Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.12.1938, Page 29

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.12.1938, Page 29
Jóhann Hafstein : Tvær stefnur. Um reynslu Englendinga af stefnu socialista og íhalds- manna. Það er óefað liægt að öðlast raun- hæfari þekkingu á gildi hinna mis- munandi þjóðfélagskenninga og stjórnmálastefna, ef kostur er á að bera saman árangur þeirra í niismun- andi löndum. Ekki þó svo að skilja, að ef ein stefna lánast vel á einum stað, þá sé þar með gefið, að hún blessist líka á öðrum. Því að sinn jarðvegur kann að liæfa hverjum gróðri. En eftir því sem aðstæður eru líkari lundarfari þjóðanna og skilyrði svipaðri, þeim mun líklegri er samanhurðurinn til þess að geta verið jákvæður og uþþlýsandi. í eftirfarandi linum eru dregnar fram nokkrar staðreyndir úr stjórn- málarevnzlu Englendinga síðari ár- in, síðan að „þjóðstjórnin“ tók við völdum, og að nokkru frá tíma soci- alista-stjórnarinnar, sem sat að völd- um næst á undan. Auðvitað er ekki um neina gagngerða rannsókn að ræða. Aðeins er drepið á nokkur dæmi, sem aðgengilegar upplýs- ingar liggja fvrir um, en eru i sjálfu sér svo veigamikil og grundvallandi að af þeim má mikið ráða um liag eða óhag rikisrekstrarins i lieild. I maímánuði 1929 komust social- istar til valda í Englandi.*) Ekkert hafði frekar stutt að valdatöku þeirra, en hin gullnú loforð um að ráða algjörlega hug á hinu versla þjóðfélagsmeini: atvinnuleysinu. Nú er það afar táknandi í landi eins og Englandi, liversu mikið eða lítið at- vinnuleysið er, og afkoma þjóðarinn- ar speglast mikið lil í tölu atvinnu- leysingjanna. Þegar socialista-stjórnin tók við, var tala atvinnuleysingjanna 1,171,- 000. Eftir rúm 2 ár, þegar socialist- ar voru aftur hraktir frá völdum af vonsviknum kjósendum, var ástand- ið þannig, að þeim hafði ekki lánast að útrýma atvinnuleysinu, eins og lofað var, ekki lánast að minnka það, ekki lánast að sporna við að það ykist, því að hinir atvinnulausu voru nú orðnir samtals 2,807.000! Tala þeirra hafði meira en tvö- faldast á tveggja ára stjórnartíð *) Socialistisk stjórn hafði aðeins einu sinni áður setið að völdum í Englandi, árið 1924, og þá aðeins tæpt ár.

x

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna
https://timarit.is/publication/1014

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.