Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.04.2014, Page 1

Fréttatíminn - 25.04.2014, Page 1
BarnamenningBarnamenningarhátíð í Reykjavík dagana 29. apríl til 4. maí B arnamenningarhátíð í Reykjavík hefst í næstu viku, þriðjudaginn 29. apríl og stendur til sunnudagsins 4. maí. Þar verða í boði fjöldi spenn-andi viðburða fyrir unga sem aldna um alla borg og er aðgangur ókeypis. Markmiðið með Barnamenningarhátíð er að efla menn-ingarstarf barna í borginni og er hátíðin nú haldin í fjórða sinn. Hátíðin er haldin í sam-vinnu við skóla- og frístundasvið borgarinnar og eru bæði leik- og grunnskólanemendur virkir þátttakendur. „Hugmyndin er að bjóða upp á menningu barna, menningu fyrir börn, og menningu með börnum. Viðburðirnir eru á þeirra forsendum og fyrir þau. Lögð er áhersla á að viðburðirnir séu víða um borgina og að fjölbreytileikinn sé í fyrirrúmi,“ segir Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, kynningar-stjóri Barnamenningarhátíðar. Í ár verður lögð sérstök áhersla á að hvetja börn og barnafjölskyldur utan að landi til að sækja viðburði Barnamenningarhátíðar. „Markmiðið er að gera Reykjavík sem að-gengilegasta og skemmtilegasta fyrir börn,“ segir Sigríður Dögg. Hjá Flugfélagi Íslands er sérstakt tilboð á flugi til Reykjavíkur fyrir börn og kostar það aðeins einn vildarpunkt og fá börnin sem nýta sér það gefins Gesta-kort Reykjavíkur sem veitir aðgang að strætó, sundlaugum, ferjunni til Viðeyjar og fleiru.Iðnó verður breytt í barnamenningarhús frá 30. apríl til 3. maí undir nafninu Ævintýra-höllin. Þar geta börn nýtt skapandi hæfileika sína og verður boðið upp á fjöldann allan af spennandi viðburðum, eins og barnaball með Valdimar Guðmundssyni, danssýningu, bardagadans og hljóðfæra- og grímusmiðju svo fátt eitt sé nefnt. Sviðslistahátíð ASSITEJ verður haldin 29. apríl til 3. maí samhliða Barnamenningarhá-tíðinni. ASSITEJ eru samtök um leikhús fyrir unga áhorfendur. Á dagskránni eru leik- og danssýningar fyrir alla fjölskylduna og eins og með aðra viðburði Barnamenn-ingarhátíðar er frítt inn. Miðar verða afhentir á sýningarstað klukkustund áður en hver við-burður hefst. Meðal dagskrárliða hjá ASSI-TEJ er leikritið Litli prinsinn sem sýnt verður í Þjóðleikhúsinu miðvikudaginn 30. apríl. Það þykir henta einkar vel fyrir áhorfendur á aldrinum 6 til 12 ára. Sýningin var frumsýnd nú nýlega í Þjóðleikhúsinu og hefur fengið góða dóma. Á Þjóðminjasafninu verða ýmsir skemmti-legir viðburðir í tilefni af Barnamenning-arhátíð. Sunnudaginn 4. maí býður Þjóð-minjasafnið börnum á öllum aldri að hlusta á álfasögur í silfurhelli sýningarinnar Silfur Íslands. Börnin fá höfuðljós og slökkt verður á ljósum í Bogasal þar sem lesnar verða álfa- og huldufólkssögur í myrkrinu.Allar nánari upplýsingar um hátíðina má nálgast á vefnum www.barnamenningarha-tid.is. Þar er sérstakur flipi undir heitinu ungir blaðamenn þar sem lesa má fréttir sem börn skrifa um hátíðina. Á dögunum fékk hópurinn grunnþjálfun í blaðamennsku hjá Morgunblaðinu. Frítt inn á alla viðburði BarnamenningarhátíðarÁ Barnamenningarhátíð í Reykjavík er boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn á öllum aldri. Sérstök áhersla er lögð á að bjóða börnum og barnafjölskyldum utan að landi að sækja hátíðina í ár. Iðnó verður breytt í Ævintýrahöll þar sem meðal annars verður haldið barnaball með Valdimar Guðmundssyni og vinum. Fylgir Fréttatímanum í dag Barnamenning- arhátíð verður haldin í Reykja- vík í fjórða sinn. Sérblað um dagskrá hátíðarinnar fylgir blaðinu í dag. e in n ig í F R é t ta tí m a n u m í d a g : V ín ið g e R iR m a t in n B e t R i – g R æ n n l íF S St íl l – m ik il Væ g u R j a F n R é t t iS S k ó li – Á B y R g ð Á S o R p F lo k k u n GleðileGt Sumar síða 20 18 Sjaldan fellur reður langt frá rótinni Hið íslenska reðasafn og sterk íslensk typpamenning er umfjöllunarefni bókar Sigurjóns Baldurs Hafsteinssonar. 25.—27. apríl 2014 17. tölublað 5. árgangur Heilluð af skinnaiðnaði innanhúsarkitekt- inn auður gná ingvarsdóttir nýtir vannýtt hráefni í verkum sínum. 30 Hönnun Viðtal  viðtal KriStófer Kvaran veKur athyGli hvar Sem hann Kemur Hvalaskoðun og hrefnuveiðar eru andstæður. Hvort á að skoða eða skjóta hvali? 24FréttaSkýring Sigurborg Selma skrifar um hönnun í moggann. Blaða- maður á háum hælum 48Dægurmál Austurveri Austurveri - Háaleitisbraut 68 www.lyfogheilsa.is Við opnum kl: Og lokum kl: Opnunartímar08:00-24:00 virka daga 10:00-24:00 helgar KRINGLUNNI / SMÁRALIND FACEBOOK.COM/JACKANDJONESICELAND INSTAGRAM @JACKANDJONESICELAND NÝJAR VÖRUR kristófer kvaran er hættur að nota skó nema köldustu þrjá mánuði ársins. Hann gengur og hleypur berfætt- ur um götur borgarinnar – og mætir þannig í vinnuna en hann starfar í leikskóla. Börnunum finnst spenn- andi að sjá hann berfættan úti. Þá tekur fólk á sig krók í verslunum til þess að skoða skó- og sokkaleysið en lögreglan stoppaði hinn berfætta mann og spurði hvort hann væri á sakaskrá eða geðlyfjum. Gengur berfættur níu mánuði á ári h e l G a r b l a ð

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.