Nýtt S.O.S. - 01.03.1960, Qupperneq 32
ingar og nýjar slysafregnir: „Sjórinn beljar inn í vélarúmið! Slagsíða á
bakborða! Skipið brennur!"
Klukkan var 10,18, þegar sjöunda skothríðin frá „Admiral Hipper“
Iiitti Onslow. Þá liafði skorsteinninn fallið og sprengjubrotum hafði
rignt yfir allan aftari liluta brúarinnar. Yfirbyggingin að framan og þil-
farið yfir messanum var í ljósum loga. Fallbyssurnar að framan voru
ekki lengur nothæfar. Margir af áhöfninni voru dauðir og enn fleiri
voru særðir. Þegar 8. skothríðin lenti á skipinu var tjónið orðið svo
mikið, að það gat varla orðið meira. En þó lentu nokkur skot í véla-
rúmið, svo að sjórinn streymdi þar inn í skipið. Hraðinn minnkaði
um 15 sjómílur og skipið hallaðist um 15 gráður. Tjón á straumnet-
inu orsakaði einnig, að fallbyssurnar afturá urðu ónothæfar. Onslow var
orðinn varnarlaus gegn hinum voldugu skeytum „Hippers“.
Skipherrann, sem var mikið særður og hafði misst annað augað, lá
enn í brúnni. Nokkrir liðsforingjar og undirforingjar krupu hjá hon-
um. Úr leifunum af hinum fallna skorsteini gaus svartur olíureykur.
Slökkviliðsmennirnir höfðu þó að eyða honum. Niðri í skipinu voru
sjóliðar að reyna að stöðva lekann.
George Robinson beit á jaxlinn og sendi sjálfur skipanir Sherbrookes
áfram til hinna tundurspillanna: Til Orwell, sem var alltaf nærri On-
slow, og til Obedient og Obdurate, sem voru stjórnborðsmegin við
Onslow á leið til flutningaskipanna.
„Lofið mér að vera hér!“ sagði skipherrann við lækninn, sem vildi
flytja liann undir þiljur. „Stjórnborða 10! Hafa skipanir verið sendar?"
„Stjórnborða 10!“ hrópaði liðsforinginn, sem v'ar á verði, gegnum
talrörið í stýrishúsinu undir brúnni. „Skipanirnar hafa verið sendar,“
kallaði Robinson um leið og hann með miklum erfiðismunum hélt
áfram að binda um handlegginn á sér. Vinur hans, bátsmaðurinn,
var fyrir löngu horfinn af brúnni og aðstoðaði nú við viðgerðir hér
og hvar um skipið.
Læknirinn sagði, að úti væri um skipherrann. En hann vildi ekki
leggja niður völdin, fyrr en næstelzti skipherra, sem hét Kinloch, og
var skipherra á HMS Obedient, hefði tekið við stjórn skipaflotans. Enn
liélt Admiar Hipper áfram að skjóta. Til allrar hamingju hafði fjar-
lægðin milli skipanna orðið heldur meiri, en ekki hefði þurft nema
eitt gott skot til að gera út af við tundurspillinn.
Klukkan var nú 10,20. Onslow hélt í suðurátt. Orwell, sem nú var
82
Nýt.f S O S