Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2007, Síða 8
fimmtudagur 11. október 20078 Fréttir DV
Sífellt fleiri flóttamenn sem
flýja ástandið í Írak fá hvergi sama-
stað. Talið er að um hundrað þús-
und manns flýi stríðsátök í landinu í
hverjum mánuði. Ellefu héraðsstjór-
ar í Írak hafa tekið það til bragðs að
takmarka aðgang flóttamanna sem
flýja ofbeldi annars staðar í landinu
vegna skorts á aðbúnaði.
Andrew Harper, yfirmaður Flótta-
mannahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna segir þetta ástand skapa mikla
ólgu í landinu en um 2,2 milljónir
manna vantar nú viðvarandi sama-
stað í landinu. Að auki hafa aðrar 2,2
milljónir manna flúið landið til ná-
grannalandanna síðan Bandaríkja-
menn leiddu innrás inn í Írak árið
2003. Ellefu af átján héraðsstjórum í
landinu hafa í auknum mæli annað-
hvort bannað fólki að koma inn í hér-
aðið eða takmarkað möguleika þess
til að lifa sómasamlegu lífi með því
neita því um mat og menntun.
„Það er engin lausn í sjónmáli.
Möguleikar Íraka á öruggu umhverfi
eru hverfandi og hvert sem þeir fara
er fyrir mikill fólksfjöldi og erfið-
ar aðstæður,“ segir Andrew Harper.
Harper segir þetta stærsta verkefni
Sameinuðu þjóðanna eins og staðan
er núna. Í Diyala-héraði eru þúsund-
ir fjölskyldna sem hjálparstarfsmenn
hafa ekki getað aðstoðað vegna átaka.
Landamæri annarra landa eru flest
að lokast fyrir frekari flóttamanna-
straumi þar sem þau hafa ekki getu
til þess að taka við fleiri flóttamönn-
um. Hér fyrir ofan má sjá hversu
margir Írakar hafa fengið hæli í ná-
grannalöndunum.
vidar@dv.is
Smíða ekki kjarnasprengju
Vladimír Pútín, forseti Rússlands,
sagði í gær, eftir fund með Nicol-
as Sarkozy Frakklandsforseta, að
Rússar hefðu engar upplýsingar
um að Íranar væru að koma sér
upp kjarnorkuvopnum. Forset-
arnir ræddu málefni Írans á fundi
sínum og sagði Pútín að kjarnorku-
áætlun Írana yrði að vera gagnsæ
svo enginn þyrfti að óttast að þeir
kæmu sér upp kjarnorkuvopnum.
Tilgangur Sarkozys með heim-
sókninni er meðal annars að bæta
samskipti Frakka og Rússa eftir að
hann sakaði þá síðarnefndu um að
flækja ýmis mál á alþjóðavettvangi.
Slagsmál á sendiráðslóð
Til átaka kom við kínverska sendi-
ráðið í Nýju-Delí á Indlandi í gær
þegar um 40 manns frá Tíbet efndu
til mótmæla þar. Búddískir munk-
ar og nunnur auk tíbeskra ung-
menna fóru inn á lóð sendiráðsins.
Starfsmenn sendiráðsins brugðust
ókvæða við og hófust þegar handa
við að koma fólkinu út af sendi-
ráðslóðinni. Þá kom til handalög-
mála og börðu lögreglumenn og
sendiráðsstarfsmenn fólkið sem
hafði farið inn á lóðina í leyfis-
leysi. Mótmælendur kröfðust þess
að Kínverjar hættu að skipta sér af
innbyrðismálum búddista.
Ömmustelpa látin ræna
Bandarísk amma hefur verið ákærð fyrir að láta fjögurra ára gamalt
barnabarn sitt hjálpa sér við búðahnupl í Marylandríki í Bandaríkjunum.
Öryggisverðir sáu á eftirlitsmyndavélum þar sem amman lét fjögurra ára
gamla stúlkuna setja margvíslega hluti í dúkkuvagn sinn. Þegar konan
reyndi að fara út úr búðinni með varninginn var hún stöðvuð. Konan
hefur verið ákærð fyrir búðahnupl og einnig fyrir að hafa misnotað sér
sakleysi og traust ungu stúlkunnar. Talið er að stúlkan hafi haldið að um
einhvers konar leik væri að ræða.
Ekki hEfnd hEldur réttlæti
Neyðarástand er fram undan í Írak ef ekkert verður að gert:
hvErgi Skjól
fyrir flóttamEnn
Flóttamenn í vanda Sífellt
fleiri flóttamenn lenda í vanda
og finna sér ekki samastað.
„Við komum ekki í veg fyrir glæpi
með blóðsúthellingum eða með rík-
isrekinni hefndarstefnu heldur með
réttlæti,“ sagði José Sócrates, forsæt-
isráðherra Portúgals, við setningu
ráðstefnunnar Evrópa gegn dauða-
refsingum í Lissabon, höfuðborg
Portúgals. Þar voru samankomn-
ir fulltrúar fjölmargra Evrópuríkja
til að vekja fólk til umhugsunar um
dauðarefsingar og berjast gegn því
að þær yrðu teknar upp á ný.
Pólverjar á móti
Pólverjar settu sig einir ESB-
ríkja á móti Evrópudeginum gegn
dauðarefsingum sem haldinn var í
fyrsta skipti í gær. Tilgangurinn með
deginum er að berjast gegn dauða-
refsingum og hvetja til þess að þau
ríki sem nú þegar heimila eða beita
dauðarefsingum hætti því.
Til stóð að Evrópudagurinn gegn
dauðarefsingum, sem er angi af al-
þjóðadeginum gegn dauðarefsing-
um sem haldinn var í fimmta skipti
í gær, yrði haldinn á vegum Evrópu-
sambandsins. Ekkert varð þó af því
þar sem Pólverjar settu sig upp á
móti því. Andstaða Pólverja dugði
þó ekki til að koma í veg fyrir að
Evrópudagurinn gegn dauðarefs-
ingum yrði haldinn. Hún varð þó til
þess að dagurinn var haldinn á veg-
um Evrópuráðsins en ekki Evrópu-
sambandsins. Evrópuráðið er vett-
vangur 47 Evrópuríkja til að vinna
að mannréttindum.
Dauðarefsingar og líknardauði
Ein af meginreglum Evrópusam-
bandsins hefur verið sú að dauða-
refsingar eru bannaðar í aðildar-
ríkjum þess. Þannig hefur það verið
árum saman og þurfa öll aðildar-
ríki sambandsins að fylgja þessari
reglu. Þessu hafa pólsk stjórnvöld
sett sig upp á móti. Þarlendir ráða-
menn vilja taka upp dauðarefsingar.
Á síðasta ári kallaði pólski forsetinn,
Lech Kaczynski, eftir því að Evrópu-
sambandið heimilaði dauðarefs-
ingar á ný. Því var fálega tekið.
Andstaða Pólverja við Evrópu-
daginn gegn dauðarefsingum mark-
ast þó ekki aðeins af vilja þeirra til
að taka upp dauðarefsingar. Þeir
voru ekki síður ósáttir við að dag-
urinn væri ekki notaður til að berj-
ast gegn fóstureyðingum og líknar-
drápi. Pólski dómsmálaráðherrann
Andrzej Duda sagði í síðasta mán-
uði að ef Evrópusambandið ætlaði
að styðja daginn gegn dauðarefs-
ingum ætti það að gera slíkt á breið-
Dauðarefsingar má aldrei taka upp aftur þar sem þær hafa verið bannaðar, sagði Terry Davis, framkvæmda-
stjóri Evrópuráðsins, á fyrsta Evrópudeginum gegn dauðarefsingum. Öll aðildarríki Evrópusambandsins nema
eitt studdu að efnt væri til dagsins. Pólverjar sem vilja taka upp dauðarefsingar settu sig upp á móti deginum.
„Við verðum að ræða
við fólk og sýna því
fram á hvers vegna
dauðarefsing er röng
aðferð, hvers vegna
hún var gerð útlæg og
hvers vegna við eigum
að sjá til þess að svo
verði áfram.“
Dauðarefsingum mótmælt
andstæðingar dauðarefsinga söfnuðust
saman á bastillutorginu í París í gær til
að mótmæla dauðarefsingum í Íran.
Íraskir
flóttamenn
sýrland 1,4 milljónir
Jórdanía 750 þúsund
egyptaland 100 þúsund
Íran 54 þúsund
líbanon 40 þúsund
tyrkland 10 þúsund
Án samastaðar 2,25 milljónir