Nýtt S.O.S. - 01.02.1957, Síða 8

Nýtt S.O.S. - 01.02.1957, Síða 8
8 Nýtt S. O. S. ur athafnalaust, kostar útgerðina talsvert fé. Dörthe Oldendorff, sem er gufuskip, fer á undan. Hún er gamalt skip, i>yggð árið 1909, hefur sem sé fjóra áratugi að haki. Vél hennar hefur aðeins 850 liestöfl, svo hámarkshraði skipsins er aðeins 9 sjó- mílur. Irena Oldendorff fer um 11 sjómílur á klukkustund. Hægt fer hún fraiú úr hinu skipinu á bakborða. Ehrtmann skipstjóra virðist svo sem Dörthe Oldendorff fari aðeins með hálfri ferð, eins og skipstjórinn hikaði við að taka upp baráttuna við úfinn Norðursjóinn. Að því er virðist hefur hann tekið þá ákvörðun að skora ekki ör- lögin á hólm, heldur láta skynsemina ráða og kasta akkerum á skipalæginu í Bork- um. Slíkt hið sama hefði Ehrtmann trúlega gert, hefði hann verið skipstjórinn á Dörthe Oldendorff. En hann hrósar happi, að liafa nú nýtt og traust skip til umráða. Þegar komið er út á opið haf um mið- nætti er skipið statt þvert af Borkum-vit- anum, og Jrá sannar Irena Oldendorff enn einu sinni, að hún er gott sjóskip. Sjólagið er illt, stuttar og krappar öldur, en Jrað er eins og skipið hristi þær af sér, hverja af annarri. Og seinna, er fyrstu brotsjóirnir fossa yf- ir þilfarsfarminn, rís það að vísu mikið að frainan, en hreyfingar þess eru næstum fjaðurmagnaðar og Jiað lætur vel að stjórn. I»að virðist Jiví ástæðulaust að kvíða neinu. Nú sést vitaljósið í Borkum-West. Frá .merkjastaðnum sést stöðugt rautt ljós. bað er aðvörun um storm! Væri ekki viti meira að halda inn á skipaleguna í Borkum? Ehrtmann skipstjóri ætlar að bíða eftir næstu veðurfréttum. KI. i eftir miðnætti, 31. desember 1951, tilkynnir útvarpsþulurinn í vestur-J)ýzka útvarpinu: Veðurspá fyrir þýzka flóann til kl. 12 á hádegi: Veðurhæð vestan 8, með storm og regnskúrum, minnkar heldur er á daginn líður. — Nú, jæja, tautaði Ehrtmann skipstjóri fyrir munni sér. Þar með er allur vafi tek- inn af. Irena Oldendorff mun ekki leggjast við festar, heldur halda áfram ferð sinni. Hafnsögumaðurinn lætur ekki uppi hvað hann hugsar um [)á ráðagerð. Hann ér ekki skipstjórinn. heldur leiðsögumað- ur til Hubertgat. Þar bíður hafnsöguskip- ið „Borkum", er tekur hafnsögumennina frá borði, en skipin sigla á brott. Ef Ehrt- mann skipstjóri er staðráðinn í að halda áfram, Jró brotsjóirnir gangi öðru hvoru yfir Jrilfarið, þá hann um það, hann ber ábyrgðina. Glienke hafnsögumaður hefur varað hann við og Jrar með gert skyldu sína. Meira getur hann ekki gert. Hann fær ekki heldur við því gert, að hann verður, gegn vilja sínum að fara með skipinu, vegna Jæss að ófært er að komast í land. Klukkan 3,30 er skipið statt móts við vitann í Hubertgat. Þar liggur hafnsögu- skipið. En þá er sjólagið orðið svo vont, að það væri hreinn lífsháski að hætta sér út á bátnum. Nú blossa morsljósin á „Borkum“. Það

x

Nýtt S.O.S.

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.