Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2007, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2007, Qupperneq 17
DV Helgarblað föstudagur 24. ágúst 2007 17 TILRAUNAÁSKRIFT 2 FYRIR 1 ::: Þú færð Helgarblað DV og Mánudagsblaðið sent heim að dyrum ::: Þú færð fyrstu tvo mánuðina á sérstöku tilboði ::: Þú færð annan mánuðinn frítt, hinn á aðeins 1.990 kr. Hringdu í síma 512 7000, farðu inn á dv.is, sendu póst á askrift@dv.is eða sendu okkur sms skilaboðin „dv ja“ í síma 821 5521 og við hringjum í þig til að ganga frá tilraunaáskriftinni. Eftir þessa tvo mánuði berst þér blaðið áfram en hafir þú ekki áhuga á að fá blaðið lengur, hringir þú í síma 512 7000. HELGARÁSKRIFT 2fyrir1 D Y N A M O R E Y K JA V ÍK SAKAÐUR UM ANDLEGT OG LÍKAMLEGT OFBELDI góður siður. Hans aðferð er sú að taka stelpurnar hálstaki og draga þær þannig berfættar á malarvegi svo þær finni verulega til. Þetta gerir hann ít- rekað þar til þær láta undan vilja hans og segir þetta „standard“ aðferð fyrir óþekkar stelpur,“ segir Haukur. Ingjaldur undrast mjög ásakan- irnar. Hann hafnar því algjörlega að hafa beitt skjólstæðinga sína líkam- legu ofbeldi. „Ég kannast ekki við að hafa nokkurn tímann lýst ofbeldisað- ferðum fyrir nokkrum manni. Það er útilokað. Ég kann ekki slíkar aðferðir og get því hvorki hafa beitt þeim né túlkað þær fyrir aðra. Þessu hafna ég alfarið og þannig hefur aldrei verið unnið hérna,“ segir Ingjaldur. Fjöldi sjálfsvígstilrauna Haukur bendir á að sérfræðingar styðji frásögn hans en vegna trúnað- ar eigi þeir erfitt með að stíga fram. Hann segir bróður sinn vera að ýta fyrrverandi eiginkonu sinni út í sjálfsmorð með harðræði varðandi forsjármál barna þeirra og fjármál. „Eiginkonan hefur gert fjölda sjálfs- vígstilrauna og verið inn og út af geð- deildum síðustu 10 mánuði. Að sam- band sé á milli samskipta Ingjaldar við eiginkonuna og sjálfsvígstilrauna hennar styður geðlæknir og annar hefur gert athugasemdir við meðferð hans á börnum hans. Sérfræðingar bera mér þá sögu að þarna sé í gangi skrítið mál og það kom mér því mið- ur ekkert á óvart,“ segir Haukur. Aðspurður kannast Ingjaldur við sjálfsvígstilraunir eiginkonunnar fyrrverandi. Hann neitar því alfar- ið að hafa átt nokkurn þátt í ástandi hennar með markvissu niðurbroti. „Ég hef aldrei heyrt annað eins og það að ég hafi átt þátt í hennar veik- indum. Það er alveg útilokað. Þetta er hvílíkur harmleikur. Á endanum treysti dóttur mín sér ekki til að horfa upp á þetta lengur og bað um að fá að fara út í nám,“ segir Ingjaldur. Brýtur barnalög Ásgeir segir fjölda tilkynninga ber- ast barnaverndaryfirvöldum án þess að eiga þangað erindi og ítrekar að hann geti ekki rætt einstaka mál. Þeg- ar hann er spurður um hvort það að leyna verustað og taka stórar ákvarð- anir án samráðs við móður sé brot á barnaverndarlögum segir hann það ekki vera, þess í stað varði það hugs- anlega brot á barnalögum. „Við höf- um dæmi um að til okkar berast tilkynningar sem koma barnavernd- arlögum ekkert við og það er mikil- vægt að leita til réttra aðila. Sum mál ætti til dæmis frekar að tilkynna til lögreglu. Ef foreldrar fara með sam- eiginlega forsjá eiga þeir báðir rétt á að deila ákvörðun um mikilvægar ákvarðanir í lífi barns, það á til dæm- is við um dvalarstað þess. Brot á slíku getur varðað við barnalög og slíkt á að kæra til sýslumanns,“ segir Ásgeir. Aðspurður hvort Ingjaldur hafi fengið mat sérfræðinga á andlegu ástandi fyrrverandi eiginkonu sinnar segir hann svo ekki vera. Hann hafn- ar því alfarið að hafa vísvitandi brotið lög og bendir á að sjúkrahússaga eig- inkonunnar síðustu mánuði tali sínu máli. „Ég lít ekki svo á að ég hafi ver- ið að brjóta lög því allan tímann hefur móðirin ekki sýnt áhuga á börnunum. Ég hef staðið á haus við að reka heim- ilið sem einstæður faðir með fárveika konu á spítala,“ segir Ingjaldur. Hyggur á flótta Hauki líst illa á hversu linum tök- um barnaverndaryfirvöld virðast ætla að taka málið. Hann segir bróður sinn á flótta úr landi vegna skulda og fjár- austurs. „Það er nokkuð ljóst að Ingj- aldur er á flótta og ég held að hann sé á leið til Danmerkur fyrir fullt og allt. Hann skuldar skattinum svo mikið og mig grunar að hann sé undir mikl- um þrýstingi frá Barnaverndarstofu að hætta rekstrinum. Hugsunin hjá þeim er líklega sú að hleypa honum úr landi án þess að missa mannorð- ið,“ segir Haukur. Aðspurður staðfestir Ingjaldur skattrannsókn á rekstri heimilisins fyrir þrjú rekstrarár, 2001, 2002 og 2003, og að hann sé á leið úr rekstri meðferðarheimilisins. Hann hyggst flytja til Danmerkur og segir það fyrir nokkru hafa verið tilkynnt til Barnaverndarstofu. „Ég hef aldrei nokkurn tímann dregið mér skattfé og tel fjármálin algjörlega á hreinu. Hvort einhverjum manni hjá skatt- inum finnist að skattaskil megi vinna öðruvísi er í góðu lagi og þá vinn ég fullkomlega með skattayfirvöldum í því,“ segir Ingjaldur. „Vandinn er sá að á slíku heimili er erfitt að koma í veg fyrir blöndun á því hvað er til einkanota og hvað ekki. Ég er búinn að búa með unglinga inni á heimil- inu í 10 ár og nú er löngu orðið tíma- bært að hætta. Þessi ákvörðun mín að hætta er algjörlega ótengd öðrum málum,“ segir Ingjaldur. Meðferðarheimil- ið að Laugalandi: Sérhæft fyrir stúlkur með hegðunarvanda Meðferðarheimili hefur ver- ið rekið að Laugalandi síðan í september 2000 en var áður í Varpholti í Hörgárbyggð frá stofnun 1997. Það var rekið sem fjölskylduheimili og bjuggu hjónin þar ásamt tveimur börn- um sínum og þeim unglingum sem þar voru vistaðir hverju sinni. Auk þeirra hjóna hafa þrír starfsmenn starfað við heimilið og fjölskylduráðgjafi komið að starfinu í hlutastarfi. Að Laugalandi er rekið með- ferðarúrræði fyrir unglinga á aldrinum 13 til 18 ára með fjöl- þættan hegðunarvanda. Gert er ráð fyrir að þar vistist að jafnaði sex til átta unglingar í einu og hefur skapast hefð að vista ein- ungis stúlkur á staðnum. „Ég harma mjög við- brögð sérfræðingsins og geri alvarlegar at- hugasemdir við þau. Þetta á ekkert skylt við mína vinnu og að setja mig í svona Halim-Al- stöðu er hörmulegt.“ Bragi Guðbrandsson forstjóri Barnaverndarstofu lýsir yfir fullu trausti á Ingjaldi sem forstöðumanni meðferðarheimilisins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.