Byggingarlistin - 01.01.1951, Blaðsíða 15
w
ii ■ • 'sí-lA
Gunnlaugur Halldórsson: Búnaðarbankinn
Að ojan: Innri hluti bankasalar.
Til hœgri: Grunnmynd 1. hæðar. Mœlikv. 1:200.
nokkru móti hinum löngu gluggalausu
langveggjum. Þó þetta væri andstætt
gömlum venjum um bankabyggingar, var
líklegt að mjög opin götuhlið, sem gerði
bankasalinn bjartan og sýnilegan utan
frá, mundi auka gengi bankans ef vel
tækist, og að skemmtileg bygging með
fríðu starfsliði mundi ekki síður vekja
traust en hin venjulega virkjum líka
bankamynd. Onnur leið var og naumast
fær ef dagsbirtan átti að skipta máli í
hinum djúpa sal.
Um fyrirkomulag byggingarinnar réðu
þó mestu frumkröfur bankastjórans, en
af þeim mætti t. d. nefna að gengt skyldi
jafnt í bankasal sem aðrar vistarverur
byggingarinnar frá hvorri götunni sem
væri. 1 stórum dráttum varð fyrirkomu-
lagið þannig, að bankinn sjálfur hefir
kjallara og tvær neðstu hæðirnar til eigin
afnota, en efstu hæðirnar eru allar leigð-
ar út, einkum sem skrifstofur.
Hvað varðar útlit byggingarinnar má
geta þess að hún er að mestu olíumáluð,
en umgerðir úr marmarahellum eru um
götuhliðarnar. Neðsta hæð er að mestu
klædd eirþynnum og hurðir og gluggar
Hafnarstræti
Austurstræti