Sendiboðinn - 30.01.1941, Page 3

Sendiboðinn - 30.01.1941, Page 3
3. árgangur Siglufirði, 30. jan. 1941 KtSifllíflfiBflHI 1. tölublað FRIÐRIK HMRTAR: HEILSUVERND OG HREINLÆTI. Allir eru sammála um, að góð heilsa er dýrmætasta eign mannanna. Því fagna menn (oftast) allri viðleitni, er fer í þá átt, að styrkja og herða líkam- ann og gera hann hæfari til að verjast árás- um ýmissa óhollra áhrifa, er vilja veikja hann. Starf skólalæknis og hjúkrunarkonu hafa stefnt í þá átt, að hafa gát á heilsu skóla- barnanna og auka eftirlit með heilbrigði þeirra og hreinlæti. Munu allir (nú orðið) á einu máli um, að eftirlit þetta sé nauðsynlegt og sjálf- sagt og að lýsisgjafir og mjólkurgjafir, séu nauðsynlegar ráðstafanir og hyggilegar í sambandi við aukna heilsuvernd barnanna. Nú hefur nýr og merkur þáttur bætzt við í heilbrigðiseftirlit skólabarnanna hér, en það eru tannaðgerðir þeirra og störf tannlæknisins í sambandi við þær. Ber að fagna því, að nú hefur bærinn gert samning við hr. Kurt Sonnenfeld tann- lækni, um að hann geri við allarskemmd- ar tennur skólabarna — þeim að kostnað- arlausu. — Er þetta mjög mikils virði frá heilbrigðislegu sjónarmiði. En þar sem lík- legt má telja, að ýmsum sé ekki fyllilega ljóst, hve nauðsynlegt er að varðveita tennurnar, birtist hér (með leyfi aðila) er- indi, er fjallar um þessi efni. Erindið heitir: Þarf að hirða um barna- tennurnar. Eftir Dr. dent. J. J. Holst, prófessor við tannaðgerðadeild tannlæknaháskólans í Kaupmannahöfn. Þýtt hefur Lúðvíg Guðmundsson, fyrv. skólastjóri. »Kæru tilheyrendur! Eg ætla nú að leitast við að gefa yður svar við spurningu, sem oft er lögð fyrir tannlækna, spurningunni: »Þarf að hirða um barnatennurnar?« Móðirin spyr þessa í fyrsta sinn, þegar barnið er nálega tveggja ára gamalt, og tanntökunni að mestu er lokið. Spurningin vaknar mjög

x

Sendiboðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sendiboðinn
https://timarit.is/publication/1028

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.