Fréttir - Eyjafréttir - 27.05.2004, Blaðsíða 14
14
Fréttir / Fiommtudagur 27. maí 2004
E^tldvin Kristjánsson rakti skólastarfið í vetur en í ár fagnar skólinn 25 ára afmæli:
Utskriftarnemar komnir yfir 1000
Framhaldsskólanum var slitið í sal
skólans á laugardaginn að
viðstöddum nemendum og starfsfólki
skólans, aðstandendum nemenda og
svartir kollar voru óvenjumargir og
ánægjulegt að sjá hvað margir sáu
ástæðu til að heiðra skólann með
nærvem sinni. Að þessu sinni
útskrifaðist 31 nemandi og þar af 23
stúdentar. í ár fagnar skólinn 25 ára
afmæli og verður þess minnst þann
10. september næstkomandi. í allt
hefur Framhaldsskólinn útskrifað
1040 nemendur frá stofnun og þar af
em stúdentar 560.
Skólaslitin hófust með því að
Baldvin Kristjánsson, aðstoðar-
skólameistari fór yfir starfíð á vorönn
sem hófst þann 5. janúar með
setningu en kennslan byijaði þann 6.
„Síðan þá hefur skólastarf staðið með
litlum hléum. Þó lagðist af kennsla 3.
4. og 5. mars vegna svokallaðra
opinna daga sem náðu hápunkti með
glæsilegri ársháúð er að þessu sinni
var haldin í Höllinni. Öll umgerð og
framkvæmd árshátíðar var úl
fyrirmyndar og verður vonandi til
eftirbreytni í næstu framtíð.
Hefðbundið páskaleyfi tóku menn
svo auðvitað, en kennslu lauk 4. maí
og próf hófust daginn eftir. Þeim lauk
miðvikudaginn 19. maí.
Einkunnathending og prófsýning
fóru fram í gær 21. maí og senn
útskrifast vemlegur hópur með
burtfararpróf af margvíslegum toga,“
sagði Baldvin.
Heldur færri nemendur hófu nám
nú á vorönn en í haust eða um 240.
„Slíkt er árvisst að nemendum fækki
frá hausti til vors og þá ekki bara hér
hjá okkur heldur er það og reynsla
annarra skóla. Ein augljós skýring
fækkunarinnar er náttúrlega sú að við
útskrifum nemendur við lok
haustannar. Af þessum 240
nemendum er hófu önnina hættu 19
nemendur öllu námi og 22 fækkuðu
við sig áföngum. Þegar upp er staðið
þá þreytlu nemendur próf til rúmlega
3600 eininga og stóðust próf í
rúmlega 87% þessara eininga. Og
talandi um próf þá tóku fimm
nemendur okkar samræmt próf í
íslensku nú í upphafi maímánaðar, en
svo sem mönnum er e.t.v. kunnugt þá
verður stúdentum skylt að gangast
undir samræmd próf í íslensku, ensku
og stærðfræði frá og með vori 2005.“
Flestir stunduðu nám á
félagsfræðibraut eða 33% nemenda,
26% voru á almennum námsbrautum,
18% á náttúrufræðibraut, 8% á
vélstjómarbrautum en þau 15% sem
el'tir standa dreifast á aðrar brautir.
„Og enn segir tölfræðin að við séum
að gera þokkalega í mætingamálum
þar sem nemendur eru með 83%
raunmætingu í kennslustundir,
veikindi em skráð um 4% og leyfi
8%. Við emm alveg þokkalega sátt
við þessa mætingu og viljum meina
að það að hækka viðveruskyldu úr
80% í 90% hafi skilað vemlega
bættum árangri,“ sagði Baldvin.
Undir lok aprílmánaðar heimsóttu
um 20 útlendingar
Framhaldsskólann og dvöldu hér í
nokkra daga. „Þama vom á ferðinni
kennarar og nemendur hollenskra,
sænskra og ítalskra skóla sem
Framhaldsskólinn á í samstarfi við.
Þar fer svokallað
Comeníusarverkefni og er yfirskrift
verkefnisins Maður-Byggð-Menning
og hefur það nú staðið eitt ár en að
öllu forfallalausu mun það standa tvö
ár hin næstu einnig."
Annað sem Baldvin nefndi var að
einn kennara skólans, Steinunn
Jónatansdóttir, hóf að kenna
Isfirðingum með fjarfunda- eða
fjarkennslubúnaði sem Viska á og er
HVÍTU kollarnir settir upp, Ólafur skólamcistari fylgist með.
staðseltur í skólanum. „Þreifmgar em
og í gangi um að bjóða nám til
pungaprófs með sama hætti og einnig
er mjög til skoðunar að
Framhaldsskólinn, Viska og
Menntafélagið, sem rekur
Sjómannaskólann í Reykjavík, hafi
með sér samstarf um ljarkennslu úl
3.stigs vélstjórnar."
Breytingar á kennaraliði urðu engar
milli anna og af húsnæðismálum
sagði Baldvin fátt frétta nema heldur
hefur lifnað yfir framkvæmdum hér
utandyra síðustu daga. „Er von til að
þeim framkvæmdum Ijúki í sumarog
verður vemleg breyting á ásýnd
skólans að þeim loknum.“
NJÁLL Ragnarsson
flutti ávarp fyrir
hönd stúdenta og
þakkaði samstarflð
síðustu fjögur árin.
Bar hann skóla og
kennurum vel
söguna.
TUTTUGU ára stúdentar færðu skólanum að gjöf málverk eftir Bjarna Ólaf. Allt voru það konur sem mættu en þær eru Valgerður Bjarnadóttir, Rut
Haraldsdóttir, María Vilhjálmsdóttir, Guðrún Krístmannsdóttir, Guðbjörg Sigurgeirssdóttir, Ásta Guðmundsdóttir, Sigurlína Sigurjónsdóttir og Katrín
Frigg Alfreðsdóttir.