Nýtt S.O.S. - 01.03.1960, Síða 18
hryðjurnar urðu strjálli og sjórinn varð það sléttur, að hæg't var að
manna fallbyssurnar. Það var líka nauðsynlegt, því snemma um morgun-
inn þann 31. desember — í 20 gráða frosti — komu Þjóðverjarnir. —
Orrustan við Bjarnaey hófst!
Allir viðbúnir! - Þýzkt herskip!
Á meðan skipalestin JW 51 B hjó sig áfram í hinni þungu undiröldu
Norðuríshafsins, var fyrirrennari hennar JW 51 A, sem samanstóð af 15
flutningaskipum, einu tankskipi, 7 tundurspillum og 5 minni vopnuðum
skipum, komin í örugga höfn í Murmansk. Þessi skip höfðu fengið gott
veður, og ekki orðið fyrir neinum árásum Þjóðverja, hvorki úr lofti né
af sjó.
En skipalestinni JW 51 B var aftur á móti mikil hætta búin. Þann
25. desember hafði Þýzk fulgvél komið auga á skipin. Og þann 30.
desember liafði þýzkur kafbátur verið í námunda við hana, þegar hún
var stödd suður af Bjarnarey. Vegna stormsins hefði þessi kafbátur samt
ekki gert neina árás á skipin og flugvélin ekki heldur af sömu ástæðum.
Þjóðverjar höfðu orðið um þetta leyti allstórar flugbækistöðvar í Norð-
ur-Noregi. En þýzka yfirherstjórnin sendi herskip rnóti óvinunum í
þetta skipti. Það voru skipin: „Admiral Hipper“ og „Lutzow“, bæði
nokkuð stór herskip, og tundurspillarnir: „Friedrich Eckholdt", „Rich-
ard Beitzen“, „Theodor Riedel“, „Z 29“, „Z 30“ og „Z 31“. Yfirmaður
þessa skipaflota var vísiaðmíráll Kmnmetz og hafði flagg hans verið dreg-
ið að hún á „Admiraþ Hipper".
Þessi átta skip létu úr höfn þann 30. desember s. 1. úr Altafirði, sem
liggur milli Tromsö og Hammerfest. Það var gert ráð fyrir að mæta
óvinuöum á gamlársdag 1942. Kummetz aðmíráll stóð ásamt herforingja-
ráði sínu í kortahúsinu í brúnni á „Admiral Hipper“ og útskýrði fyrir
því, hvaða aðferð hann ætlaði að nota, þegar hann réðist á skipalestina.
Hann sagðist inyndi koma aftan að skipunum og ráðst á þau frá tveimur
hliðum.
Við höldum svo með 17 sjómílna ferð í norðausturátt. Ef áætlun okkar
um stefnu óvinanna stenzt, drögum við þá brátt uppi, vegna þess, að
þeir verða, sökum kafbátanna að fara sífelldar krókaleiðir og þar að auki
ganga skipin ekki eins vel og okkar skip. Svo jregar komið er á staðinn,
18
Nýtt S O S