Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.12.1938, Síða 31
1' J O 1) 1 N
275
Yerulegár breytigar hafa ekki or5-
ið aðrar en þær, að Baldwin lét af
forsætisráðherraembættinu árið 1937
aldurs vegna, og var liann þá 69 ára,
en annar yngri tók við, Neville
Chamherlain, þá 67 ára!
Skal nú reynt að sýna nokkrar
spcg'ilmyndir úr stjórnartíð íhalds-
manna og „þjóðstjórnarinnar“, er
gætu gefið til kynna, hvernig tekizt
liefir með gjörólíkum aðferðum og
andstæðri grundvallarstefnu að
hrjótast upp úr feni því, sem social-
istar skildu eftir sig.
Fjárhagsleg viðreisn: Þegar social-
istar fóru frá völdum var áætlaður
halli á fjárlögunum um 74 miljónir
punda og næsta fjárhagsár um 170
miljónir punda. Með breyttri pólitík
og lieilhrigðri fjármálastefnu tókst
samt að snúa af feigðargöngunni, svo
að síðan hafa fjárlögin oftast verið
afgreidd með tekjufgangi og fjár-
hagslegt öryggi og traust, hæði inn-
an ríkis og utan, fullkomlega endur-
vakið.
Verzlun og iðnaður: Bretland er
aftur orðið aðal útflutningsþjóð
heimsins, en í lok socialistatímabils-
ins hafði það dregizt aftur úr sem
hið 3. í röðinni. ,Útflutningurinn var
alls um 155 milljón pundum meiri
i júni 1938 en 1931—32.
Iðnaðarframleiðslan varð meiri en
nokkru sinni áðnr siðasta fjórð-
ung ársins 1937 — og jiað ár var eitt
mesta velmegunarár í sögu Breta.
Nokkur veigamikil dæmi má nefna:
1. Járn og stálframleiðsla er nú um
helmingi meiri en 1931.
2. Kolaframleiðsla er um 15 af
hundraði meiri.
3. Skipahyggingar eru þrisvar sinn-
um meiri að tonnatölu. (Og
tonnatala skipa, sem ekki voru í
notkun 1938, var um 456,000 sam-
anhorið við 2,182,(K)0 1932.)
4. Gerfisilkiframleiðsla hefir aldrei
verið meiri, og er þrisvar sinnum
meiri en 1931.
5. Yélaiðnaður er tvisvar sinnum
meiri.
6. Rafmagnsframleiðsla náði há-
marki 1937, eða helmingi meiri
en 1931 — og l'rekari aukning hef-
ir orðið 1938.
7. Smásala er rösklcga fimm sinn-
um meiri að verðmæti heldur en
árið 1931.
Á sama tíma hefir landbúnaðinum
stórlega fleygt fram, þannig að land-
húnaðarframleiðslan er nú um 40
milljónum punda meiri en 1931—32,
eða aukning ca. 17 af hundraði.
Verkalýðsmálefni:
1. Atvinnuleysi. Strax og social-
istastjórnin var farin frá völdum
hyrjaði atvinnuleysingjunum að
fækka. Og í júní árið 1937 var þeim
fækkað niður í 1.360,000, úr 2,807,-
000 árið 1931, eða um 1,447,000!*)
*) Mönnum kann að finnast ,að tala
atvinnuleysingjanna enn nokkuð há, þó
að lu'in hafi lækkað uni næstum hálfa aðra
milljón, og sé því enn mikið óunnið i
þessu efni. En sumir enskir hagfræðing-
ar telja, að það sé alltaf visst lágmark
atvinnuleysingja, sem aldrei sé hægt að
komast niður úr. Eins og ástandið er nú,
muni þetta lágmark miðast við 11 af
hundraði, þ. e. a. s. ef lala atvinnuleys-
ingjanna fer ekki fram úr 11% af þeim.
sem cru i vinnu, þá sé ástandið cðlilegt
og lýsi velmegun i alvinnulífinu. Stafi