Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2007, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2007, Blaðsíða 6
miðvikudagur 29. ágúst 20076 Fréttir DV Lögmenn Olíuverslunar Íslands hf og Kers hf reyndu í gær að fá vísað frá bótakröfu útgerðarinnar Dala-Rafns ehf vegna ólögmæts samráðs um eldsneytisverð. Héldu þeir því fram að ekki væru efnislegar forsendur til að taka málið fyrir. Dala-Rafn ákvað að höfða mál í kjölfar úrskurðar Sam- keppniseftirlitsins um að olíufélögin hefðu gerst sek um ólöglegt samráð. Stóra olíumálið, eins og það er oft kallað, er þó enn í fullum gangi því olíufélögin undu ekki þeim úrskurði. Í DV í gær var sagt frá deilum lögmanna olíufélaganna og Sam- keppniseftirlitsins, annars vegar, og lögmanna olíufélaganna hins vegar um matsbeiðnir í tengslum við mál olíufélaganna gegn þeim fyrrnefndu vegna óréttmætra ásakana um ólög- legt samráð. Ágreiningur stóð um þær aðferðir og forsendur sem not- aðar voru til að meta ávinning félag- anna af samráði. Samkeppniseftirlitið lét upphaf- lega gera matsbeiðnir en olíufélög- in ákváðu að láta gera eigin mats- greinar sem liggja til grundvallar í máli þeirra nú. Samkvæmt nýju mati höfðu olíufélögin lítinn sem eng- an ávinning af samráðinu. Það telur Samkeppniseftirlitið fjarstæðukennt og segir matið ómarktækt þar sem það hafi verið unnið samkvæmt leið- beiningum olíufélaganna. Þetta mál var tekið fyrir degi áður og í sama húsi og mál Dala-Rafns gegn olíufé- lögunum. Vanreifað og óljóst Eyvindur Sveinn Sólnes, lögmað- ur Olíuverslunarinnar, gagnrýndi forsendur bótakröfu útgerðarinnar í gær og sagði málið vanreifað. Hann vakti athygli á því að ef um samráð hefði verið að ræða var það aðeins í einstökum tilvikum og ekki á nokk- urn hátt ólögmætt. Jóhannes Bjarni Björnsson, hæstaréttarlögmaður og lögmaður Dala-Rafns, furðaði sig á því að málið væri sagt vanreifað og sagði það und- arlegt ef eitthvað væri óljóst í augum lögmannanna. Jóhannes benti á að málið tengdist einni stærstu rann- sókn sem Samkeppniseftirlitið hefði staðið fyrir og fátt óskýrt sem þar hefði komið í ljós. „Við höfum aldrei staðið frammi fyrir eins stórfelldu og yfirgripsmiklu samráði,“ segir Jó- hannes. Hann segir umbjóðanda sinn hafa gengið á milli olíufélaga í leit að besta eldsneytisverðinu en alls staðar fengið sama tilboðið. Lögmenn olíufélaganna bentu á að erfitt væri að sanna að Dala- Rafn hefði orðið fyrir tjóni af völd- um þessa. Jóhannes vísaði þá til eldra máls þar sem dæmt var fyrir brot á samkeppnislögum og í takt við hversu erfið sönnunarbyrðin væri í slíkum málum hefði verið slakað á henni. Hann tók líkamsárás sem dæmi um atvik þar sem mun ein- faldara væri að sýna fram á skaða. Skeljungur sat hjá Athygli vekur að Skeljungur hf stendur ekki að frávísunarbeiðninni heldur aðeins Olíuverslunin og Ker. Hörður Felix Harðarson, hæstarétt- arlögmaður og lögmaður Skeljungs, segir málflutning olíufélaganna samhljóma. Það hafi hins vegar verið sjálfstæð ákvörðun hjá hverju félagi hvort gripið væri til varna á þessum forsendum, en bótakrafa Dala-Rafns er gegn öllum félögunum þremur. Í gær var hins vegar aðeins frávísun- arbeiðnin tekin fyrir. Hörður segist vona að málinu verði vísað frá en þar sem hann hafi vitað að þessi beiðni kæmi frá hinum félögunum hefði hann ákveðið að sitja hjá. „Málið er þannig vaxið að engin gögn hafa komið fram sem benda til þess að samráð hafi verið viðhaft og ekki hefur verið sýnt fram á að tjón hafi orðið. Því er eðlilegt að krefjast sýknu,“ segir Hörður og vonast til þess að málinu ljúki sem fyrst í eitt skipti fyrir öll. Friðrik Jón Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands ís- lenskra útvegsmanna, LÍÚ, segir sambandið hafa látið vinna álit um réttarstöðu útgerðarfyrirtækja gagn- vart olíufélögunum eftir að ýmis mál komu upp á yfirborðið í tengslum við stóra olíumálið svokallaða. Kom- ist var að þeirri niðurstöðu að bóta- skylda væri fyrir hendi og að LÍÚ hefði stutt við bakið á þeim útgerðum sem ákváðu að fara í mál við olíufélögin. Það hafi þó verið sjálfstæð ákvörðun hverrar útgerðar fyrir sig hvort hún ákvað að fara með málið það langt. 15 þúsund í bætur Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segir samtök- in hafa reynt að sýna fram á ólögmætt samráð olíufélaganna og aðstoðað Sigurð Hreinsson, íbúa á Húsavík, við bótakröfu á hendur olíufélögun- um. Jóhannes segir mál einstaklinga og fyrirtækja gegn þessum félögum sambærilega að flestu leyti nema að um meiri viðskipti er að ræða hjá fyrirtækjunum og því hærri tölur. „Þarna var um að ræða samráð sem bitnaði á almenningi,“ segir Jóhann- es og bendir á að mál einstakling- anna séu ekki síður mikilvæg. Þar sem Neytendasamtökin eru hagsmunafélag neytenda var ákveð- ið að standa straum af einu prófmáli og í því skyni var auglýst eftir fólki sem hefði undir höndum gögn er sönnuðu viðskipti við olíufélögin. Mál Sigurðar Hreinssonar varð síð- an fyrir valinu en hann hafði átt við- skipti við Ker. „Það mál vannst fyrir Héraðsdómi. Hann fékk ekki mikl- ar bætur en það vannst, og það er það sem skiptir máli,“ segir Jóhann- es. Bætur Sigurðar numu 15 þúsund krónum. Einnig þurfti Ker að greiða honum 500 þúsund krónur í máls- kostnað. Fyrirtækið undi því ekki og áfrýjaði til Hæstaréttar þar sem málið er nú til meðferðar. Hóplögsóknir til skoðunar Að mati Jóhannesar vantar sár- lega lög hér á landi sem heimila hópmálsóknir. Vegna þessa hafi þurft að byrja á að fara með eitt próf- mál í gegnum dóm. Fyrir um ári sendi Neytendastofan dómsmála- ráðherra bréf þar sem óskað var eft- ir lagabreytingu sem heimilaði hóp- málsókn. „Okkur vantar sárlega slík lög,“ segir Jóhannes og þykir undar- legt að mál taki þetta langan tíma að fara í gegnum skoðun. Síðast þegar hann frétti hafði málið verið sent til umsagnar réttarfarsnefndar. Hann bendir á að ef lög um hópmálsókn væru fyrir hendi gætu Neytenda- samtökin höfðað mál fyrir hönd allra þeirra sem til þeirra hefðu leit- að vegna brota olíufélaganna. Hann bendir á að hóplögsóknir séu þegar heimilar á tveimur Norðurlandanna og á dagskránni hjá öðrum tveimur. Hjá Dala-Rafni fengust þær upp- lýsingar að ekkert yrði rætt við fjöl- miðla um málið. OLÍUFÉLÖGIN REYNA AÐ KOMAST HJÁ BÓTAGREIÐSLUM Olíufélögin vilja að bótakröfu vegna samráðs verði vísað frá. Út- gerðarfélagið Dala-Rafn stendur að kröfunni. Formaður Neyt- endasamtakanna segir mál fyrirtækja og einstaklinga gegn olíu- félögunum sambærileg. Hann vill að sett verði lög sem heimila hópmálsókn. Bætur Sigurðar numu 15 þúsund krónum. Einnig þurfti Ker að greiða honum 500 þúsund krónur í máls- kostnað. Fyrirtækið undi því ekki og áfrýj- aði til Hæstaréttar þar sem málið er nú til með- ferðar. Jóhannes Gunnarsson Ekkert svar hefur borist við beiðni Neytendasamtakanna til dómsmálaráðherra um heimild til hópmálsóknar. Erla HlynSdóttir blaðamaður skrifar: erla@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.