Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2007, Qupperneq 18
fimmtudagur 11. október 200718 Sport DV
ÍÞRÓTTAMOLAR
Fram heFur haFt samband við
Þorvald
Þjálfaramál úrvalsdeildarliðs fram í
knattspyrnu hafa verið í brennidepli að
undanförnu, eftir að ólafur Þórðarson
var látinn taka
pokann sinn.
brynjar
Jóhannesson,
framkvæmda-
stjóri fram
fótboltafélags,
sagði í gær að
málin myndu
skýrast í vikunni.
„Það er ekkert
komið á hreint ennþá. Við erum með
menn í sigtinu og erum að fara yfir
hlutina,“ sagði brynjar. eftir brotthvarf
ólafs frá fram fór af stað orðrómur um
að fram hafi sett sig í samband við
Jesper tollefsen, þjálfara Leiknis
reykjavíkur. brynjar sagði að það væri
ekkert hæft í því. Hins vegar hafa
framarar sett sig í samband við Þorvald
Örlygsson, sem þjálfaði fjarðabyggð á
síðasta tímabili. Þorvaldur sagði í
samtali við dV í gær að hans mál
myndu skýrast
um helgina. „Ég
mun skoða mín
mál um helgina.
Það hefur verið
haft samband við
mig frá fram en
ég er ekki búinn
að hitta þá. Ég
reikna með að
ræða við þá um
helgina,“ sagði Þorvaldur. „Ég hef ekki
rætt við nein önnur lið. Ég var að spá í
hvort ég ætti að vera áfram fyrir austan
og á meðan ræddi ég ekki við önnur lið.
Það kemur ýmislegt til greina með hvað
ég muni gera,“ bætti Þorvaldur við.
ólafur Þórðarson er staddur erlendis og
sagði í gær að ekkert væri komið á
hreint í hans málum. Nokkur lið hafa
sett sig í samband við ólaf en ekkert
verður frágengið fyrr en hann kemur
aftur til Íslands. Næsti þjálfari fram
verður níundi þjálfari liðsins frá árinu
2000. einu þjálfararnir sem hafa stýrt
liðinu í meira en eitt ár eru kristinn r.
Jónsson og ólafur Helgi kristjánsson.
Jónas Guðni opinn Fyrir öllu
Jónas guðni Sævarsson fyrirliði
keflavíkur hefur verið orðaður við
brottför frá liðinu. Samningur hans
rennur út eftir næsta tímabil en stóru
liðin hér á landi hafa öll komið með
fyrirspurnir til keflavíkur sem hefur
verið vísaðar frá. „málið er það að ég hef
ekkert heyrt í neinum en það eru
einhver lið sem hafa haft samband við
keflavík og
spurst fyrir um
mig, hvort þeir
mættu tala við
mig. keflavík
hefur alltaf vísað
því á bug og ég
hef ekkert fengið
að ræða þau mál.
eins og staðan er
í dag þá er ég
opinn fyrir öllu og maður er tilbúinn að
skoða ýmislegt. en eins og staðan er í
dag þá hef ég ekki fengið að ræða við
neinn. Þetta er bara í höndunum hjá
stjórninni.“
kristján guðmundsson þjálfari
keflavíkur verður áfram með liðið en
hann samdi nýverið við liðið til þriggja
ára. Þá er líklegt að guðmundur Viðar
mete fari ekki erlendis en blikur voru á
lofti að það gæti gerst. „Hallgrímur
Jónasson er kominn heim frá belgíu,
hann fékk ekki samningstilboð. Þannig
þetta er allt í biðstöðu. Það er ekki alveg
útséð með Símun. Hann er bara á láni
og það hefur ekki borist neitt
kauptilboð í hann þannig hann gæti vel
komið aftur
heim. Þá erum
við í raun bara
búnir að missa
tvo leikmenn
þannig við erum
með sterkt lið ef
við höldum
okkar
mannskap. ef við
gerum það og
byggjum ofan á
það sem kristján hefur verið að gera
hér undanfarin þrjú ár þannig það er
ekkert nema spennandi tímar
frammundan eins og staðan er í dag.
en við erum enn bara í október og það
eru einhverjir átta mánuðir í mót
þannig það getur margt gerst á þeim
tíma,“ sagði Jónas sem myndi sóma sér
í hvaða liði sem er enda frábær
fótboltamaður.
Tveir nýliðar í A-landsliði kvenna
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta er á leið á æfingamót og hópurinn var valinn í gær:
Júlíus Jónasson, landsliðsþjálf-
ari kvenna í handbolta, hefur valið
16 manna hóp fyrir æfingamót sem
fram fer í Hollandi dagana 17.-21.
október. Tveir nýliðar eru í lands-
liðinu, þær Sara Sigurðardóttir og
Þórey Rósa Stefánsdóttir, leikmenn
Fram.
Rakel Dögg Bragadóttir er eina
Stjörnustúlkan í landsliðinu. Elísa-
bet Gunnarsdóttir á við meiðsli að
stríða og Sólveig Lára Kjærnested
gefur ekki kost á sér vegna anna í
námi.
Þrjár reynslumiklar landsliðs-
konur eru ófrískar, þær Ágústa
Björnsdóttir og systurnar Drífa og
Hrafnhildur Skúladætur. Þá gefur
Guðbjörg Guðmannsdóttir ekki kost
á sér af persónulegum ástæðum.
Berglind Íris Hansdóttir, Val, og
Íris Björk Símonardóttir, Gróttu, eru
markverðir landsliðsins og Júlíus
landsliðsþjálfari segir að úrvalið af
íslenskum markvörðum sé af skorn-
um skammti.
„Það eru margir erlendir leik-
menn í marki í deildinni og ég tel
þær tvær vera bestu markmennina.
Þó að haustið hjá Írisi hafi verið að-
eins erfiðara en áður tel ég þær vera
bestu markverðina eins og staðan er,“
segir Júlíus.
Ísland spilar fjóra leiki á mótinu
í Hollandi. 18. október mætir Ísland
heimamönnum, daginn eftir eru
það Japanir sem mæta Íslending-
um, 20. október mætir Ísland Spáni
og sunnudaginn 21. október er leikið
um sæti.
Æfingamótið í Hollandi er liður í
undirbúningi landsliðsins fyrir und-
ankeppni EM sem fram fer í Litháen
í næsta mánuði. dagur@dv.is
nýliði Þórey rósa Stefánsdóttir,
leikmaður fram, er annar tveggja nýliða í
landsliðshópnum.
a-landslið kvenna:
markmenn
berglind Íris Hansdóttir val
Íris björk Símonardóttir Gróttu
aðrir leikmenn
anna Úrsúla guðmundsdóttir Gróttu
eva margrét kristinsdóttir Gróttu
arna Sif Pálsdóttir hK
auður Jónsdóttir hK
rut Jónsdóttir hK
Ásta birna gunnarsdóttir Fram
Sara Sigurðardóttir Fram
Sigurbjörg Jóhannsdóttir Fram
Þórey rósa Stefánsdóttir Fram
dagný Skúladóttir val
Hildigunnur einarsdóttir val
ragnhildur guðmundsdóttir Fh
rakel dögg bragadóttir stjörnunni
Hanna g. Stefánsdóttir haukum
n1-deild kvenna
Staðan
Lið L u J t m St
1. fram 5 4 1 0 139:96 9
2. Valur 4 4 0 0 109:68 8
3. Stjarnan 4 3 1 0 114:64 7
4. grótta 4 3 0 1 97:77 6
5. Haukar 4 2 0 2 108:87 4
6. fylkir 4 1 0 3 81:101 2
7. Hk 5 1 0 4 104:134 2
8. fH 5 1 0 4 104:143 2
9. akureyri 5 0 0 5 79:165 0
Stjarnan gerði góða ferð á Ásvelli í
Hafnarfirði í gær og lagði Hauka að
velli 18-16. Stjarnan var lengi í gang í
leiknum en firnarsterkur varnarleikur
liðsins í síðari hálfleik skóp sigurinn.
Haukastúlkur byrjuðu leikinn af
miklum krafti. Haukar komust í 11-4
þegar um tuttugu mínútur voru bún-
ar af leiknum. Ef ekki hefði verið fyr-
ir stórleik Florentinu Stancin í marki
Stjörnunnar hefði Haukaliðið líklega
gert út um leikinn. Í stöðunni 11-4
var Stancin búin að verja fjórtán skot
og Helga Jónsdóttir varamarkvörð-
ur þrjú. Hanna Guðrún Stefánsdóttir
skoraði sjö af ellefu mörkum Hauka
fyrstu tuttugu mínúturnar en þurfti
þá að fara af velli vegna bakmeiðsla
og við það datt botninn úr leik Hauka.
Stjarnan hóf að saxa á forskot Hauka
og staðan í hálfleik var 11-9, Haukum
í vil.
sterk vörn stjörnunnar
Jafnræði var með liðunum í upp-
hafi síðari hálfleiks en smátt og smátt
náðu Stjörnustúlkur undirtökunum.
Vörn Stjörnunnar var feykilega sterk
og Haukar áttu engin svör.
Haukar komust í 15-14 þegar um
tólf mínútur voru liðnar af síðari
hálfleik. Í kjölfarið fylgdi sextán mín-
útna kafli þar sem Haukar náðu ekki
að skora eitt einasta mark og Stjarn-
an sigldi fram úr, þrátt fyrir að sókn-
arleikur Stjörnunnar væri ekki upp á
marga fiska.
Stjarnan skoraði næstu fjög-
ur mörk og breytti stöðunni í 15-18.
Haukastúlkur komust lítt áleiðis í
sínum sóknarleik og þau skot sem á
markið komu varði Stancin.
Svo fór að Stjarnan hrósaði sigri,
18-16, og það var fyrst og fremst varn-
arleikur Stjörnunnar sem skóp sigur-
inn. Sóknarleikur beggja liða var sla-
kur í heildina, eins og lokatölur bera
með sér.
Gríðarlega stoltur af varnar-
leiknum
„Við byrjuðum þennan leik mjög
vel varnarlega og svo kom kafli þar
sem sóknarleikurinn hvorki gekk né
rak. Dómgæslan í fyrri hálfleik var
líka katastrófa. Það voru atriði í leikn-
um þar sem þær tóku fimm, sex, sjö
skref og ekkert dæmt. Vítadómar og
annað slíkt.
Svo jafnaðist það og við komumst
aftur inn í leikinn. Varnarleikurinn var
frábær síðustu sjö, átta mínúturnar í
fyrri hálfleiknum og svo bara út leik-
inn. Þannig að ég er gríðarlega stolt-
ur af varnarleiknum en það er margt
sem við getum unnið í og lagað, eins
og sást á sóknarleiknum,“ sagði Aðal-
steinn Eyjólfsson, þjálfari Stjörnunn-
ar.
Rakel Dögg Bragadóttir, fyrir-
liði Stjörnunnar, tók í sama streng
og þjálfari hennar. „Varnarleikurinn
lagði grunninn. Sóknarleikurinn var
ekki nógu góður.
Mér fannst varnarleikurinn fyrstu
tuttugu mínúturnar reyndar mjög
slakur. Við vorum bara heppnar með
hvað Flora varði vel. En við náðum að
fínpússa þessi mistök sem við gerð-
um. Vörnin lagði klárlega grunninn
að sigrinum,“ sagði Rakel.
„Ég get ekki áttað mig á því hvað
klikkaði í sóknarleiknum. Það var
mikið af ótímabærum skotum en við
nýttum heldur ekki færin. Við feng-
um fín hornafæri, hraðaupphlaup
og gegnumbrot sem við nýttum ekki
nógu vel. Það var eins og við værum
óöruggar. Við eigum samt ekkert að
vera óöruggar en það var eitthvað að
klikka í dag,“ sagði Rakel en bætti við
að ef Stjarnan næði að spila eins góð-
an varnarleik og í gær væru allir veg-
ir færir.
„Við ættum að geta klárað flest
liðin ef við náum að spila sextíu
mínútur svona vel. Í dag voru það
bara fjörutíu mínútur og sem bet-
ur fer dugði það. Það er klárt mál að
við þurfum að laga sóknarleikinn og
tengja þetta allt saman ef við ætlum
að vinna þennan titil,“ sagði Rakel að
lokum.
Hanna Guðrún Stefánsdóttir, leik-
maður Hauka, var ósátt við tapið.
„Skorið í þessum leik er ekki hátt, hjá
hvorugu liði. Stjarnan gat ekkert í fyrri
hálfleik og við ekkert í seinni hálfleik.
Markvarslan var fín, vörnin var
fín en við þurfum að vinna í sóknar-
leiknum. Við vorum alltof óskynsam-
ar. Við gerðum alveg fína hluti inn á
milli í sókninni en við þurfum aðeins
að fínpússa okkar leik,“ sagði Hanna
Guðrún.
daGur sveinn daGbJartsson
blaðamaður skrifar: dagur@dv.is
STjöRnuvöRnin
SkÓp SiguR
Stjarnan er í þriðja sæti
N1-deildar kvenna eftir
sigur á Haukum á úti-
velli, 18-16. Haukastúlk-
ur voru yfir í hálfleik en
skoruðu aðeins fimm
mörk í síðari hálfleik
gegn firnasterkri vörn
Stjörnunnar.
lýsandi fyrir leikinn
inga fríða tryggvadóttir,
leikmaður Hauka, er hér
í heljartökum varnar-
manna Stjörnunnar,
þeirra Ástu agnarsdótt-
ur og alinu Petrache.
Haukar - stjarnan 16-18
Mörk Hauka (víti): Hanna g. Stefánsdóttir 8 (5), Nina
k. björnsdóttir 3, ramune Pekarskyte 2, Harpa
melsted 2, erna Halldórsdóttir 1.
Varin skot (víti): Laima miliauskaite 18.
Mörk Stjörnunnar (víti): rakel d. bragadóttir 8 (6),
Ásdís Sigurðardóttir 3, Ásta agnarsdóttir 3, Sólveig
L. kjærnested 2, alina Petrache 2.
Varin skot (víti): florentina Stancin 20, Helga V.
Jónsdóttir 3.