Nýtt S.O.S. - 01.04.1960, Blaðsíða 5
Fimmtíu apar áttu sök á því, að Antonio Sohst, skipstjóri frá Ham-
borg lenti í alvarlegum erfiðleikum í öndverðri styrjöldinni milli Bret-
lands og Frakklands annarsvegar og Þýzkalands hinsvegar. Hann var þá
skipstjóri á „Bahia Blanca“. Hefði hann fylgt fyrirmælum umboðs-
manns skipafélagsins og hafnað „velmeintum ráðleggingum" portúgalska
hafnarlæknisins, þá hefði hann ásamt skipshöfn sinni verið kyrrsettur
strax í stríðsbyrjun.
„Bahia Blanca'1 eldri var smíðuð 1918. Skipið var 8558 brúttótonn.
Um miðjan ágústmánuð 1939 var það sent frá Hamborg til Rio de Jan-
eiro og Santos.
Útlitið í Evrópu var þrungið spennu. I Þýzkalandi var styrjaldar-
undirbúningur í fullum gangi og hafði verið lengi.
Það fór ekki leynt, að þýzku kafbátarnir voru þegar dreifðir um
höfin, hver á sínurn stað, ef til alvarlegra tíðinda kynni að draga.
Þýzk skip, sem komin voru í heimahöfn, höfðu erlend blöð meðferðis,
þar á meðal brezk. Þar var um það rætt fullum fetum, að stríð hlyti
að brjótast út, Bretland og Frakkland mundu koma Pólverjum til
hjálpar, ef Hitler réðist á þá. Blöðin sögðu og, að vandamál hinna
þýzkættuðu minnihluta væri ekki annað en átylla ein.
Þýzku útgerðarfélögin höfðu ekki enn sem komið var fengið nein-
ar aðvaranir eða fyrirskipanir frá stjórninni. Skipin sigldu eins og ekk-
ert væri í aðsigi. Ætli þetta jafnaði sig ekki eins og svo oft áður.
Bahia Blanca var því búin til ferðar eins og önnur skip og ferðinni
var heitið til Suður-Ameríku. Farmurinn var 10 þús. tonn af verðmætum
stykkjavarningi.
Öpunum var komið fyrir í litlum básum í hlýju farmrúmi. Þetta voru
50 apar, sem léku sér eftir því sem kostur var á.
Aparnir komu frá uppeldisstöð í Hamborg. Þar voru þeir bólusettir
og nú átti að fara fram athugun á því, hvaða áhrif hitabeltisloftslagið
hefði á þá.
Skömmu fyrirbrottför kom fulltrúi uppeldisstöðvarinnar enn einu
sinni að máli við skipstjórann. Hann bað skipstjórann að brýna fyrir
mönnum sínum að gæta þess vel, að verða ekki fyrir neinum skrámum
af öpunum, því það gæti haft hinar alvarlegustu afleiðingar.
„Segið áhöfn yðar þetta, skipstjóri. Takið aðvörun mína alvarlega
og lítið sjálfur eftir því, að ekki verði leikið við apana þó þeir þyki
skemmtilegir leikfélagar. Þeir eru alveg óútreiknanlegir.“
Nýtt S O S
5