Félagsbréf - 01.12.1958, Page 51
PÉLAGSBRÉF
49
og bælt þær niður, livar og livenær sem þeim sýnist og í livert sinn
virðist ófriðarhættan nálgast.
Fyrir nákvæmlega einu ári, í byrjun desember 1956, lýsti Eisen-
bower því yfir í tilefni ungversku byltingarinnar, að ekki væri „hægt
að mæla því bót, að smáþjóð réðist á stórþjóð“. Hefði einn frægur
fyrirrennari Eisenbowers, Georg Wasliington að nafni, verið sömu
skoðunar, þá væru Bandaríkin ensk nýlenda enn þann dag í dag.
Vér getum hins vegar ekki mælt því bót, að frjáls stórþjóð veiti
smáþjóð, sem á er ráðizt, enga lijálp -—• ekki vegna þess, að svo vill
til, að vér tilheyrum þessari smáþjóð, heldur af því að vér álítum,
að með slíkri breytni sé aðstaða árásaraðilans efld og heimsfriðnum
stefnt í voða.
íslendingar kannast vel viiV ungverska skáldið Faludy, síðan liann kom hingað
til lands í fyrra á veguin Frjálsrar menningar, á árs afinæli byltingarinnar í Ung-
verjalandi. Hélt hann þá ræðu á fjölmennum fundi í Gamla híói. Grein þessi birtist
í nóvemhcrhefti Forum 1957, tímariti Frálsrar menningar í Austurríki.
Úr hróíí til Itinfín „til afvopnunar oq ailijódleqrar
samvinnu" í Stoklihólmi lti. júlí s.l.
.. . Skelfileg morð, fangelsanir og ofsóknir eiga sér enn stað í Ungverjalandi. En
síðustu glæpirnir og harinasögurnar mega ekki skyggja á hörmungar þeirra þús-
unda, sem nú liafa setið meira en ár í fangelsi, cn þeirra á meðal eru merkir rit-
höfundar og vísindamenn, svo sem Gyula Hay, Istvan Biho, Kosary prófessor (lát-
inn laus og handtekinn aftur) og hinn ágæti skáldsagnahöfundur Tibor Dcry, sem
var einn af forvígismönnum friðarhreyfingarinnar á meðan hann trúði á einlægni
hennar. Þeir menn, sem nú koma saman í Stokkhólmi, mættu gjarna minnast setu
hans á þinginu í þessari sömu horg árið 1954, þegar hann gerði þá skyssu að treysta
því, að hinir nýju leiðtogar Sovét-Rússlands meintu það, sem þeir sögðu, er þeir
mæltu með friðsamlegri samhúð, löglegum aðferðum og lýðræði.
Varla munu þeir, sem enn vonast eftir heiðarlegu sainkomulagi milli austurs
og vesturs, láta undir höfuð leggjast að hefja upp raddir sínar til varnar hinni
undirokuðu ungversku þjóð.
Yðar einlægur
Paul Ignotus,
formaður Rithöfundasamhands Ungverja í útlöndum,
Lundúnum.
(Manchester Guardian 14. júlí 1958).