíminn í Þýskalandi var mjög eftir- minnilegur, þar upplifði ég m.a. fall Berlínarmúrsins enda bjó ég í Berlín á þeim tíma. Þá starfaði ég sem frétta- maður hjá Ríkisútvarpinu og að upplifa þennan tíma sem fréttamaður var auðvitað alveg ómetanleg lífs- reynsla. Ég hafði áður verið í Austur- Þýskalandi þannig að ég þekkti allar aðstæður mjög vel og skildi því mjög Reykvíkingur því ég hef í raun aldrei búið í höfuðborginni nema á mennta- skólaárunum. Svo áttum við líka hús hér, húsið á Hólnum og þar kem ég til með að búa ásamt sonum mínum tveimur." Kristín hefur mjög ákveðnar skoð- anir á því hvemig megi vinna að ferðamannamálum hér í Vestmanna- eyjum en hún segist hins vegar ekki vera komin hingað til að umbreyta því starfi sem fyrir er. „Hér er verið að gera marga góða hluti og gott fólk sem vinnur við þetta. En það þurfa að koma til betri samgöngur við Vest- mannaeyjar, það væri vissulega frábært að hafa jarðgöng en þau eru ekki til staðar og ég verð að byggja upp markaðsstarfið á þessum for- sendum. Það sem ég hef hugsað mér er að nýta þau sambönd sem ég öðlaðist í starfi hjá Icelandair í Þýskalandi, til að byggja ofan á það sem fyrir er. Hér þurfa menn líka að sameinast í ferðamannaiðnaðinum. Það gengur auðvitað ekki að hér séu fleiri en ein samtök en til samanburðar má benda á að í Berlín, þar sem búa 4 milljónir íbúa og annað eins af ferða- mönnum heimsækir borgina, þar eru aðeins ein ferðamannasamtök. Þjóð- verjar eru ákveðnir og standa fast á sínu en þcir átta sig á því að þeir þurfa að vinna saman til að ná árangri. Það þuríúm við líka að gera,“ sagði Kristín að lokum. KRISTÍN er komin heim í heiðardalinn. Það er sjálfsagt genetískt í okkur íslendingum að snúa alltaf aftur heim. vel þær tilfinningar sem voru hjá þýsku þjóðinni.“ En af hverju að snúa aftur heim til Vestmannaeyja eftir rúmlega tuttugu ára íjarveru? „Það er sjálfsagt gene- tískt í okkur Islendingum að snúa alltaf aftur heim. Mér leið mjög vel úti, var í góðu starfi en heimahagamir toguðu alltaf í mig og mig langaði að búa á íslandi. Það kom ekkert endi- lega til greina að búa í Reykjavík, ég er miklu meiri Vestmannaeyingur en Dagar lita og tóna: Metnaðarfull dagskrá að vanda Eyvör og Guðlaug Dröfn mæta með eigin sveitir BRÆÐURNIR Ómar og Óskar Guðjónssynir hafa skemmt gestum á Dögum lita og tóna. e.t.v. einhverjirfleiri Eyjamenn flytja okkur okkar frá upphafi, og er hans byrja tónleikamir klukkan 21.00 og okkur ljúfa tónlist," sagði Ingi. „Þess framlag ómetanlegt." dagskráin er ekki af lakari endanum. má geta að Ámi Elfar hefur verið með Bæði á laugardag og sunnudag „Ég held að flestir eigi að finna Aðalfundur Visku - fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vm. Hefur staðið fyrir fjölbreyttu námskeiðahald á árinu í þrettánda skiptið er nú blásið til Daga lita og tóna þar sem slegið er í eina hátíð myndlist og djassi af bestu gerð. Upphafið var að heiðra minningu Guðna Hermansen myndlistar- manns og djassspilara. Undirtektir vom frábærar og það sýndi sig að landsins bestu spilarar vom meira en tilbúnir til að bregða sér til Eyja og leyfa Eyjamönnum og gestum að njóta þess besta sem djassinn býður upp á í dag. Og umgjörðin er svo myndlistin sem prýðir veggi Akógeshússins, sem hefur frá upphafi hýst hátíðina. Ingi T. Bjömsson, í stjóm Listvina- félagsins sem hefur veg og vanda af Dögum lita og tóna, lofar góðri skemmtun um helgina. „Þetta hefst með opnun sýningar Birgis Andrés- sonar á föstudagskvöldið klukkan 20.30, en Birgir á ættir að rekja til Eyja. Þar verður að venju boðið upp á tónlist, og eins og hefðbundið er hefst hátíðin með því að Ámi Elfar og Ólafur Jónsson flytja lagið „I’m getting sentimental over you“. Þá mun ‘29 árgangurinn ætla að fjölmenna á opnunina og munu Guð- jón Pálsson og Gísli Brynjólfsson og VISKA - fræðslu- og símenntunar- miðstöð Vestmannaeyja, sem stofnuð var 6. janúar 2003 hélt aðalfund sl. mánudag í fundarsalnum í Rann- sóknasetrinu. Stofnaðilar Visku, sem er sjálfseignarstofnun, era 18 talsins og vora mættir fullúúar frá 16 þeirra á fundinn. í skýrslu Amars Sigurmundssonar, formanns stjómar og Bergþóra Þórhallsdóttur forstöðumanns, kom fram að starfsemin gekk vel á síðasta ári. Viska stóð fyrir fjölbreyttu nám- skeiðahaldi auk þess að annast umsjón með fjamámi og fjarkennslu í nokkram mæli. Sama gildir um það sem liðið er af þessu ári og hefur Viska tekið upp samstarf við fleiri háskólastofnanir um Ijamám. Rekstur síðasta árs var í jámum, en ráðast þurfti á þessu fyrsta starfsári í umtalsverðar íjárfestingar í fjarfunda- búnaði og ýmsum tækjum. Starfsemin er til húsa á 3. hæð á Rannsókna- setrinu Strandvegi 50, auk þess í íjarkennslustofu í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum. I stofnsamningi er gert ráð fyrir að í stjóm sitji fulltrúar skóla Vestmanna- eyjabæjar, annarra menntastofnana, atvinnulífsins og stéttarfélaga og urðu nokkrar tilfærslur og breytingar á stjóminni á aðalfundinum. í stjóm Visku vora kjörin Amar Sigurmunds- son, Eygló Harðardóttir, Páll Marvin Jónsson, Baldvin Kristjánsson og Amar Hjaltalín. I varastjóm Gunnar Gunnarsson, Davíð Guðmundsson og Unnur Sigmarsdóttir, en þess má geta að varamenn sitja jafnan alla stjómar- fundi. Forstöðumaður VISKU er Berg- þóra Þórhallsdóttir. eitthvað við sitt hæfi, enda tónlistar- mennimir á ýmsum aldri og spannar því tónlistin vítt svið. Fyrstar skal nefna „Eyja“ söngkonumar, Guðlaugu Dröfn Ólafsdóttir, sem ólst að mestu leyti upp hér í Eyjum og Eyvöra Pálsdóttur frá Götu, sem er vinabær okkar í Færeyjum. Báðar koma þær með eigin hljómsveit, en með Guð- laugu leika Vignir Þór á píanó, Gunnar Hrafnsson á bassa og Þor- valdur Þorvaldsson á trommur, og hver þekkir ekki Krákuna hennar Eyvarar en þar era Eðvarð Lárasson á gítar, Birgir Bragason á bassa og Pétur Grétarsson sér um slagverkið. Þá mætir hinn ungi og efnilegi Ivar Guð- mundsson trompetleikari með eigin kvartett, en hann var hér um daginn með Tómasi R. Með honum leika Sigurður Þór á gítar, Pétur Sigurðsson á bassa og Kristinn Snær á trommur. Andrés Þór Gunnlaugsson gítarleikari kemur einnig með sinn kvartett, en með honum leika Agnar Magnússon á píanó, Þorvaldur á trommur, og á saxófón leikur Tomas Madsen frá Danmörku" sagði Ingi en eins og sjá má af þessari upptalningu er ljóst að hér er á ferðinni frábært tónlistarfólk. „Upphaflega áttu Dagar lita og tóna að vera í eitt skipti en nú eram við að halda inn í þrettándu hátíðina. Það hefur ekki vantað spilara og fleiri viljað koma en pláss er fyrir, og á meðan einhverjir mæta til að njóta góðrar tónlistar mun Listvinafélagið reyna að standa sig í stykkinu," sagði Ingi að lokum og hvatti fólk til að fjölmenna í Akóges um helgina. Listsýningin verður opin frá 14.00 til 18.00 um helgina. Aðgangseyrir á tónleikana á laugardag og sunnudag er krónur 1500 hvort kvöld.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.