Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2007, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2007, Blaðsíða 6
fimmtudagur 11. október 20076 Fréttir DV FRAMTÍÐ MEIRIHLUTANS VELTUR Á BIRNI INGA Áhrifafólk í flokkum gamla Reykjavíkurlistans hefur þegar átt óformlegar viðræður um að endur- vekja R-listann. Gjá hefur myndast milli Sjálfstæðis- flokks og Framsóknar- flokks í borginni. Verði R- listinn endurvakinn á Björn Ingi möguleika á æðstu metorðum. Á meðan á Sjálfstæðisflokkurinn möguleika á samstarfi með Margréti Sverrisdóttur. Margrét tilheyrir nú Ís- landshreyfingunni og óljóst er hvort viðlíka sam- starf getur gengið. „Hvernig getur umræðan ver- ið stjórnlaus, spyr ég. Og hver á að stjórna þeirri umræðu þannig að hún sé sjálfstæðis- mönnum þóknanleg?“ Áhrifamenn í flokkum gamla Reykja- víkurlistans áttu óformlegar sam- ræður í gær um endurvakningu R- listans. Í ræðum sínum á aukafundi um Reykjavik Energy Invest í borgar- stjórn í gær opnaði Björn Ingi á sam- starf við Samfylkinguna. Gjá hefur myndast milli Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn. Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæð- isflokksins er í heljargreipum af ótta við það að Birni Inga snúist hugur og gangi í það að endurreisa Reykja- víkurlistann. Björn Ingi hefur nokk- ur spil á hendi. Hann getur unnið áfram í meirihluta og komist þannig til frekari metorða innan Framsókn- arflokksins. Hann á líka möguleika á að bíða algjöran pólitískan ósigur. Á sama tíma getur Sjálfstæðis- flokkurinn, með sinn sterka hlut úr síðustu kosningum, náð Margréti Sverrisdóttur á sitt band og hald- ið ótrauður áfram. Margrét tilheyr- ir nú Íslandshreyfingunni. Hún sit- ur í borgarstjórn á meðan Ólafur F. Magnússon er í leyfi. Talið er að Ól- afur sé hallur undir málstað Íslands- hreyfingarinnar. Auðlindir á brunaútsölu Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, sagði Samfylkinguna vera tilbúna til bandalags með öllum þeim sem vildu stöðva þá brunaútsölu sem nú færi fram úr bakherbergjum Sjálf- stæðisflokksins. „Þarna eiga orku- lindir þjóðarinnar að fá að fljóta með í kaupbæti,“ sagði Dagur í fyrstu ræðu sinni á sérstökum aukafundi í borgarstjórn, sem haldinn var í gær, vegna sameiningar fyrirtækjanna Geysis Green Energy og Reykjavik Energy Invest. Sigrún Elsa Smáradóttir, Samfylk- ingu, sagði á fundinum Framsóknar- flokkinn og Samfylkinguna samein- ast í því viðhorfi að ekki eigi að selja hlut Reykjavíkurborgar í hinu sam- einaða fyrirtæki strax. Strax í upphafi fundar voru áhorf- endapallar í fundarsal borgarstjórnar þéttsetnir. Oft var ýmist klappað eða hlegið og þurfti forseti borgarstjórn- ar, Hanna Birna Kristjánsdóttir, ítrek- að að krefjast þess að fólk hefði hljótt um sig. Spurningar frá umboðsmanni Svandís Svavarsdóttir, Vinstri- hreyfingunni - grænu framboði, upp- lýsti um það að dómstjóri Héraðs- dóms Reykjavíkur hefði fallist á erindi hennar um að fá fundinn, þar sem samruninn var ákveðinn, dæmdan ólögmætan. „Þess er því að vænta að stefna berist innan skamms,“ sagði Svandís. Það er Ragnar Hall hæsta- réttarlögmaður sem rekur málið fyrir Svandísi. Hún upplýsti einnig um það á fundinum að umboðsmaður Alþing- is hefði sent öllum borgarfulltrúum bréf þar sem hann krefst svara við tólf spurningum varðandi samruna fyrirtækjanna. Bréfið er stílað á borg- SIgtryggur ArI jóhAnnSSon blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is Svandís og Dagur dagur b. eggertsson hallmælti aldrei birni inga Hrafnssyni og framsóknar- mönnum í ræðum sínum. Á pöllunum var rætt um daður Samfylkingar við framsóknarflokk. Allt að vinna gjá hefur myndast á milli borgarstjórans Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar og björns inga Hrafnssonar í viðhorfum þeirra til sölunnar á rei. dagur b. eggertsson segir meirihlutann riða til falls.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.