Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2007, Qupperneq 25
DV Sviðsljós fimmtudagur 11. október 2007 25
Nýr gaur
Lindsay Lohan er nú enn og aftur komin
úr meðferð og segist ætla að halda
þetta út, segist ætla að snúa blaðinu
algjörlega við. ekki nóg með það heldur
er hún komin með nýjan kappa upp á
arminn,
snjóbrettagæj-
ann riley giles.
riley giles er 25
ára kaliforníu-
hönk sem
segist loks hafa
fundið þá einu
réttu. Nýja
parið eyðir
öllum stundum
saman og vinir
Lindsay segja
hana vera sem
nýja mann-
eskju. Vonandi
gengur loks allt upp hjá aumingja
Lindsay.
Barn á leiðinni
turtildúfurnar demi moore og ashton
kutcher eru tilbúin að stækka
fjölskylduna. demi moore sem er 44
ára á þrjár dætur fyrir
með bruce Willis
og segir að það
sé ekki seinna að
vænna því
breytingaskeiðið
fari brátt að
læðast að.
ashton kutcer
sem er 29 ára
segir að hann sé
fullur eftirvænt-
ingar enda alveg
kominn tími til að
eignast barn með
draumakonunni.
demi moore er
hæstánægð með
undirbúninginn
og segist ekki
enn vera búin að
átta sig á að hún
hafi gifst 25 ára dreng og þau séu núna
að reyna að eignast barn saman.
Alveg í ruglinu
Sönkonan amy Winehouse sem er 24
ára hefur vakið mikla athygli bæði fyrir
sönginn sem og ruglið sem hún er í.
Winehouse er heldur ekkert að leyna
drykkju og eiturlyfjavandanum þar sem
hún er þekkt fyrir að vilja yfirfull
baksviðsherbergin af áfengi. Núna
síðast var það tvær flöskur af rioja, tveir
kassar af Heineken, stór vodkaflaska,
tvær kampavínsflöskur, og tvær flöskur
af Jack daníels.
Winehouse hefur
ósjaldan verið í
annarlegu ástandi
á tónleikum og
vakið athygli fyrir
allt annað en góða
hegðun. Á
mánudaginn var
átti söngdívan að
taka á móti
verðlaunum fyrir
bestu plötuna en lét
ekki sjá sig. eftirvæntingin hjá
aðdáendum var mikil en aldrei kom
Winehouse og engin útskýring var
gefin.
Leikkonan og fegurðardísin Charlize Theron
hefur unnið til margra verðlauna fyrir framúr-
skarandi leik og þar má nefna Óskarinn og Gold-
en Globe-verðlaunin. Charlize Theron, sem ólst
upp í þorpinu Benoni í Suður-Afríku, er einstak-
lega hæfileikarík og á litríkan feril að baki. Nú á
dögum titlaði tímaritið Esquire Theron, sem er
32 ára, kynþokkafyllstu konu heims. Það má með
sanni segja að viðurkenning sem þessi þykir ekki
af verra taginu en meðal þeirra sem hafa fengið
þennan góða titil eru leikkonurnar Jessica Biel
og Angelina Jolie. Tímaritið Esquire ræddi við
Theron um starfið, æskuna, stjórnmál og nýjustu
mynd hennar „In the Valley of Elah“. Ekki nóg með
það heldur bíða allir spenntir eftir tískuþættinum
með henni þar sem hún þykir alveg ótrúlega kyn-
þokkafull og flott. Blaðið kemur út 16. október og
eflaust eru margir sem bíða spenntir að sjá þessa
þokkadís í efnislitlum fötum og seiðandi stelling-
um.
Kynþokkafyllst, ójá!
Leikkonan Charlize Theron var
valin kynþokkafyllsta kona heims
nú á dögunum af tímaritinu
Esquire.
Hátíska í París
❶
❷
❸
❹
❻
Charlize Theron
frekar sexí.
Tískugyðjan Victoria Beckham hefur vakið athygli undanfarið þar sem hún hefur skotið upp
kollinum víðs vegar um París í tískumyndatökum. Fyrir suma lítur þetta út sem hátíska mikil
en fyrir hið óþjálfaða auga gæti þetta líka litið hreinlega kjánalega út.
❺
❶ Sýnir línurnar Victoria er
óhrædd við að sýna línurnar.
❷ Tíska eða kjánaskapur? Það er
eflaust misjafnt eftir því hver svarar.
❸ Á leiðinni á tunglið? eða bara á
forsíðu Vogue?
❹ Rauði svanurinn Þessi kjóll er
nú ekki ósvipaður hinum fræga
svanakjól sem björk klæddist á
óskarnum.
❺ Tekur sénsa Victoria sést ekki í
sömu fötunum tvisvar.
❻ Glæsileg Victoria var mynduð í
hinum ýmsu kjólum.