Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2007, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2007, Blaðsíða 8
miðvikudagur 29. ágúst 20078 Fréttir DV Agnar Kristinn Hermannsson játaði brot sín frammi fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur. Agnar er ákærður fyrir vopnað rán í verslun 10-11 fyrr í sumar. Hann ógnaði starfsmanni með hnífi. Agnar Kristinn Hermannsson ját- aði í gær að hafa reynt að ræna verslun 10-11 á Dalvegi 21. júní síð- astliðinn. Mál Agnars var þingfest í Hér- aðsdómi Reykjaness í gær. Agnar er ákærður fyrir tilraun til ráns, vopn- aður hnífi í verslun 10-11 21. júní síðastliðinn. Hæstiréttur úrskurð- aði hann í gæsluvarðhald til 12. september fyrir tveimur mánuð- um og hefur Agnar setið í fangelsi síðan þá. Auk þess er Agnar ákærð- ur fyrir þjófnað úr verslun Hag- kaupa í Smáralind 9. maí á þessu ári þar sem hann hafði á brott með sér Playstation 3-leikjatölvu sem kostar 69.900 krónur. Agnar var auk þess stöðvaður af lögreglunni 24. apríl og við eftirgrennslan kom í ljós að hann hafði aldrei öðlast ökuréttindi. Í gæsluvarðhaldi til 12. september Úrskurður Héraðsdóms Reykja- víkur í sumar var felldur úr gildi en hann hafnaði kröfu sóknaraðila málsins um að maðurinn skyldi sæta gæsluvarðhaldi. Málinu var í kjöl- farið skotið til Hæstaréttar. Í dómi hans segir að fram hafi komið sterk- ur grunur um að maðurinn hafi gerst sekur um tilraun til vopnaðs ráns. Slíkar ránstilraunir geta varðað allt að tíu ára fangelsi og eins og atvikum málsins var háttað var nauðsynlegt vegna almannahagsmuna að hann sæti í gæsluvarðhaldi. Agnar er ákærður fyrir að hafa ráðist inn í verslun 10-11 við Dal- veg í Kópavogi. Í úrskurði Hæstarétt- ar frá því fyrr í sumar segir að Agnar hafi komið aftan að afgreiðslustúlku verslunarinnar sem var að raða vör- um í hillu. Otaði hann hnífi að and- liti hennar og bað hana um að opna peningaskáp verslunarinnar sem var baka til í versluninni til að komast yfir uppgjörið. Agnar var handtekinn daginn eftir ránstilraunina og viður- kenndi hann verknaðinn fyrir lög- reglu. Rauf skilorð Með ránstilrauninni rauf Agn- ar skilorð. Hann hafði tvisvar áður verið dæmdur til fangavistar, síðast í nóvember árið 2005. Agnar bar því við að hann hafi skuldað ónefnd- um mönnum peninga og hann hafi reynt ránið nauðbeygður vegna hót- ana frá handrukkurum. Agnar játaði á sig ákærurnar fyr- ir Héraðsdómi Reykjaness í gær og mun aðalmeðferð málsins fara fram á föstudaginn. Héraðsdómur hef- ur þrjár vikur til að dæma í málinu en vegna þess að Agnar hefur setið í gæsluvarðhaldi verður dómi í máli hans líklega hraðað og er hans að vænta áður en gæsluvarðhaldsúr- skurðurinn rennur út 12. septemb- er. „Þetta var í raun eins einfalt og það getur orðið. Dómarinn vildi engan framburð og það var einungis spurt út í ákæruna. Hann játaði brot sín skýlaust,“ segir Bjarni Hauksson, verjandi Agnars. EinAR ÞóR SiguRðSSon blaðamaður skrifar einar@dv.is JÁTAÐI Á SIG VOPNAÐ RÁN „Þetta var í raun eins einfalt og það getur orðið. Dómarinn vildi engan framburð og það var einungis spurt út í ákæruna. Hann ját- aði brot sín skýlaust.“ 10-11 á Dalvegi agnar er ákærður fyrir að hafa ruðst inn í verslunina vopnaður hnífi og hótað afgreiðslustúlku. 129.900-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.