Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2007, Qupperneq 50
föstudagur 24. ágúst 200750 Helgarblað DV
Sakamál
Dýrir veitingastaðir voru í miklu
uppáhaldi hjá Yvan Keller. Mest naut
hann þó að bjóða Severine, kærustu
sinni, upp á kampavín og kavíar á
veitingastaðnum Tour d’Argent í
París. Sá staður var svo fínn að end-
urnar á matseðlinum höfðu hver sitt
númer. Vissulega hjuggu verðin á
veitingastaðnum stór skörð í efna-
hag Yvans, en hann Yvan hafði fund-
ið ráð við því.
Á fimmtán ára tímabili hafði Yvan
Keller stundað að brjótast að nóttu
til inn til aldraðra ekkna. Þær kæfði
hann á varfærinn máta með kodda.
Engum datt annað í hug en hár ald-
ur væri dánarorsök þessara kvenna.
Eftir að hafa tæmt húsið af skartgrip-
um, reiðufé og öðrum verðmætum,
hespaði hann gluggana aftur. En
hann var ekki gráðugur og erfingj-
ana grunaði ekkert og sættu sig við
leifarnar. En Yvan og Severine lifðu
áhyggjulausu lífi í vellystingum.
Severine mátti ekkert vita
Það var að lokum hans eig-
in bróðir sem kom upp um hann.
Hann játaði fljótlega á sig sjö morð
með því skilyrði að kærasta hans
fengi ekkert að vita. Lögreglan gat
engu lofað í þeim efnum. Niður-
brotinn vegna þess fór Yvan í klefa
sinn í kjallara þinghússins í Mul-
house og hengdi sig. Hann gat ekki
afborið tilhugsunina um að segja
Severine hvernig það fé sem notað
var til kaupa á kavíar og kampavíni
var tilkomið. Lögreglan komst að
því að klæðnaður í fataskáp Sever-
ine hæfði prinsessu.
Lá lengi undir grun
Lögreglan hafði verið á hælum
Yvans í þrjú ár, en aldrei getað sann-
að nokkuð. Yvan Keller varð þekkt-
ur sem „Ósýnilegi morðinginn“. Ná-
grannar Yvans urðu furðu lostnir
þegar þeir sáu hann leiddan, hand-
járnaðan á brott af lögreglu. Að
þeirra mati hlaut að vera um mis-
skilning að ræða. Og það sama gilti
um Severine, sem var óhuggandi.
Allir sem þekktu Yvan gátu vitnað
um viðkvæmni hans og blíðlyndi.
Sjálfur sagði hann: „Ég sá til þess
að ekkjurnar mínar fengju friðsæl-
an dauðdaga. Ég beitti engu ónauð-
synlegu ofbeldi. Nokkrar kvenn-
anna gerðu sér aldrei grein fyrir að
það var verið að myrða þær. Ég tal-
aði við þær í vinalegum tón og lét
þær stundum fá púða undir bakið
til að styðja þær í dauðastríðinu.“
Talið er að Yvan Keller hafi myrt
að minnsta kosti tuttugu og þrjár
konur og hefur lögreglan und-
ir höndum sannanir vegna sextán
þeirra. Ekki að það breyti miklu
héðan af.
Pirraður íbúi
Íbúi í Árósum í Danmörku varð svo argur vegna hjólreiðakeppni í
borginni að hóf skothríð að þátttakendunum. Um var að ræða
hjólreiðakeppnina Tveir dagar við Árósa. Skaut maðurinn um
fjörutíu skotum úr loftbyssu að þátttakendum og fékk einn þeirra
skot í andlitið. Eftir að hafa handtekið manninn framkvæmdi
lögreglan leit í íbúð hans og fann auk loftbyssunnar tvo fjaðurhnífa
og tuttugu grömm af hassi.
Eldfimt
samband
Eldfimt ástand skapaðist á
heimili í Moskvu í Rússlandi.
Þar bjuggu hjón sem höfðu
skilið fyrir þremur árum. Vegna
bágs efnahags höfðu þau þó
ekki flutt hvort frá öðru, en
bjuggu undir sama þaki í lítilli
íbúð þar í borg. Eins og gefur
að skilja var lítill samhljóm-
ur í sambúð þeirra. Að lokum
fékk konan nóg af manninum
sem hafði þann leiða ósið að
sitja nakinn við sjónvarpið og
drekka vodka. Brá hún á það ráð
að bera eld að kynfærum hans.
„Ég logaði eins og kyndill. Mér
er fyrirmunað að skilja hví ég
á þessa meðferð skilda,“ sagði
hann eftir að gert hafði verið að
sárum hans.
Yvan Keller var fjörutíu og sex ára garðyrkjumaður. Hann vildi gera vel við kærustu
sína og varð raðmorðingi:
Hlutu friðsælan dauðdaga
Kampavín og kavíar
skötuhjúin nutu munaðar árum saman.
Tour d‘Argent
uppáhaldsveitinga-
staður Yvans Keller.