Nýtt S.O.S. - 01.03.1960, Qupperneq 29
hryðjunni var nú létt upp, og þarna framundan á bakborða mátti nú
aftur sjá skuggamynd hins stóra berskijDs bera við blýgráan bimininn.
„Hundrað og þrjátín hundruð!" sýndu fjarlægðarmælarnir og tvöföld
rnynd þessa áhalds rann saman í eitt vegna snúnings skrúfunnar.
Stórskotaforinginn hristi höfuðið. Hann var í vondu skajú. 13000
yards (nærri 12 km) — litlir möguleikar fyrir 12 cm fallbyssur og ekki
batnaði útlitið þegar boð komu tim, að fyrsta skotið hefði misheppn-
az.t vegna ísingar. — „HijijDer er að skjóta!“ kallaði Rohinson.
„Obedient“ og „Obdurateý höfðu hlýðnazt skipun Sherhrookes og
haldð til suðurs í áttina til skipalestarinnar. „Onslow“ með „Orwell“
í kjölfarinu urðu þess vegna að heyja baráttuna einir.
„Hverri guðsgjöf fylgir blessun", tautaði merkjavörðurinn, meðan
hann beið eftir skotliríð Þjóðverjanna. Það var sagt, að Nelson hefði í
orrustunni við Abukir, Kaupmannahöfn og Trafalgar viðhaft lík um-
mæli, þegar óvinirnir skutu á skip hans og kúlumar hvinu allt í kring.
„Gáið að ykkur! Skot!“ lirópáði tundurskeytaskyttan á „Onslów“ með
stojnjjúrið í hendinni. Hann vildi gefa til kynna, að hann hefði reiknað
út hraða þýzku sprengikúlnanna. — Á stjórnborða, skammt frá „Onslow“
gaus sjórinn upp og freyddi. Fjögur skot, fjórar vatnssúlur í nokkur
Nýtt S O S
29