Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2007, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2007, Blaðsíða 9
DV Fréttir miðvikudagur 29. ágúst 2007 9 Jóhanna Sigurðardóttir vill auka félagslegan þátt íbúðalánakerfisins. Hún hefur falið nýrri nefnd að endur- skoða íbúðalánakerfið. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna, tekur vel í hugmyndir Jóhönnu en efast um að einhugur ríki innan ríkisstjórnarinnar um þær. „Ég tel að það þurfi að vinna hratt þar sem nú ríkir neyðarástand,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir félagsmála- ráðherra. Hún hefur skipað nefnd um endurskoðun á íbúðalánakerf- inu og er nefndinni ætlaður óvenju skammur tími til að skila áliti sínu, eða um níu vikur. Flestir í húsnæðisvanda Hún segir að frá árinu 2003, þeg- ar viðbótarlánin voru lögð niður, hafi þeir sem minna hafa á milli handanna verið í erfiðri stöðu. „Sá hópur sem hvergi fær fyrirgreiðslu í húsnæðismál- um hefur stækkað,“ segir hún. „Stærsti hluti þeirra sem koma til mín í viðtöl á í húsnæðisvandræðum. Venjulegt fólk ræður ekki við kjör á almennum leigu- markaði þar sem tveggja til þriggja herbergja íbúðir eru leigðar út á yfir hundrað þúsund krónur.“ Verkefni nefndarinnar er að efla fé- lagslegan þátt húsnæðislánakerfisins. Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, segist fagna þessari stefnu Jóhönnu. Hann bendir á að VG hafi lengi sagt að tekjulágt fólk eigi erfið- ara en aðrir með að komast í tryggt húsnæði. Óvissa um Sjálfstæðisflokk Þó að ríkisstjórnin standi að baki þessari vinnu að nafninu til seg- ist Steingrímur efast um að eining sé innan hennar enda Sjálfstæðis- flokkurinn ekki þekktur fyrir að fara í þessa átt. Hann telur líklegt að Jó- hanna muni eiga erfitt með að fá samþykktar á þingi breytingar sem auka umfang félagslega kerfisins í húsnæðismálum. Því megi setja spurningarmerki við hverju hún fær áorkað. Einnig hnýtur hann um að nýlega stóð Jóhanna fyrir því að láns- hlutfall yrði lækkað. Steingrímur ítrekar þó að þess- ar áherslur séu í takt við stefnu VG. Hann segist gjarnan vilja taka þátt í vinnu sem þessari og þykir miður að ekki hafi verið leitað til hans flokks- manna í ferlinu. NEYÐ Á ÍBÚÐALÁNAMARKAÐI Erla HlynSdÓttir blaðamaður skrifar: erla@dv.is Íbúðabyggð í reykjavík Jóhanna sigurðardóttir félagsmálaráðherra segir þann hóp sem hvergi fær fyrirgreiðslu hafa stækkað. aðgerða er þörf Félagsmálaráðherra segir flesta sem til sín leita eiga í húsnæðisvandræðum. 129.900-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.