Nýtt S.O.S. - 01.02.1957, Qupperneq 3

Nýtt S.O.S. - 01.02.1957, Qupperneq 3
Orlög 'Jrenu Oldendorff SÍÐASTA FIÓÐGÁTTIN „Margt íer öðruvísi en ætlað er“. Svo mælti Wilhelm Biisch eitt sinn. Siegfrid Ehrtmann skipstjcjri hlaut að reyna sann- gildi þeirra orða. Stjórnandi skips er að vísu mikils metinn, en þó eru til menn, sem liærra eru settir í mannfélagsstigan- uum. Til dæmis útgerðarmaður skipsins. Slík- ir karlar geta hrósað happi. Hann gefur sínar fyrirskipanir og sjómannsins er að hlýða, hvort sem honum er það Ijúft eða leitt. Svona skal það vera og ekkert múð- ur. F.n á morgun er gamlársdagur. Þá hefði maður gjarnan kosið að vera heima og brugga sér gott grogg. Romm þarf maður að hafa, sykur, en vatn þarf ekki! — böm- in send í rúmið, þá boðið til sín nokkr- um vinum og árið 1951 kvntt að gömlum og góðum sið. Eitthvað. á þessa leið hafði Elirtmann skipstjórj hugsað sér að síðasti dagur árs- ins rynni sitt skeið. Ehrtmann er fertugur að aldri og kvæntur. Þetta ár hafði byrj- að vel. og endirinn skyldi einnig vera góð- ur. Hann unir sér bezt á sjónum; kærir sig kollóttan um páska og hvítasunnu, en á jólum og á gamlárskvöld vill hann helzt dvelja heima hjá sér, \ ið borð hlaðið dýr- um veigum. O gá morgun kveður árið, sem rennur í aldanna skaut. Nú situr hann í hraðlest. En hann fer i öfuga átt við þá, er hann kaus að halda. Hann er.ekki á leið til Lúbeck, þar sem Ehrtmanndjölskyldan býr og aðrar virðu- legar skipstjórafjölskyldur þessarar gömlu hansaborgar, heldur kemur hann þaðan. Á farseðli hans stendur nafn endastöðv- arinnar: Émden. í gær steig hann upp í lestina í Emd- en, glaður í anda yfir því að eiga þess kost að clvelja um hríð á skemmtilegu heimili með skylduliði sínu, og kom til Lúbeck að kvöldi sama dags. Heima var honum tekið tveim höndum. En viðdvöl- invarð aðeins ein einasta nótt. í gærk'völdi, hinn 29. desember, kom Irena Oldendorff til Ems og og lagðist við festar í Emden. Þar átti hún að taka koksfarm.

x

Nýtt S.O.S.

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.