Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2007, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2007, Síða 16
föstudagur 24. ágúst 200716 Helgarblað DV Ingjaldur Arnþórsson, forstöðumað- ur meðferðarheimilisins að Lauga- landi í Eyjafjarðarsveit, hefur ver- ið tilkynntur til barnaverndar Akureyrar. Tilkynningin barst eft- ir að barnageðlæknir gerði athugasemdir við meðferð Ingjaldar á börnum sínum og fyrrverandi eiginkonu sinni sem nú hefur ráðið sér lögfræðing til að sjá um skilnaðarmál. Ingjaldur hefur með- fram starfi sinnt framhalds- námi í Danmörku og er sak- aður um brot á barnalögum með því að koma 11 ára syni sínum ítrekað í vist án þess að móð- irin fengi nokkrar upplýs- ingar um hvar hann væri niður kom- inn. Jafnframt er hann sak- aður um að hafa heimil- að 16 ára dótt- ur þeirra að sækja nám erlendis án sam- þykkis móðurinnar. Almennt er hann sakaður um aðferðir í þá veru að gera börnin mjög andsnúin henni en þau hafa sameiginlegt forræði yfir börn- unum. Tilkynningin gerir barnaverndar- yfirvöldum skylt samkvæmt barna- verndarlögum að kanna aðstæður barnanna og hvort hann hafi van- rækt þau. Áður hefur Ingjaldur ver- ið kærður til lögreglu fyrir líkamsárás og á honum hvílir skattrannsókn þar sem hann er grunaður um að hafa dregið sér töluvert skattfé. Málið er enn í rannsókn en Ingjaldur undirbýr búferlaflutninga til útlanda. Nýtur trausts Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, staðfestir að til- kynning hafi borist barnaverndar- yfirvöldum og segir skyldu þeirra að kanna málið til hlítar. Hann segir Ingjald njóta fyllsta trausts. „Þetta er ekkert sem við höfum áhyggjur af og lítum ekki alvarlegum augum. Þetta hefur ekkert með hans stöðu að gera sem forstöðumaður meðferðarheim- ilisins enda hafa engar athugasemdir um hans starf borist okkur. Ingjaldur nýtur fulls trausts Barnaverndarstofu þó svo að málið verði auðvitað full- kannað,“ segir Bragi. Ásgeir Kárason, sérfræðingur hjá barnavernd Eyjafjarðar, er ekki jafn- sannfærður um að tilkynningin um Ingjald verði rannsökuð. Hann ber fyrir sig trúnaði og segist ekki geta rætt einstaka mál sem eru til skoð- unar. „Það eru ekki allar tilkynning- ar rannsakaðar, það er einmitt fyrsta ákvörðunin sem tekin er. Ef tilkynn- ing er á annað borð skoðuð, eru hag- ir barna kannaðir og stundum leitað álita sérfræðinga. Það er í raun al- veg sama hvort það er sérfræðing- ur sem tilkynnir um einkenni hjá barni eða að aðbúnaður þess sé ekki viðunandi, við þurfum alltaf að afla frekari upplýsinga. Ef mál er talið óljóst, lítilvægt eða slúður- kennt getur það verið lagt til hlið- ar,“ segir Ásgeir. Er enginn Halim-Al Ingjaldur er miður sín yfir því að tilkynningin hafi borist og dregur mjög í efa álit sérfræðings- ins sem það gerði. Hann segir mál- ið einn stóran harmleik sem sé til- kominn vegna andlegra veikinda fyrrum eiginkonu hans. „Ég harma mjög viðbrögð sérfræðingsins og geri alvarlegar athugasemdir við þau. Þetta er persónulegur harm- leikur og liður í erfiðu og löngu skilnaðarferli. Þetta á ekkert skylt við mína vinnu og að setja mig í svona Halim-Al-stöðu er hörmulegt. Ég er enginn gerandi í þessu máli,“ segir Ingjaldur. „Fyrrverandi konan mín hefur verið fárveik lengi og hef- ur hvork verið fær til né haft áhuga á að hugsa um börnin sín. Fyrir vikið hef ég ekki séð þörf á að bera ákvarð- anir undir hana. Konan óskaði skýrt eftir því að öll okkar samskipti færu í gegnum lögfræðinga og það er dótt- ir mín sjálf sem ákveður að fara út í námið. Það er rétt að syni mínum var komið í vist á meðan ég var í námi og það var iðulega gert án vitundar all- an tímann. Það hefur einfaldlega ver- ið gert því að hún hefur ekki verið í sambandi og ekki treyst sér til að sjá um börnin fram til þessa.“ Fjöldi sjálfsvígstilrauna Haukur Arnþórsson, bróðir Ingj- aldar, telur ljóst að bróðir hans þurfi á hjálp að halda. Hann segist nauð- búinn til að koma fram til þess að bjarga lífi fyrrverandi eiginkonu Ingj- aldar. „Bróðir minn gerir ekki allt- af greinarmun á réttu og röngu. Eft- ir síðasta samtal mitt við Ingjald var mér nóg boðið og hugsanagangur hans er orðinn of grófur. Hann sagð- ist beinlínis vona að henni tækist næsta sjálfsvígstilraun. Ég lít á það sem síðasta úrræði að stíga fram því augljóslega virðist bróðir minn hafa góða tiltrú hjá barnaverndaryfirvöld- um, enda hefur hann svo sem gert margt gott í gegnum tíðina, og öllu trúað sem hann segir. Ég vil einfald- lega bjarga mannslífi og bróðir minn þarf sjálfur hjálp,“ segir Haukur. Sérfræðingur í barna- og ungl- ingageðlækningum tilkynnti Ingjald til barnayfirvalda vegna meðferðar á eigin börnum og fyrrverandi eig- inkonu hans. Þar að auki lagði sér- fræðingurinn fram ásakanir um lík- amlegt ofbeldi á meðferðarheimilinu á Laugalandi samkvæmt heimildum DV. Í ágúst 2005 var Ingjaldur kærður til lögreglunnar á Akureyri fyrir líkam- legt ofbeldi gegn systur sinni og því til staðfestingar var lagt fram áverkavott- orð. Samkvæmt heimildamanni DV gaf Ingjaldur þær skýringar við yfir- heyrslur lögreglu að nauðsynlegt hafi verið að beita líkamlegu valdi til að koma vitinu fyrir systur hans. Í lög- regluskýrslu á hann að hafa staðfest að hann beitti stúlkur á meðferðar- heimilinu Laugalandi svipuðu ofbeldi til að koma fyrir þær vitinu. Lýsti ofbeldisaðgerðum gegn óþekkum stelpum Aðspurður staðfestir Haukur lík- amsárásina á systur þeirra bræðra og getur ekki horft lengur upp á með- ferð hans á fyrrverandi eiginkonu sinni. Hann segir Ingjald ítrekað hafa lýst fyrir sér ofbeldisaðferðum gegn skjólstæðingum meðferðarheimilis- ins sem hluta af meðferðinni. „Ingj- aldur hefur lýst því fyrir mér hvernig hann tekur á stelpunum á heimilinu. Þar er á ferðinni ekkert annað en lík- amlegt ofbeldi og það þykir mér ekki Ingjaldur Arnþórsson, forstöðu- maður meðferðarheimilisins að Laugalandi, hefur verið tilkynntur til barnaverndaryfirvalda og er sakaður um illa meðferð á börnum sínum, fyrrverandi eiginkonu sinni og skjólstæðingum. Konan hefur ítrekað reynt að svipta sig lífi en Ingjaldur hafnar öllum ásökunum um slæma meðferð. Hann hefur áður verið kærður fyrir líkamsárás og er undir skatt- rannsókn en Bragi Guðbrands- son, forstjóri Barnaverndarstofu, segir Ingjald njóta fyllsta trausts. SAKAÐUR UM ANDLEGT OG LÍKAMLEGT OFBELDI BARNALÖG 2003 V. kafli. Foreldraskyldur og forsjá barns. 28. gr. Forsjá barns felur í sér rétt og skyldu fyrir for- eldri til að ráða persónulegum högum barns og ákveða búsetustað þess. Forsjárforeldri fer enn fremur með lögformlegt fyrirsvar barns. Barn á rétt á forsjá foreldra sinna, annars eða beggja, uns það verður sjálfráða og eru þeir forsjárskyldir við það. Foreldri sem fer eitt með forsjá barns síns er skylt að stuðla að því að barn njóti umgengni við hitt foreldri sitt nema hún sé andstæð hag og þörfum barns að mati dómara eða lögmælts stjórnvalds. Nú fara foreldrar sameiginlega með forsjá barns og er öðru foreldrinu þá óheimilt að fara með barnið úr landi án samþykkis hins. „Hans aðferð er sú að taka stelpurnar háls- taki og draga þær þannig berfættar á malarvegi svo þær finni verulega til. Þetta gerir hann ítrekað þar til þær láta undan vilja hans og segir þetta „stand- ard“ aðferð fyrir óþekk- ar stelpur.“ TrAusTI HAFsTEINssoN blaðamaður skrifar: trausti@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.