Fréttatíminn - 25.04.2014, Blaðsíða 46
G reinin er skrifuð vegna málverkasýningar Bjarna Bernharðar Bjarnasonar
í Anarkía listsal Hamraborg 3,
Kópavogi. Sýningin stendur yfir
frá 5. apríl til 4. maí 2014
Bjarni Bernharður hefur gefið
út á fjórða tug bóka, þá fyrstu
árið 1975. Ég man fyrst eftir
honum seint á áttunda áratugn-
um, hávöxnum ungum manni,
röskum áratug eldri en ég, sem
kom á Mokka og bauð bækur til
sölu. Þetta voru lítil kver með
ljóðum og myndum sem hann
hafði teiknað sjálfur og ég keypti
af honum eins og margir gerðu
því hann var eitt af þeim ungu,
skapandi skáldum sem biðu ekki
eftir útgefendum heldur gáfu
bækur sínar út sjálf og virtu
hvorki hefðir né hefðbundn ar
aðgreiningar milli listgreina eins
og skáldskapar og myndlistar.
Sköpunin og nýsköpunin voru
fyrir öllu og ekkert fékk hamið
kraftinn. Samfélagið á Mokka tók
þessum skáldum vel enda þekktu
margir eldri fastagest anna vel
þennan kraft og höfðu sjálfir rutt
þessa braut á yngri árum. Þarna
var komin hin kraftmikla grasrót
sem er öllum menningargróðri
svo nauðsynleg þótt samfé lagið
hafi oftast á henni lítinn skilning
og hún njóti helst verndar í afkim-
um, á skrítnum kaffihúsum þar
sem góð borgararnir sjást sjaldan,
eða meðal þeirra sem kjósa að lifa
lífinu utan við meginstrauminn.
Lífið þar er ekki alltaf auðvelt
og það fékk Bjarni Bernharður að
reyna. Hann var óþreytandi við
sköpun sína, gaf út bækur og hélt
sýningar á myndlist sinni, birti
verk í tímaritum og reif kjaft á
fundum Rithöfundasam bandsins.
Árið 1988 varð hann hins vegar
fyrir geðrösk un, framdi glæp, og
hvarf af sjónarsviðinu um langt
árabil meðan hann var að ná
bata undir handleiðslu lækna á
réttargeðdeild. Allan þann tíma
hélt hann þó áfram að skrifa og
mála, að þroska stíl sinn og nota
sköpunarkraft inn til að takast á
við lífið og örlögin.
Frá því hann kom aftur af
spítalanum hefur Bjarni sinnt
listinni af ekki minni krafti en
áður. Bækurnar hafa komið út ótt
og títt, bæði ljóð og prósaverk,
stundum margar á ári, og hann
dreifir þeim og selur sjálfur eins
og áður. Síðustu ár hefur oft mátt
sjá hann í Austurstræti þar sem
hann stendur með bækur sínar og
býður þær vegfarendum. Mynd-
listin hefur líka sótt meira og
meira á og bækurnar sem í gamla
daga voru skrýddar teikningum
státa nú af litríkum málverkum.
Síðustu árin má segja að það
hafi orðið eins konar sprenging
í myndlistariðkun Bjarna. Mál-
verkin hafa orðið stærri þáttur
í sköpuninni og hafa líka orðið
markvissari, teikningin sterkari
og litanotkunin öflugri. Bjarni
vinnur jöfnum höndum með olíu-
liti og akrýl, og nýtir sér mismun-
andi eiginleika þessara efna eftir
því sem viðfangs efninu hentar.
Abstraktið hefur líka orðið fyrir-
ferðarmeira og tengist það örugg-
lega þessari þróun: Eftir því sem
kafað er dýpra í leyndardóma línu
og litar kemur betur í ljós að mál-
verkið getur lifað sínu eigin lífi án
tilvísunar í hlutveruleikann.
Sýningin í Anarkíu er önnur
sýning Bjarna á þessu vori. Sú
fyrri var á Mokka, einmitt þar
sem við kynnt umst fyrst fyrir
meira en þrjátíu árum. Verkin
á sýning unni núna eru einkum
frá síðustu þremur árum og ab-
straktið er áberandi þótt þarna
séu líka málverk þar sem greina
má landslag. Það sem slær
mann fyrst við þessar myndir er
liturinn og djarfar litasamsetn-
ingar. Bjarni er ekki hræddur við
sterka liti og slær þeim saman
af krafti og tilfinningu. Eftir að
hann fór að helga sig málverkinu
í meira mæli hefur litameðferðin
orðið öruggari án þess að dregið
hafi úr kraftinum. Þetta er vand-
meðfarið og hreint ekki á allra
færi að hleypa svo sterkum og
afgerandi litum saman á mynd-
fleti svo vel fari en þessar myndir
Bjarna sýna hve góðum tökum
hann hefur náð á aðferðinni.
Mjúkar línur hverfast um á strig-
anum og litaformin teiknast upp,
takast á og ná sáttum í ögrandi
myndbyggingu.
Bjarni er sjálfmenntaður, bæði
í skáldskapnum og myndlistinni.
Einhvern veginn þykir það sjálf-
sagt í skáldskapnum – það lærir
enginn að verða skáld nema af
sjálfum sér – meðan menntunar-
kröfur verða sífellt meiri á mynd-
listarsviðinu. Samt er það alltaf
mikilvægast að myndlistarmenn
hafi ræktað grasrótina, tekist á
við verkin á eigin forsendum og
lært gegnum þrotlausa vinnu.
Þessi rækt og áratuga iðjusemi
hafa skilað sér vel fyrir Bjarna
og málverkin á þessari sýningu
mynda ótrúlega sterka heild.
Þarna eru engar málamiðlanir
heldur veitir myndskáldið öllum
sínum krafti í verkið, leggur allt
undir í glímunni við litinn og
myndflötinn. Það er þetta sem
gefur myndunum kraft.
Jón Proppé
ritstjorn@frettatiminn.is
Málverkasýning í Anarkía listsal
Maðurinn Bjarni
Bernharður Bjarnason
Bjarni Bernharður Bjarnason leggur allt undir í glímunni við litinn og myndflötinn.
Hádegistónleikar Tríós Reykjavíkur,
Vorið kemur grænt og hlýtt, verða á
Kjarvalsstöðum í dag, föstudaginn 25.
apríl, klukkan 12.15. Tónleikarnir eru í
samstarfi við Listasafn Reykjavíkur.
Á tónleikunum verður leikið píanó-
tríó eftir Beethoven, op.1 nr. 1, en í
aðalhlutverki er Vorið úr Árstíðum Vi-
valdi. Hér fær tríó Reykjavíkur aðstoð
fjögurra nemenda við Listaháskóla Ís-
lands og Tónlistarskólann í Reykjavík
svo úr verður sjö manna sveit. Árs-
tíðirnar eru eflaust eitt þekktasta verk
allra tíma og þar er Vorið fremst meðal
jafningja.
Tríó Reykjavíkur skipa að þessu
sinni Guðný Guðmundsdóttir, Gunnar
Kvaran og Richard Simm. Nemendur
úr Listaháskóla Íslands og Tónlistar-
skólanum í Reykjavík eru Guðbjartur
Hákonarson, Pétur Björnsson, Hekla
Finnsdóttir á fiðlur og Rannveig Marta
Sarc á víólu.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis.
HádeGistónleikar tríó reykjavíkur á kjarvalsstöðum
Vorið kemur grænt og hlýtt
Tríó Reykjavíkur skipa Guðný Guðmundsdóttir og Gunnar Kvaran, auk Richard Simm.
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Furðulegt háttalag hunds um nótt (Stóra sviðið)
Sun 27/4 kl. 20:00 15.k Fös 9/5 kl. 20:00 Lau 31/5 kl. 20:00
Mið 30/4 kl. 20:00 Sun 11/5 kl. 20:00 Sun 1/6 kl. 20:00
Lau 3/5 kl. 20:00 Fim 22/5 kl. 20:00 Fös 6/6 kl. 20:00
Sun 4/5 kl. 20:00 Fös 23/5 kl. 20:00 Lau 7/6 kl. 20:00 lokas
Fim 8/5 kl. 20:00 Lau 24/5 kl. 20:00
Ótvíræður sigurvegari Olivier Awards 2013.
BLAM (Stóra sviðið)
Þri 13/5 kl. 20:00 1.k Lau 17/5 kl. 20:00 5.k Fös 20/6 kl. 20:00 aukas
Mið 14/5 kl. 20:00 2.k Sun 18/5 kl. 14:00 6.k Lau 21/6 kl. 20:00 aukas
Fim 15/5 kl. 20:00 3.k Sun 18/5 kl. 20:00 7.k Sun 22/6 kl. 20:00 lokas
Fös 16/5 kl. 20:00 4.k Fim 19/6 kl. 20:00 aukas
Sýning ársins í Danmörku 2012, 6 Grímutilnefningar 2013. Aðeins þessar sýningar!
Dagbók Jazzsöngvarans (Nýja sviðið)
Fös 25/4 kl. 20:00 3.k Lau 3/5 kl. 20:00 6.k Fös 9/5 kl. 20:00
Sun 27/4 kl. 20:00 4.k Sun 4/5 kl. 20:00
Fös 2/5 kl. 20:00 5.k Fim 8/5 kl. 20:00
Nýtt verk frá CommonNonsense sem færðu okkur Tengdó, Grímusýningu ársins 2012
Ferjan (Litla sviðið)
Fös 25/4 kl. 20:00 9.k Mið 14/5 kl. 20:00 20.k Fim 29/5 kl. 20:00 31.k
Lau 26/4 kl. 20:00 10.k Fim 15/5 kl. 20:00 21.k Fös 30/5 kl. 20:00 aukas
Sun 27/4 kl. 20:00 11.k Fös 16/5 kl. 20:00 22.k Lau 31/5 kl. 20:00 32.k
Þri 29/4 kl. 20:00 12.k Lau 17/5 kl. 20:00 23.k Sun 1/6 kl. 20:00 33.k
Mið 30/4 kl. 20:00 aukas Sun 18/5 kl. 20:00 24.k Þri 3/6 kl. 20:00 34.k
Fös 2/5 kl. 20:00 13.k Þri 20/5 kl. 20:00 25.k Mið 4/6 kl. 20:00 35.k
Lau 3/5 kl. 20:00 14.k Mið 21/5 kl. 20:00 aukas Fim 5/6 kl. 20:00 aukas
Sun 4/5 kl. 20:00 15.k Fim 22/5 kl. 20:00 26.k Fös 6/6 kl. 20:00 36.k
Þri 6/5 kl. 20:00 16.k Fös 23/5 kl. 20:00 27.k Lau 7/6 kl. 20:00 37.k
Mið 7/5 kl. 20:00 17.k Lau 24/5 kl. 20:00 aukas Mið 11/6 kl. 20:00 38.k
Fim 8/5 kl. 20:00 aukas Sun 25/5 kl. 20:00 28.k Fim 12/6 kl. 20:00
Fös 9/5 kl. 20:00 18.k Þri 27/5 kl. 20:00 29.k Fös 13/6 kl. 20:00
Sun 11/5 kl. 20:00 19.k Mið 28/5 kl. 20:00 30.k Lau 14/6 kl. 20:00
Fyrsta leikrit Kristínar Marju eins ástsælasta rithöfundar þjóðarinnar
Hamlet litli (Litla sviðið)
Fös 25/4 kl. 10:00 * Sun 4/5 kl. 13:00 4.k Fös 9/5 kl. 10:00 *
Sun 27/4 kl. 13:00 2.k Sun 4/5 kl. 14:30 5.k Þri 13/5 kl. 10:00 *
Sun 27/4 kl. 14:30 3.k Þri 6/5 kl. 10:00 * Mið 14/5 kl. 10:00 *
Mið 30/4 kl. 10:00 * Mið 7/5 kl. 10:00 * Fim 15/5 kl. 10:00 *
Fös 2/5 kl. 10:00 * Fim 8/5 kl. 10:00 * Fös 16/5 kl. 10:00 *
Harmsaga Hamlets fyrir byrjendur. * Skólasýningar
Tiny guy (Stóra sviðið)
Lau 26/4 kl. 20:00
Erum við of löt til að hugsa? Leikhópurinn Kriðpleir. Aðeins þessi eina sýning!
Tini guy – á Stóra sviðinu annað kvöld!
HVERFISGATA 19 551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is
SPAMALOT (Stóra sviðið)
Lau 26/4 kl. 19:30 27.sýn Fös 9/5 kl. 19:30 30.sýn Sun 18/5 kl. 19:30 33.sýn
Fös 2/5 kl. 19:30 28.sýn Lau 10/5 kl. 16:00 31.sýn Lau 24/5 kl. 19:30 34.sýn
Lau 3/5 kl. 19:30 29.sýn Lau 17/5 kl. 19:30 32.sýn Sun 25/5 kl. 19:30 35.sýn
Salurinn veltist um af hlátri. Fáránlega skemmtilegt!
Eldraunin (Stóra sviðið)
Fös 25/4 kl. 19:30 Frums. Fim 8/5 kl. 19:30 5.sýn Fim 22/5 kl. 19:30 9.sýn
Sun 27/4 kl. 19:30 2.sýn Sun 11/5 kl. 19:30 6.sýn Fös 23/5 kl. 19:30 10.sýn
Mið 30/4 kl. 19:30 3.sýn Fim 15/5 kl. 19:30 7.sýn
Sun 4/5 kl. 19:30 4.sýn Fös 16/5 kl. 19:30 8.sýn
Tímalaust meistaraverk - frumsýning 25.apríl.
Svanir skilja ekki (Kassinn)
Fös 2/5 kl. 19:30 21. sýn Mið 7/5 kl. 19:30 23. sýn Lau 10/5 kl. 19:30 25. sýn
Lau 3/5 kl. 19:30 22. sýn Fös 9/5 kl. 19:30 24. sýn
Nýtt verk eftir Auði Övu Ólafsdóttur um undarlegt eðli hjónabandsins.
Litli prinsinn (Kúlan)
Lau 26/4 kl. 14:00 Aukas. Mið 30/4 kl. 17:00 Aukas. Lau 10/5 kl. 14:00 Aukas.
Lau 26/4 kl. 16:00 Aukas. Lau 3/5 kl. 14:00 Aukas. Lau 10/5 kl. 16:00 Aukas.
Sun 27/4 kl. 14:00 9.sýn Lau 3/5 kl. 16:00 Aukas. Sun 11/5 kl. 14:00 13.sýn
Sun 27/4 kl. 16:00 10.sýn Sun 4/5 kl. 14:00 11.sýn Sun 11/5 kl. 16:00 14.sýn
Mið 30/4 kl. 11:00 Aukas. Sun 4/5 kl. 16:00 12.sýn
Falleg sýning um vináttuna og það sem skiptir máli í lífinu.
Áfram Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 26/4 kl. 20:00 64.sýn Fös 2/5 kl. 20:00 66.sýn Lau 3/5 kl. 20:00 68.sýn
Lau 26/4 kl. 22:30 65.sýn Fös 2/5 kl. 22:30 67.sýn Lau 3/5 kl. 22:30 69.sýn
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Skratinn úr sauðarleggnum (Kassinn)
Lau 26/4 kl. 19:30 Sun 27/4 kl. 19:30
SPAMALOT–„alveg konunglega skemmtilegt bull“ Morgunblaðið
46 menning Helgin 25.-27. apríl 2014
VAKANDI!VERTU
blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR
Góð samskipti milli þín og barna
þinna er besta leiðin til að vernda
þau gegn kynferðislegu ofbeldi!