Nýtt S.O.S. - 01.02.1957, Qupperneq 17
Nýtt S. O. S. 17
er örðugt að komast að óyggjandi niður-
stöðu. vegna þess að engin eftirlifandi
vitni eru til frásagnar um atburðinn.
Við bráðabirgðarannsókn málsins hefur
Iiöfuðathyglin beinst að hleðslu skipsins,
þ\í þar Iiugðu menn, að helzt væri að
leita orsakar slyssins. Allir þeir, er ein-
hverjar upplýsingar gátu veitt um hleðslu
skipsins og hvernig farmurinn var settur
i það, eru spurðir spjörunum úr. Auk
þess hafa fyrirspurnir verið sendar skipa-
smíðastöðinni, útgerðarfélaginu og skipa-
skpðunarmönnum. Sjódómurinn gerir sér
allt far um að fá óyggjandi vissu um
hvemig Irena Oldendorff var hlaðin er
hún hóf sína síðustu ferð.
\'ið rannsókn málsins kom að sjálfsögðu
í Ijós, að skipið var ofhlaðið koksi, er
nam hundrað tonnum, cnda þótt undan-
þága væri veitt til að taka þá viðbót. En
sú undanþága náði aðeins til siglingar
milli þýzkra hafna. Þá gildir einu, hvort
skipið ætlar með fram sinn til Holtenau
eða til Eystrasaltshafna. En nti skeði slys-
ið ekki á erlendu farvatni heldur fyrir
framan þýzka strönd. Hinsvegar verður
ekki litið öðruvísi á, en þar sem skipið
var á leið meðfram ströndinni, þá hafi
þessi 100 tonn er voru umfram, ekki ver-
ið flutt í trássi við siglingalögin.
E'n þrátt fyrir það verða þessi hundrað
tonn eitt merkilegastta rannsóknarefnið
fyrir sjóréttinum.
Þá er dæma skal um traustleika skips-
ins og burðarhæfni, er mjög mikilvasgt,
að þyngdarpunkturinn sé réttur. Sú vitn-
eskja fæst með því að vita nákvæmlega
um hliðarhallaþol þess.
Sú rannsókn eða hæfniprófun hefur
aldrei verið gerð á Irenu Oldendorff. Eins
og áður er getið, hafði slík athugun aðeins
verið gerð á Charlotte Schröder og hún
látin gildá fyrir öll skipin fjögur, er voru
sviptið að gerð.
Sem dæmi til skýringar skulum við
hugsa okkur, að við sjáum fimm vörubíla
í verksmiðju, er h'kjast hver öðrum svo
mjög, að enginn munur er sjáanlegur.
Samt munu bílstjórarnir halda því fram,
eftir að bílarnir hafa verið teknir í notk-
un, að burðarþol þeirra sé misjafnt á ýms-
ah hátt.
Munurinn á skipum, byggðum eftir
sama uppdrætti. verður þó miklu meiri.
Þrátt fyrir það er í vissum tilfellum Ieyft,
að láta híefniprófun eins skips gilda íyrir
systurskiþ, byggt samkvæmt sömu teikn-
inguu.
Sönnunargögn þau er fyrir lágu sýndu,
að útreikningar varðandi gerð skipsins
urðu ekki \ éfengdir fræðilega, hitt er svo
annað mál. hvernig skip stenzt dóm
reynslunnar, en þá er það þyngdarpunktur
skijisins, sem hefur einna mikilvasgustu
hlutverki að gegna.
En í þessu tilfelli stóðst Irena Olden-
dorff ekki þá raun. Auk þess kom annað
ekki siðúr mikilvægt atriði til sögunnar.
Samkvæmt t'isk útgerðarfélagsins voru
vélar og katlar settir fimm röngum fram-
ar, þ. e. 3,25 m. en í hinum öðrum skip-
um félagsins
Auk þess höfðu verið sett vatnsþétt skil-
rúm hálfhá í aftari lest. Þar bak við var
hólf, er var fyllt með vatni sem kjölfestu.
Þá hafði eins og áður er vikið að, farið
fram breyting í vélarrúmi. Þá varð að
nota nokkurn hluta kjölfestuhólfsins í tvö-
falda botninum sem olíutank.
Við þessa breytingu hefur tonnatala
skipsins aukizt um 25 tonn og burðarþolið
þá breytzt um leið. Þyngdarpunktur Irenu
Oldendorff er því nokkur annar en systra-
skipanna, þótt ekki muni miklu.