Nýtt S.O.S. - 01.03.1960, Blaðsíða 24
að hann hat'ði verið leystur frá störfum í Gibraltar, hafði hann strax
byrjað á „Onslow“ og ekki haft neinn tíma til að venjast loftslaginu
á hinum norðlægari breiddargráðum.
„Hvað ætli Ellen sé nú að gera í Plymouth?" hugsaði hSnn með
sér. „Ætli hún geti ímyndað sér, hvað unnusti hennar verður að þola
nú út við Norðurpól og foreldrar mínir í Greenwich?“
„Hver fjandinn er nú á seyði!“ Hann hafði komið auga á rauðleitan
blossa í vestri og þess vegna hafði hann hrópað þetta.
Klukkan var nú 9,30. Hinir ókunnu gestir, sem „Onslow“ hafði
ekki enn komið auga á — voru nú byrjaðir að skjóta. Þeir skutu á
„Obdurate".
„Þeir eru byrjaðir!" hrópaði stórskotaliðsforinginn á „Onslow“ æstur.
„Það sjást skotbjarmarnir í vestri, Sir!“
„Hart á bakborða!“ Sherbrooke gaf þessa skipun með eldingar-
hraða. „Báðar vélar fulla ferð áfram! Sendið skeyti til „Orwell“, „Ob-
edient“ og „Obdurate“:
Þeir eiga að staðnæmast hjá „Onslow“!
George Robinson hafði nú engan tíma lengur til að hugsa heim til
sín. Hann gaf nú undirmönnum sínum skipanir um merkjasendingar,
sem Ijóskastarinn svo sendi út í geiminn. Samtímis voru einnig skip-
anir sendar gegnum loftskeyti. „Stýrið liggur hart á bakborða!" var
staðfest frá stýrishúsinu „og báðar vélarnar fara fulla ferð áframl“
Tundurspillirinn hallaðist nú mjög á stjórnborða þegar honum var
snúið. ískaldur sjórinn rauk yfir brúna.
„í hve mikilli fjarlægð lialdið þér, að skotblossarnir séu, Guns?“ hróp-
aði skipherrann niður á stórskeytapallinn.
„Kannske 15 mílur. Þeir eru mjög langt í burtu.“
„Obdurate“ var nú í meira en 10 sjómílna fjarlægð frá ,,Onslow“ og
var ekki hægt að koma auga á hann frá tundurspilli foringjans. Eins
var ekki heldur hægt að sjá óvinina frá „Obdurate“.
Eftir að stríðinu var lokið, voru teikningarnar yfir orrustusvæðið frá
þessum degi bornar saman, kom þá í ljós 4 sjómílna mismunur á fjar-
lægðinni þar og hinni raunverulegu fjarlægð milli „Obdurate“ og Þjóð-
verja.
Skipun Sherbrookes til „Achates“ og korvettunnar var: „Verið kyrr-
ir þar sem þið eruð og hyljið ykkur með reyk!“
„Onslow“ öslaði nú áfram í vesturátt, eftir að ferðin hafði verið
24
Nýt.t. S O S