Nýtt S.O.S. - 01.04.1960, Blaðsíða 36
í íslenzkum blöðum frá þessum tíma er hvergi á það minnzt, að brezkt
herskip hafi komið þarna við sögu.
— Voruð þið þá aldrei njósnarar og fimmtu herdeildarmenn eins og
sumir héldu? spyr blaðamaðurinn.
— Auðvitað ekki, svarar Wiliam Spitz. — Við vorum bara ósköp venju-
'legir farmenn. — Auðvitað voru nazistar í hópnum, enda mikil hrifning
á Hitler á þessurn árum. Þó held ég, að nazisminn hafi verið minni
meðal þýzkra farmanna en flestra annarra stétta, fyrir þá sök, að við
kynntumst umheiminum betur.
— Hvernig líkaði ykkur dvölin í Reykjavík? spyr blaðamaðurinn.
— Hún var alveg ógleymanleg. Við bjugguin á tveimur hótelum og
Herkastalanum. Við höfðum ekkert annað fyrir stafni en að skemmta
okkur og láta okkur líða vel.
— Þið voruð sigursælir hjá kvenfólkinu.
— Já, blessað íslenzka kvenfólkið, það lét okkur aldrei í friði. Við
fórum á dansleik á hverju kvöldi, oftast á Hótel ísland.
Þegar ég kom nú til Reykjavíkur og fór upp í bæinn, gekk ég fyrst
að Hótel ísland, þaðan átti ég rnargar sælar endurminningar. En hvað
var þetta, húsið var ekki lengur til og mér var sagt, að það hefði brunn-
ið. Sama tilfinningin og þegar fangar komu heim til Þýzkalands eftir
stríðið og ætluðu að fara að rifja upp endurminningar sínar á gömlum
slóðum. Þá lágu húsin í rústum, eyða og tóm yfir öllu.
Já, það var skemmtilegt í gamla daga á Hótel ísland. Þá voru uppá-
haldslögin Ramóna og Paris durch dein Herz. Þau voru leikin á Hótel
ísland.
— Hvað er skemmtilegasta endurminningin úr gömlu Reykjavík?
— Eg get ekki sagt frá henni. Hún er leyndarmá tveggja, aðeins
tveggja. En ég get sagt frá leiðinlegustu endurminningunni. Við vor-
um einu sinni góðglaðir nokkrir sjómennirnir og gengum syngjandi
um Austurstræti. Þá kom lögreglan og stakk okkur í sandkassann.
— Hvaða sandkassa?
— Jú, við kölluðum það sandkassa í Þýzkalandi. Það er það sama og
þið kallið kjallara. ,
— Ykkur hefur brugðið ægilega í brún, þegar Bretarnir komu?
— Já, það var skelfilegt. — Annars var ég ekki í bænum þá. Við Þjóð-
verjarnir höfðum farið allmargir saman austur í Rangárvallasýslu. Við
36
Nýtt S O S