Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2007, Blaðsíða 15
DV Sport miðvikudagur 29. ágúst 2007 15
Sport
Miðvikudagur 29. ágúst 2007
sport@dv.is
Ole Gunnar er hættur
vegna meiðsla
Fótboltaheimurinn syrgir
dauðsfall Antonios Puerta
LiverpooL komst auðveLdLega í riðLakeppni meistaradeiLdarinnar eftir að Liðið Lagði
touLouse 4–0 í gær. dregið verður í riðLana á fimmtudaginn. bLs. 16.
Íslendingar spila gegn Georgíu-
mönnum í dag í Evrópukeppni lands-
liða í körfuknattleik. Á blaðamanna-
fundi fyrir leikinn var tilkynnt um
styrktarsamning KKÍ og Skeljungs sem
tryggir nægt fjármagn til að halda úti
yngri landsliðum næstu þrjú árin.
Lið Georgíumanna er mjög sterkt
og með því spilar til að mynda Pachul-
ia Zaza sem er leikmaður með Atlanta
Hawks í NBA-deildinni. Íslendingar
koma óhræddir til leiks og ætla sér að
keyra á Georgíumenn og halda dampi
út leikinn ólíkt því sem var gegn Finn-
landi á dögunum. „Við eigum að geta
gert betur en gegn Finnum. En við vor-
um samt að gera ágæta hluti í þeim leik
fyrir utan tvo kafla þar sem þeir voru
með yfirhöndina. Þessi tvö lið, Georg-
ía og Finnland, eru klárlega tvö bestu
liðin í þessari svokölluðu B-deild Evr-
ópu sem mér finnst vera rangnefni
því liðum Evrópu er skipt upp í svæði
í þessari keppni og þessi lið eru eng-
in B-lið frekar en við. Flestir leikmenn
Georgíu eru 23-24 ára og uppistaðan í
liðinu eru leikmenn sem spiluðu í tut-
tugu ára keppni sem var fyrir tveimur
árum og unnu hana með léttum leik.
Úr því liði eru þrír til fjórir aðalmenn-
irnir sem eru mjög efnilegir og bera A-
landslið þeirra upp í dag.
Þeir eru mjög hávaxnir og við mun-
um freista þess að reyna að leggja fyr-
ir þá ákveðnar gildrur í varnaleikn-
um þar sem við munum reyna að láta
þrjá leikmenn, sem eru ekki jafn góðir
skotmenn og aðrir þrír í liðinu, skjóta
á körfuna. Okkar styrkur er vörnin og
ef við náum að vera svolítið agressív-
ir í vörninni náum við kannski þessum
opnu skotum í sókninni sem við þurf-
um til þess stríða þeim í þessum leik,“
segir Sigurður Ingimundarson þjálfari
íslenska landsliðsins.
Styrktarsamningur kynntur
KKÍ og Skeljungur kynntu styrkt-
arsamning sín á milli sem gefur yngri
landsliðum tækifæri á að keppa á al-
þjóðavettvangi en sökum fjárskorts
þurfti KKÍ að draga úr starfsemi á þeim
vettvangi. „Þetta gefur okkur tækifæri á
því að taka upp þráðinn frá því sem frá
var horfið. Nú getum við boðið yngri
landsliðum þann aðbúnað sem til þarf
til þess að geta tekið þátt í Evrópu-
keppnum. Það hjálpar leikmönnum
mikið að spila á alþjóðavettvangi og
þegar leikmenn eru að spila fyrir fram-
an njósnara frá liðum í Evrópu opn-
ast tækifæri fyrir atvinnnumennsku.
Körfubolti er klárlega stærsta íþróttin
í Evrópu á eftir fótbolta og oft eru leik-
ir með yngri landsliðum sýndir í sjón-
varpi á Spáni, Ítalíu og Frakklandi,“
segir Hannes S. Jónsson formaður
KKÍ. vidar@dv.is
Karlalandsliðið í körfuknattleik spilar gegn Georgíu í dag. KKÍ kynnti styrktarsamning við Skeljung:
Styrktarsamningur sem tryggir yngri landsliðin
Auðvelt
Samningurinn undirritaður skrifað var
undir samning milli skeljungs og kkÍ sem
tryggir fjárhag landsliða næstu þrjú árin.
VINNAN TEKIN
FRAM YFIR VAL
markús máni er ekki viss hvort
hann geti einbeitt sér að fullu
með valsmönnum í vetur í dHL-
deildinni.
Hann er í
krefjandi
vinnu hjá
straumi-
Burðarási.
markús var
valinn besti
handbolta-
maður
landsins á lokahófi handknatt-
leiksmanna en hann snéri aftur
heim á Hlíðarenda eftir að hafa
verið atvinnumaður hjá
dusseldorf.
Ekki þarf að taka fram hversu
mikil blóðtaka þetta yrði fyrir
valsmenn en markús var þeim
gríðarlega mikilvægur hlekkur
síðasta vetur.