Sendiboðinn - 30.01.1941, Qupperneq 14

Sendiboðinn - 30.01.1941, Qupperneq 14
12 SENDIBOÐINN NAUÐSYMAMÁL. Stundum finna börnin ekki húfur sínar eða skó í skólanum, áður en þau halda heim. Oftast finna þau aðrar húfur eða aðra skó. Stafar þetta af því, að önnur börn hafa tekið áðurnefnda hluti í misgripum (eða viljandi?). Þetta geta heimilin komið í veg fyrir, a. m. k. að mestu leyti, með því að merkja bæði húfur og skó (stígvél) barna sinna og aðgœtu daglega, hvort börnin koma heim með sínar eigin húfur og á skóm sínum. Verði eitthvert heimili þess vart, að barn komi ekki heim með húfu sína eða sé ekki á skóm sínum, er það vinsamlega beðið að láta hlutaðeigandi bekkjarkennara, (eða skólastjóra) vita um þetta sem fyrst, svo að hægt sé að leiðrétta misgripin, sé þess nokkur kostur. Þarf ekki að eyða orðum að því, hversu hættulegt það er hverju barni, að venjast ekki fullri reglusemi um þessi efni og læra ekki þegar í æsku að virða eignarrétt annarra og hirða vel eigin muni. — — Nokkrar óskila-húfur eru í skólanum, sem engin börn virðast þekkja. — Ættu þau heimili, er misst hafa húfur, að at- huga þetta. — Spaðsaltað í heifum og hálfum tunnum. Kjötbúð Siglufjarðar Happdrœttinu. Sala happdrættismiða er hafin. 3ÓN GÍSLASON. Takið eftir! Áskrifendur að bókum Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins og áskrifendur að sögu íslendinga í Vesturheimi; eru beðnir að vitja bókanna hið allra fyrsta. Hannes Jónasson. Dráttarbraut Siglufjardar Siglufirði. — Sími 87. Annast allskonar skipaviðgerðir.

x

Sendiboðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sendiboðinn
https://timarit.is/publication/1028

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.