Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2007, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2007, Side 2
Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands ís- lenskra útvegsmanna, LÍÚ, vill senda hafrannsóknaskipið Árna Friðriks- son til Grænlands sem fyrst, til að kanna ástand og samsetningu þorsk- stofnsins við strendur landsins. „Þetta vil ég gera til þess að við getum betur áttað okkur á því hvaða fiskur það er sem er þarna á ferðinni, hversu mikið er af honum, hvern- ig aldurssamsetningin er á honum og ekki síst til þess að reyna að finna út úr því hvort þetta er grænlenskur þorskstofn eða fiskur af íslenskum uppruna,“ segir hann. Friðrik bendir á að í vor hafi nokkurt magn af þorski fundist á miklu dýpi skammt út af Vestfjörð- um, þegar menn voru á grálúðuveið- um. Hann segir ekki vitað hvað mik- ið sé af þeim þorski, en nauðsynlegt sé að rannsaka það. Þekkt kenning er að þorskaseiði reki í átt að ströndum Grænlands og alist þar upp. Þá komi þau til baka að Íslandsmiðum sem fullvaxinn þorskur. „Við þurfum að fá upplýsingar um stofnstærðina og hvort sá þorskur sem þarna er sé að koma eða fara á okkar mið.“ Friðrik telur það mikilvægt í ljósi niðurskurðar þorskkvótans í hundr- að og þrjátíu þúsund tonn að fá úr því skorið hvort þarna sé íslenskur þorskur á ferð. „Það væri auðvelt að fá leyfi hjá Grænlendingum fyr- ir rannsókninni, enda hafa þeir líka hagsmuna að gæta,“ seg- ir hann. Kostnaður við rann- sóknarleiðangra getur numið tugum milljóna króna og ekki eru til fjárheimildir fyrir rann- sóknarleiðangri. „Þetta kostar um tuttugu milljónir króna, ef leiðangurinn yrði allt að mánuður. Það er hins vegar alls ekki víst hvort kostnaðurinn yrði svo hár. Þessar upphæðir eru smáræði í samhengi við hversu verðmætur þorsk- stofninn er.“ valgeir@dv.is föstudagur 24. ágúst 20072 Fréttir DV Ölvun og hávaði í miðri viku Talsvert var um ölvun í mið- borg Reykjavíkur í fyrrinótt og bárust lögreglunni margar kvart- anir vegna hávaða fram eftir nóttu. Að sögn varðstjóra hjá lög- reglunni á höfuðborgarsvæðinu þykir þetta ölvunarástand heldur óvenjulegt í miðri viku í ljósi þess að veitinga- og skemmtistað- ir loka klukkan 1. Var hávaðinn langt fram eftir nóttu og tals- verður erill hjá lögreglunni. Að sögn varðstjóra fór þó allt vel að lokum og engin stór mál komu upp. Nokkrir voru þó látnir gista fangageymslur lögreglunnar sök- um ölvunar. InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Upplýstu innbrot Lögreglan á Vestfjörðum hef- ur upplýst innbrot sem framið var í veitingahúsið Krúsina og Ísafjarðarbíó aðfaranótt laug- ardagsins 18. ágúst síðastlið- ins. Við yfirheyrslur hjá lögregl- unni á Ísafirði viðurkenndu tveir ungir karlmenn að hafa framið innbrotin. Í innbrotunum stálu mennirnir töluverðu magni af áfengi og sælgæti auk annars þýfis sem lögreglan hefur lagt hald á í tengslum við rannsókn málsins. Fundu tjöld Þjóðverjanna Tjöld Þjóðverjanna tveggja sem leitað hefur verið að undanförnu fundust ofarlega í Svínafellsjökli skömmu fyrir hádegið í gær. Það voru starfs- menn Landhelgisgæslunnar sem komu auga á tjöldin úr þyrlu. „Það er staðfest að þetta eru tjöldin þeirra. Þetta þrengir leitarsvæðið talsvert, en svæðið er engu að síður varasamt yfirferðar,“ segir Ólöf Snæhólm hjá Landsbjörgu. Sérþjálfaðir menn með spor- hunda leituðu fram eftir gær- deginum. Vita ekki hversu marga vantar Reykjavíkurborg hefur ekki yfirlit yfir hver staðan er á ráðn- ingum grunnskólakennara eftir að skólar voru settir. Á mánudag vantaði enn kennara í meirihluta skólanna, eða 21 af 39 skólum. Þá gaf menntaráð út að um 30 kennarar hefðu verið ráðnir á 10 dögum. Ekki liggja fyrir upplýsingar hjá menntaráði um hvernig ráðn- ingar hafa gengið síðan. Sigrún Björnsdóttir upplýsingafulltrúi segir þó að mikill uppgangur sé á því sviði og að skólastarf fari fram með eðlilegum hætti. Friðrik J. Arngrímsson vill senda hafrannsóknaskip til Grænlands: Leitum að uppruna þorsksins Friðrik J. Arngrímsson „Þessar upphæðir eru smáræði í samhengi við hversu verðmætur þorskstofninn er.“ Í verslun Nóatúns í Nóatúni er ekki hægt að kaupa nýbakað bakkelsi vegna manneklu í versluninni. Sam- kvæmt upplýsingum frá versluninni hefur illa gengið að ráða starfsmann til að sjá um baksturinn og því útlit fyrir að hillurnar standi tómar í ein- hvern tíma í viðbót. Sumarstarfsfólk hefur séð um baksturinn í sumar en nú þegar skólarnir eru byrjaðir eru þeir horfnir á braut. Víða hefur gengið illa að ráða í lausar stöður á höfuðborgarsvæðinu og nægir í því samhengi að nefna frí- stundaheimilin og grunnskóla borg- arinnar þar sem enn vantar nokkurn fjölda starfsfólks. Erfiður tími í verslunum „Það hefur gengið vel að ráða fólk til starfa upp á síðkastið. Þetta er samt vissulega erfiður tími í verslunum þegar skólarnir eru að byrja og verslunarstjórar þekkja það. Það myndast hálfgert milli- bilsástand,“ segir Guðríður H. Baldursdóttir, starfsmannastjóri Kaupáss. Guðríður segir að Kaupás hafi fengið mjög góð viðbrögð við þeim auglýsingum sem birst hafa undanfarið og ástandið í ár sé öllu betra en á sama tíma í fyrra. „Við rekum 37 verslanir og í það heila eru tíu stöður í dagvinnu lausar. Með ellefu hundruð starfsmenn er það ekki mikið.“ Guðríður segir að fyrir skemmstu hafi verið auglýst eftir fólki með lífsreynslu sem hafi gefist vel. „Við fengum alveg frábær viðbrögð við því og við fengum nokkra einstakl- inga í vinnu vegna þeirrar auglýs- ingar. Þannig fékk fólk staðfestingu á því að það ætti ennþá erindi á vinnumarkaðinn en það þarf einnig að bjóða fólki sveigjanlegan vinnu- tíma.“ Fjör á vinnumarkaði „Það vantar fólk víða en það vantar áberandi mikið í ákveðn- ar stöður,“ segir Katrín S. Óladóttir, framkvæmdastjóri hjá ráðningarfyr- irtækinu Hagvangi. Katrín segir að vinnumarkaðurinn hafi verið fjör- legur undanfarnar vikur og að ekki sé mikið kvartað undan verkefna- leysi. Hún segir að verr gangi að ráða í lægra launuð störf og framboðið á þeim störfum sé umtalsvert meira en eftirspurnin. „Við erum ekki sjálf að ráða mikið í ófaglærðu störfin en við heyrum að það sé mjög erfitt að ráða í þau,“ segir Katrín og á hún þar við verslunar-, þjónustu- og umönnun- arstörf. Vantar faglærða Katrín segir að einnig vanti mikið af faglærðu fólki á borð við verkfræð- inga eða fólk með menntun í upplýs- ingatækni. „Það vantar líka tækni- fræðinga og upplýsingatæknigeirinn hefur verið mjög líflegur, það vantar fullt af tæknimenntuðu fólki.“ Aðspurð hvort vanti meira af starfsfólki á höfuðborgarsvæðinu eða á landsbyggðinni segir Katrín að fleiri vanti á höfuðborgarsvæðinu. „Sérstaklega í verktakafyrirtækin og þessi stóru fjárfestingarfyrirtæki sem vantar samanlagt fleiri hundruð manns.“ Katrín segir að það sé af sem áður var þegar haustmánuðirnir voru um- fangsmestu mánuðirnir. „Það er allt- af mikil hreyfing eftir sumarið þegar sumarstarfsfólkið fer aftur í skólana. Það er annars mikil hreyfing fram eftir haustinu og alveg fram í nóvem- ber þegar fer að róast aftur. Þá kem- ur smá hlé þangað til fjörið byrjar aft- ur fljótlega upp úr áramótum. Þetta er því orðið ansi þétt nánast allt árið um kring.“ Starfsfólk vantar í margvísleg störf á höfuðborgarsvæðinu og hafa ráðningarskrifstof- ur varla undan. Í verslun Nóatúns í Nóatúni er ekki hægt að fá bakkelsi vegna mann- eklu. Guðríður H. Baldursdóttir, starfsmannastjóri hjá Kaupási, segir að þetta sé erfið- ur tími í verslunum. Katrín S. Óladóttir, framkvæmdastjóri Hagvangs, segir að mikið vanti af verkfræðingum og tæknimenntuðu fólki. EKKERT BAKKELSI EinAr ÞÓr SiGurðSSon blaðamaður skrifar einar@dv.is Ekkert bakkelsi Í verslun Nóatúns í Nóatúni er ekki hægt að kaupa nýbakað bakkelsi vegna manneklu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.