Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2007, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2007, Side 30
fimmtudagur 11. október 200730 Síðast en ekki síst DV Sandkorn n Margt var í Viðey þegar Yoko Ono vígði friðarturninn. Yoko, Ringo, Vilhjálmur borgarstjóri, Björn Ingi og önnur fyrirmenni þurftu ekki að ganga grýttan stíginn að turninum. Þegar gestir streymdu að bryggjunni og bátunum eftir athöfn- ina vakti at- hygli að með- al fólksins var niðurlútur aðstoðarmaður borg- arstjóra Jón Kristinn Snæhólm sem leyndi ekki vonbrigðum sín- um. Hann var spurður hverju það sætti að hann kæmi fótgangandi. Hann sagðist hafa misst af rút- unni og hefði því þurft að ganga eins og hver annar aumingi. Meðal gesta á bryggjunni voru Guðrún Ásmundsdóttir leikkona og fleiri. Þeim sem heyrðu til að- stoðarmannsins var brugðið yfir fúllyndi hans vegna þess eins að þurfa að ganga að bryggjunni, rétt eins og flestir aðrir gestir gerðu, með bros á vör. n Orkuveitan var spör á orkuna í Viðey þegar gestir gengu að há- tíðarsvæðinu og einkum þegar gestir gengu til skips eftir samkomuna. Þá var dimmt og grýttur göngustígur var ekki upp- lýstur. Blys höfðu verið sett meðfram stígnum en ekki var kveikt á þeim. Við hina hlið stígsins lá jólasería sem markaði jaðar stígsins en lýsti ekki gestunum, sem reyndar kvörtuðu ekki, enda flestir með frið og ró í huga og hjarta. Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orkuveitunnar, var mest áberandi starfsmanna veitunnar og minnti á þaulreyndan öryggisvörð. n Alþingismenn borða í ein- hverju dýrasta mötuneyti sem til er en kostnaður við það var um 700 milljónir með öllu. Föst sætaskipan hefur myndast þar sem hver þingflokkur hefur sín borð, allt eftir stærð flokkanna. Innst í matsalnum hefur þing- flokkur Sjálfstæðisflokksins komið sér fyrir. Búið er að setja upp glerskilrúm til að marka svæði þeirra frá borð- um annarra þingmanna. Að auki skera þingmenn Sjálfstæðis- flokksins sig frá hinum þar sem borðin þeirra eru hulin hvítum dúk, en aðrir hafa ekki dúk á sínum borðum. Hver er konan? „Ég er kona sem er búin að vera í þessum heimi í fimmtíu og þrjú ár og er mjög glöð með það og reyni að leggja mitt af mörkum til að gera hann svolítið skemmtilegri.“ Hvar ólst þú upp? „Ég er fædd Siglfirðingur, bjó á Ak- ureyri um tíma og svo í Kópavogi en ætli ég líti ekki á mig sem suðvestur- hornsbúa.“ Hvað drífur þig áfram? „Leitin að gleðinni. Svo er ég ófor- betranlegur frumherji. Það eru svo margar góðar hugmyndir sem þarf að framkvæma og ég legg mitt af mörk- um.“ Hver eru þín áhugamál? „Tölvur og internetið. Ég reyni að læra eitthvað nýtt á hverjum degi, alla- vegana þrjá nýja hluti á dag. Svo hef ég mikinn áhuga á vinkonum mínum og fjölskyldunni og þykir ofsalega gott að fara út að labba eða synda. Borða góð- an mat og vera til akkúrat núna.“ Hvað kom til að þú byrjaðir í sjónvarpi? „Ég sótti um sem þula hjá sjón- varpinu fyrir þrjátíu og sjö árum. Örfá- um árum síðar var ég farin að stjórna útsendingum.“ Eftirminnilegasta augnablikið á starfsferlinum? „Á þrjátíu og sjö ára starfsferli er ótalmargt sem kemur upp í hugann. Það er kannski viðeigandi að nefna leiðtogafundinn en nú eru um tut- tugu og eitt ár síðan leiðtogafundur- inn í Höfða var. Reagan og Gorbatsjov komu hingað með engum fyrirvara. Ég heyrði bara tilkynningu í útvarp- inu er ég stóð heima með tvö börn í baði og smákökur í ofninum. Ég henti smákökunum, hringdi strax í mömmu sem tók börnin og flutti niður í Höfða í tíu daga.“ Hvað kom til að þú varðst sjónvarpsstjóri ÍNN? „Ég ákvað að taka þetta verkefni að mér fyrir Ingva Hrafn aðaleiganda ásamt þeim Katrínu Ingvars sem var á Stöð 2 og Krístínu Örnu sem hefur ver- ið viðloðandi kvikmyndabransann og Í DAG Á MORGUN HINN DAGINN Veðrið +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx xxxx +7 1 +9 1 xx xx xx xxxx +7 4 xx +5 1 xx xx xx xx xx xx +10 1 xx xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx xx +10 7 xx +8 1 +10 4 +9 4 +11 7 +11 7 xx xx xx xxxx xx +9 7 xx xx xx +10 7+11 7 +9 4 xx xx xx xx xx -xx -xx MAÐUR DAGSINS NÚ GETUR ÞÚ LESIÐ DV Á DV.IS DV er aðgengilegt á dv.is og kostar netáskriftin 1.490 kr. á mánuði margar góðar hugmyndir bíða Maríanna Friðþjófsdóttir, sjónvarpsstjóri ÍNN, stendur í ströngu þessa dagana. Það er engin furða því útsendingar stöðvarinnar hefjast aftur á morgun, föstudag, eftir nokkurt hlé. maríanna hefur starfað við sjónvarp í þrjátíu og sjö ár, bæði hér heima og í danmörku. er núna að stjórna Áramótaskaupinu. Þetta er mjög spennandi verkefni og mjög aðdáunarvert hjá Ingva Hrafni sem leggur í þetta af nennu og kjarki. Útsendingar verða frá klukkan 20 til 22 alla mánudaga til föstudaga og er einungis um íslenska dagskrárgerð að ræða. Við ætlum að segja söguna eins og hún er núna þannig að þetta verður svona samtímaspegill.“ Hvaða þættir verða á boðstólum? „Randver Þorláksson ætlar að stjórna menningar- og listaþætti. Ólína Þorvarðardóttir verður með umræðuþátt aðra hverja viku en við- mælendur eru einungis konur. Hinn skeleggi og pólitíski þáttur Hrafna- þing verður á sínum stað. Margrét Frí- mannsdóttir verður auk þess með þátt um það sem henni er hugleikið hverju sinni. Ég verð með þátt sem heitir Dót- ið okkar en í þættinum ætla ég að taka fyrir allt þetta dót sem við erum að nota; iPod, síma, safapressur og fleira. Þetta er einungis brot af þeim þáttum sem við ætlum að bjóða upp á í vetur. Þættirnir verða sýndir á Digital Ísland á rás 20 en einnig verður hægt að nálg- ast þættina á visir.is.“ Af hvaða verkefni ertu stoltust? „Ég er stoltust af því að hafa orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að gera fólki kleift að komast inn í bransann. Ég lít stundum á það verkefni sem lítið gróðurhús fyrir nýtt fólk. Þetta er mitt hjartans mál, sérstaklega þegar konur eiga í hlut.“ Hvað er fram undan? „Það er að fylla þessa holu af nýju efni sem við erum að opna á föstu- daginn. Í langan tíma hefur allt miðast við þennan föstudag og ég er svona að reyna að hafa það hugfast að það kem- ur nýr dagur eftir föstudaginn.“ 1 haustrigning Það getur verið hlýtt og jafnvel ekkert vindasamt hérna á haustin. Vandamálið er bara hversu blautt íslenska haustið er. Þess vegna er um að gera að fara í stutt frí, helst á stað þar sem er ennþá sól og blíða. Stundum þarf að fara dálítið langt en það getur verið fyllilega þess virði til að leyfa sól- inni að leika við líkamann og hita- stiginu að gera mann meyran. Þess vegna getur verið full ástæða til að fara til útlanda. 2 alþingi Þingmennirnir eru komnir aftur úr alltof löngu sumarfríi sínu og sjá nú tækifæri til að tappa af munnræpunni sem þeir hafa ekki fengið neina útrás fyrir í allt sum- ar. Þingfundir eru sendir út í beint bæði í sjónvarpinu og á netinu. Hvers vegna ekki að setjast niður fyrir framan sjónvarpið með kaffi og vínarbrauð og hlusta á kjörna fulltrúa okkar ræða landsins helstu nauðsynjamál? Þetta eru jú okkar fulltrúar og einhver verður að hafa auga með þeim. 3 styttri bið Jólin eru kannski ekki alveg á næsta leiti en það fer að styttast í þau. Nú er tveir og hálf- ur mánuður til jóla og einhverjir án efa orðnir óþreyjufullir. Langir, erf- iðir og leiðinlegir dagar á skrifstof- unni verða ekki til að stytta biðina. Hins vegar líð- ur tíminn alltaf hraðar í fríi. Þess vegna er kjörið að fara í frí og njóta lífs- ins, vitandi að þá verður biðin eftir jólunum ekki jafn löng... sálarlega. 4hvíld Sumarfrí eru ágæt til síns brúks. Hins vegar vill hasarinn oft verða mestur þegar komið er fram á haust. Þá eru allir að snúa aftur úr sumarfríum og þjóðfélagið sem var í móki í allt sumar vaknar til lífsins svo um munar. Þannig getur það tekið fullmikla kippi svo öll hvíld sumarsins fýkur út í veð- ur og vind þegar stressið, hraðinn og kröfuharkan eykst dag frá degi. Þá getur verið gott að kúpla sig úr þessu og taka sér gott frí til að draga djúpt andann. ástæður til að fara í haustfrí4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.