Sendiboðinn - 30.01.1941, Síða 11

Sendiboðinn - 30.01.1941, Síða 11
SENDIBOÐINN 9 því fátæklegur og málfar þeirra ófullkomið. Þau hafa tamið sér alls konar ambögur, sum eru hljóðvillt, önnur nota ýmis orð- skrípi í stað góðra íslenzkra orða o. s. frv. Auðvelt er að greina mörg dæmi þessu til sönnunar, en hér skal fátt eitt nefnt. í sambandi við fátækt orðaforðans, má t. d. benda á, að mörg börn á þessum aldri (7 ára) þekkja alls ekki ýmis orð, sem tákna líkamshluta, t. d. hvirfill, hnúi, greip, handarjaðar, jarki. Svo er og um veðurfar. Börnin þekkja varla annað en rigning og hrið. Orð eins og kaldi, and- vari, blær, súld, skúr, él, gola, gári, eru ýmist óþekkt eða misskilin. — Um vald barna á máli, nægir að nefna dæmi áþekk þessu: »Veiztu hvort skólastjórinn sé í skól- anum?« »Mig (eða mér) hlakkar (agalega) til jólanna«, o. m. fl. af líku tagi. Verkefni skólanna í móðurmálskennsl- xmni eru í senn margvísleg og mikilvæg, þegar í 7 og 8 ára bekkjunum. í 9 ára bekkjunum bætist svo við stafsetningar- kennsla og mun flestum vera ljóst, að þar er ærið verkefni fyrir hendi og um margt við ramman reip að draga. Jafnvel smá- orð þarf að kenna og æfa t. d. þau, þetta, sem mjög mörg börn skrifa: þaug, þettað — og bera þannig fram. Skýr framburður er því eitt af því, er skólínn þaif að kenna yngri börnunum. Tekur slíkt oft langan tíma. — Óskandi væri, að hvert einasta heimili, er börn hefur í umsjá, gerði sér ljóst, hversu mikið er í húfi um móðurmálskennsluna, að heimilið leggi hönd á plóginn og hjálpi skólanum og börnunum í þessum efnum. Mér er ljóst, að aðstaða margra heimilatil að sinna börn- rim sínum og fylgjast með námi þeirra, er i torveldasta lagi. En góður vilji er löngum sigursæll, og mundi oft finna tíma til að segja stutta sögu, láta börnin geta gátu, finna orð, er ríma (borð, orð), raula vísu o. fl. o. fl. Síðast, en ekki sízt, ættu heimilin að meta kennslu í móðurmálinu til jafns við dönsku, biblíusögur, landafræði, náttúru- fræði og aðrar námsgreinar, með því að glæða ást barnanna á móðurmálinu, sem pabbi og mamma, afi og amma og for- feðurnir hafa talað og varðveitt, rnálið, sem hver íslenzk móðir hefur hjalað við barn sitt og hvíslað að ástarorðum. — Öllum ætti að vera ljúft að gera skyldu sína í þessum efnum. Þá er reikningur eitt viðfangsefni yngri barnanna í skólanum. Mörgum foreldrum finnst, að mjög hægt sækist í þeim efnum, börnin séu alltaf að stagla hið sama: samlagning, frádrátt, margföldun og deilingu. — Það mundi verða of langt mál að sýna fram á, hve geysilegt nám einmitt yngri börnin verða að leysa af hendi í reikningi, svo að und- irstaðan sé trýgg og kunnáttuleysi valdi ekki töfum, er i eldri bekkina kemur. — Er skoðun min sú, að margir foreldrar séu alltof óþolinmóðir í sambandi við reikn- ingsnám yngri barnanna, því að þar má sizt af öllu fara ofljótt yfir, heldur verður að þaulæfa hvert atriði og dvelja nógu lengi við allar reikningsaðferðir einskonar- talnanna, með lágum tölum lengi fyrst, unz mikilli leikni er náð. — Aldrei má gleyma, að ekki er það dæmi til, er Ieyst verður án þess að leggja saman, draga frá, margfalda eda deila. Leikni í þessum reikningsaðferðum þurfa börnin að ná sem fyrst, helzt í yngri bekkjum skólans. — Foreldrar, verið því þolinmóðir þótt yður finnist hægt farið yfir í reikningi — það er bezt fyrir yngri börnin. Þau eiga t. d. að læra sainlagningu svo vel, að þau þurfi ekki að telja á fingrunum 13—14ára gömul, ef þau eiga t. d. að leggja saman 8 og 7 eða 18 og 17, þau eiga að kunna þetta eins og þau kunna að 2 og 2 eru 4. Tilgapgur minn með þessari smágrein

x

Sendiboðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sendiboðinn
https://timarit.is/publication/1028

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.