Nýtt S.O.S. - 01.02.1957, Blaðsíða 15

Nýtt S.O.S. - 01.02.1957, Blaðsíða 15
Nýtt S. (). S. 15 klukkustundum saman að nánari rann- sókn á flakinu. Skýrsla hans, er hann sendir afrit af til saksóknara ríkisins í Ltibeck, er hefur á hendi rannsókn á þessu sjóslysi, hljóðar á þessa leið: ,,Flakið liggur á stjórnborðshlið og snýr kjölurinn upp. Stefnið vísar í norðvestur, Siglutrén eru brotin. Að utanverðu er skipsskrokkurinn óskemmdur, eða sá hluti hans, sem unnt er að sjá (er ekki sandkafinn). Yfirbyggingin er að nokkru brotin, sem hefur að mínu áliti orsaka/t af því, er skipið rakst á hafsbotninn. Lestarop I og II eru þegar hálffull af sandi, lestarop III meira að segja að tveim þriðju lilutum. Lestarop IV hef ég ekki getað rannsakað enn vegna slæmra veðurskilyrða. Farminunv hefur skolað út og liggur hann í um það bil 10 metra fjarlægð frá flakinu. I sömu fjarlægð liggja einnig sex sker- stokkar úr lúgu II, en skerstokka frá hin- um lúgunum hef ég ekki fundið. Senni- lega eru þeir nú sandkafnir. Lestarhlera hef ég ekki séð. Að vísu hef ég ekki gert mér neitt sérstakt far um að finna þá, því verkefni mitt er að at- huga, hvort framkvæmanlegt sé að lyfta skipinu. Yfirbygginguna miðskips og íbúðir hef ég ekki rannsakað. Eg hef aðeins rann- sakað flakið hið ytra. Að mínu áliti er enn hægt að lyfta skipinu.” Björgunarfélagið getur því hafið undir- búning að því að lyfta skipinu. Veður er sarnt enn svo slæmt, að ekki er hægt að hefja verkið. bað verður jrví að bíða hagstæðara veðurs. En því lengur sem verkið dregst, þeim mun erfiðara verður að ná Irenu Olden- dorff upp á yfirborðið. Meðan Jiessu fer frarn, reynir þýzka haf- f: æðistofnunin að skýra orsök skiptapans. Tilkynning sú, er stofnunin sendi frá sér, að þeirri athugun lokinni, er svo- látandi: ..Hliðarhallinn á Irenu Oldendorlf hefiir aukizt síðan síðasta athugun fór fram 25.- janúar 1952, aukizt að mun. Hann er nú 120 til 130 gráður. Bómurn- ar fyrir lestarnar I og II liggja enn í fest- unurn. 'Bakborðsbjörgunarbáturinn er ó- nýtur með öllu. I bátsuglunni hangir stefni bátsins, hinn hlutinn hefur brotnað af. Bátsuglurnar snúa ekki rétt, heldur vfsa inn. Hvað þá spurningu snertir, hvort skip- ið hafi farizt á tundurdufli er það að segja, að rannsöknir haf- og siglingadómsins í Aurich hafa leitt í ljós, að hvorki á eynni Borkum né á hafnsöguskipinu hefur heyrzt nokkur sprenging. Þá er þess að’geta, að ffakið sjálft er heilt. Þar að auki er ekki vitað ttm nein tundurdufl á þeirri leið, er Irena Oklendorff sigldi árum saman. Þá er jréss að geta, að yfirgripsmikit réttarhöld í I.iibeck hafa afsannað Jrann orðrtim, er kom upp nokkru fyrir slysið, að skemmdarstarfsemi hafi verið orsiik þess." Þykir þá fullvíst, að hvórki tundurduf) né skemmdarverk hafi grandað Irenu Old- endorff. Ekki kemur heklur til mála, að skipið hafi tekið niðri. Á þessum slóðum er dýjri 15—20 metrar, en Irena Olden- dor'ff risti aðeins 5,4 metra. Útilokað er einnig, að árekstur hafi orðið, af þeirri einfþldu ástæðu, að ekkert skip hefur kom- ið til Eniden eða annarrar hafnar, er orð- ið hafi fyrir skémmdum. F.kki hafa held-

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.