Nýtt S.O.S. - 01.04.1960, Síða 30
hjálpar, enda komst á beint loftskeytasamband rnilli hans og Þjóðverj-
anna. Solist skipstjóri æskti þá ekki aðstoðar fleiri skipa.
Hafsteinn þurfti nú að sigla 50 sjómílur til Baliia Blanca. Halldór
Jónsson, loftskeytamaður á Hafsteini, hafði samband við Bahia Blanca
öðru hvoru og fóru þær sendingar fram á þýzku. Þjóðvernarnir kváðust
mundti skjóta flugeldum öðru hvoru, svo auðveldara yrði að finna skip
þeirra. Togaramenn sáu flugeldana er jreir áttu eftir kfukkustundar
siglingu að skipinu. Kom Hafsteinn að Bahia Blanca klukkan hálffjögur
um morguninn. Var þ;i haugasjór, mikil rigning, en veður annars gott,
hægur kalcli.
Skipstjóri á Hafsteini var Ólafur Ófeigsson. Spurði hann Sohst skip-
stjóra, hvort hann héldi, að hægt væri að draga skipið til liafnar. Skip-
stjórinn svaraði, að tilgangslaust væri að reyna slíkt, því skipið væri að
sökkva. Spurði hann Ólaf skipstjóra, hvort hann gæti ekki tekið á rnóti
61 manni, en þó voru skipverjar á Bahia Blanca alls 62. Mikill sjór var
í skipinu, einkum hásetaklefum og framlest og það var mjög sigið að
framan.
Skipverjum á Bahia Blanca gekk erfiðlega að koma björgunarbátun-
um á flot vegna sjógangsins. Og er þeir loks voru komnir niður og átti
að leggja frá skipshliðinni, sló þeim jafnharðan að henni aftur. Var þá
hellt olíu í sjóinn til þess að slæva ölduganginn.
Loks náðu bátarnir sér frá skipshliðinni. Hafsteinn lagði svo að bát-
unum, en togaramenn helltu lýsi í sjóinn. í fyrsta bátnum voru sautján
manns. Voru meðal hinna fyrstu tveir unglingar, annar 14 ára, hinn
15 ára. Dimmviðri var mikið, svo björgunarbátarnir höfðu ljós uppi.
Allt gekk slysalaust, þótt aðstaða væri erfið. Komust allir Baliia Blanca-
menn um borð í togarann heilu og höldnu. Síðastur fór Solist skip-
stjóri frá borði. Togarinn tók einn björgunarbátinn með til Hafnar-
fjarðar, en hinir voru látnir sigla sinn sjó.
Hásetar á Bahia Blanca voru klæddir vinnufötum, en yfirmenn voru
einkennisklæddir. Höfðu skipverjar smápinkla meðferðis og mun mest-
megnis hafa verið í þeim tóbak og ýmsir smáhlutir. Þá höfðu þeir
með sér tvo ketti og létu sér annt um þá.
Skipbrotsmenn fengu hinar beztu viðtökur um borð í Hafsteini.
Nokkru eftir að björgun var lokið slokknuðu öll ljós á Bahia Blanca.
Ekki var unnt að ganga úr skugga um, hvort það stal'aði af því, að
skipið sökk eða ljósabúnaður þess hefði bilað. Var þó talið nokkurn-
Sf>
Nýtt S O S