Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2007, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2007, Blaðsíða 30
miðvikudagur 29. ágúst 200730 Síðast en ekki síst DV Sandkorn n Glæsikerrann sem söngvar- inn snjalli og athafnamaður- inn, Geir Ólafsson, ekur um á götum borgarinnar hefur hlotið verðskuldaða athygli borgarbúa og fjölmiðla- manna. Geir er nýr at- hafnamað- ur í íslensku samfélagi, en hann stofnaði nýverið fyrirtækið Royal Iceland með vini sínum Gísla Guðmundssyni, fyrrum eiganda B&L. Félagarnir munu ætla að efna til blaðamanna- fundar 12. september til að kynna markmið fyrirtækisins. Í greininni á visir.is var sagt að Geir bættist hér með við hóp hamingjusamra Range Rover- eigenda eins og Björgólfs Guð- mundssonar, Jóns Ásgeirs, Hannesar Smárasonar og Þorsteins M.Jónssonar en það er ekki alls kostar rétt. Bíllinn er skráður eign B&L. n Eins og komið hefur fram var fyrirtaka í máli Hildar Helgu Sigurðardóttur gegn Útvarpi Sögu í Héraðsdómi Reykjavík- ur í síð- ustu viku. Arnþrúður Karlsdóttir útvarpsstjóri hefur vísað ásökunum Hildar Helgu á bug og bendir á háa reikninga leigubíla sem Hildur Helga hafi tekið og látið skrifa hjá Útvarpi Sögu. Þeir sem segj- ast þekkja til fullyrða að ástæða þess að Hildur Helga hafi hætt hjá Ríkisútvarpinu á sínum tíma sé sú sama og Arnþrúður ber fyrir sig: Leigubílaferðir á kostn- að vinnuveitanda. n Sigur Rós seldi á dögunum áritað eintak á ebay.com af vín- ylsafni sínu „In a Frozen Sea: A Year with Sigur Rós“ á fimm hundruð og tólf dollara. Ágóði sölunnar rann allur til Saving Iceland. Boð bárustu í í vínyls- afnið alls staðar að úr heiminum en hæsta boðið kom frá Þýska- landi. „In a Frozen Sea“ er held- ur óvenju- leg safnplata en hún inniheld- ur vínylútgáfu af þremur áður útgefnum plötum sveitarinnar; Ágætis byrjun, ( ) og Takk. Þessi uppákoma var að frumkvæði Sigur Rósar-manna. Hver er maðurinn? „Ættaður af Snæfellsnesinu, al- inn upp í Reykjavík og búsettur á Króknum.“ Hver er þín atvinna? „Ég verð framkvæmdastjóri Heil- brigðiseftirlits Norðurlands vestra eftir tvær vikur.“ Hvað drífur þig áfram? „Það er bara gaman að vakna á morgnana.“ Hver eru þín áhugamál? „Sund, veiðar, fiskar og þjóðfé- lagsmál.“ Besta bókin? „Sú bók sem hefur haft mest áhrif á mig er Útlendingurinn eft- ir Albert Camus. Bókin velti upp spurningum hjá mér um líf, dauða og tilgang hlutanna. Ég las hana á unglingsaldri og hafði hún djúp- stæð áhrif á mig.“ Ferðast þú mikið innanlands? „Alveg svakalega mikið. Ég hef komið á alla staði á landinu nema Grímsey en ég hef oft siglt fram hjá henni.“ Hvað gerðir þú í sumarfríinu? „Ég málaði gluggana á húsinu mínu og þurfti að takast á við mikla lofthræðslu. Ég fór í veiðitúr og lagði silungsnet í sjó. Ég skrapp líka til Benidorm.“ Hefur þú búið erlendis? „Já, ég bjó í Svíþjóð með foreldr- um mínum þegar ég var púki. Svo var ég í skiptivinnu í Belfast í nokkra mánuði og þá í framhaldsnámi í Englandi í skólp- og fráveitufræði.“ Hver er þín sérviska? „Ég á það til að fá ákveðna hluti á pirruna og taka þá rækilega fyrir.“ Hvernig er íslensk pólitík í dag? „Hún er nokkuð sérkennileg. Fólk heldur með sínum flokki líkt og um íþróttafélag sé að ræða, án þess að huga að þeim hagsmunum sem eru í húfi. Þetta sést best á því að fólk heldur áfram að kjósa flokka sem grafið hafa undan heilu byggð- unum með óréttlátu kvótakerfi.“ Hversu mikil réttindi finnst þér að samkynhneigðir eiga að hafa? „Samkynhneigðir eiga að njóta sömu réttinda og allir aðrir.“ Hverju viltu breyta? „Það er svo margt. Fiskiveiði- málin eru alltaf ofarlega á lista en þau eru jú ástæðan fyrir því að ég gaf kost á mér í stjórnmál á sínum tíma. Það blasir við að það er hægt að vinna betur að þessum mála- flokki og á mun réttlátari hátt.“ Ef ekki tilvonandi framkvæmd- arstjóri, hvað þá? „Það er svo margt sem ég væri til í að gera. Ég væri til dæmis til í að vera kennari. En það er sama hvað maður gerir, ef maður bara leggur sig fram verður verkefnið skemmti- legt.“ Hvað er fram undan? „Nú er ég á leiðinni norður og ætla að reyna að komast í gæsa- veiði. En það er alveg öruggt að ég tíni ber.“ MAÐUR DAGSINS NÚ GETUR ÞÚ LESIÐ DV Á DV.IS DV er aðgengilegt á dv.is og kostar netáskriftin 1.490 kr. á mánuði Málaði heiMa og vann á lofthræðslunni Sigurjón Þórðarson, fyrrverandi þingmaður. Í dv í gær kom fram að sigurjón reyndi að hafa áhrif á lög um réttindi og staðfesta samvist samkynhneigðra. sigurjón ætlaði þó aðeins að leggja sitt af mörkum í baráttunni. Við mælum með því að Íslendingar haldi áfram að vera duglegir við að sækja íslenskar kvikmyndir í kvik- myndahúsum. Það er hægara sagt en gert fyrir íslenska kvikmynda- gerðarmenn að fá fjármagn og eru myndirnar yfirleitt mjög góðar mið- að við fjárráð. Fjölda íslenskra kvik- mynda er að vænta á næstu mánuð- um og hafa margar góðar komið út síðustu misseri. Höldum áfram að efla íslenska kvikmyndagerð. Handboltavertíðin hefst óformlega um helgina þegar Reykjavíkurmót- ið fer fram. Fyrstu leikir eru í dag og er leikið í Víkinni og í Austurbergi. Það er um að gera að skella sér á mótið því þar spila mörg af bestu liðum landsins um þessar mundir. Bæði í karla- og kvennaflokki. Mikl- ar mannabreytingar hafa orðið hjá flestum liðum og gefst fólki tækifæri til að berja þau augum í fyrsta sinn fyrir mót. Núna getur fólk loksins farið í pool eða snóker án þess að anga eins og öskubakki. Þetta er þrælskemmti- leg iðja og er fólk ekki lengi að komast upp á lagið með að beita kjuðanum. Hægt er að finna fjöl- marga staði á höfuðborgarsvæðinu sem og úti á landi sem bjóða upp á slíka afþreyingu og um að gera að nýta sér hana. Við mælum með... ...REykjavíkuRmótinu í HandBolta ...íSlEnSkum kvikmyndum ...pool og SnókER Í DAG Á MORGUN HINN DAGINN Veðrið +12 5 +15 6 +13 3+9 3 +12 3 +13 4 +13 3 +12 3 +11 5 +15 2 +122 +8 4 +12 3 +12 5 +14 2

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.