Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.04.2014, Blaðsíða 50

Fréttatíminn - 25.04.2014, Blaðsíða 50
T ónlistarkonan Unnur Sara Eldjárn hefur vakið athygli að undanförnu en hún sendi frá sér sitt fyrsta lag í ársbyrjun. Lagið heitir „Sama hvað“ og lýsir Unnur Sara því sem draumkenndu popplagi en hún semur bæði lag og texta. „Lagið fjallar um hvað allir eru alltaf að drífa sig að komast á næsta stað í stað þess að staldra við og finna hvað þeir vilja í alvöru,“ segir hún. Unnur Sara er aðeins 21 árs og út- skrifast á næsta ári með burtfarar- próf í söng frá tónlistarskóla Félags íslenskra hljómlistarmanna. Ný- verið fékk hún styrk úr minningar- sjóði Vilhjálms Vilhjálmssonar sem styrkir framúrskarandi söngnem- endur til náms. Hún segir viðbrögðin við laginu hafa komið skemmtilega á óvart. „Ég hef fengið mjög góð viðbrögð miðað við að þetta er fyrsta lagið sem ég sendi frá mér. Fólk hefur líka verið ánægt með myndbandið,“ segir hún en myndbandið var unnið af Leikhópnum Svavari og handrit og leikstjórn í höndum Vilhelms Þórs. Helsti áhrifavaldur Unnar Söru í tónlist er Kate Bush og segist hún hlusta mikið á hann, en aðrir áhrifavaldar eru meðal annars Reg- ina Spektor og Esperanza Spald- ing. Það lá ekki alltaf beinast við að Unnur Sara legði tónlistina fyrir sig. Hún var í söngnámi meðfram menntaskóla en eftir útskrift ákvað hún að fara í fullt söngnám. Hún byrjaði fyrir alvöru að syngja um níu ára aldurinn en sex ára heillaðist hún af Stuðmönn- um og var kvikmyndin Með allt á hreinu í miklu uppáhaldi. „Ég hlustaði mikið á lögin úr mynd- inni,“ segir hún en flest eru þau orðin ódauðlegur hluti af íslenskri tónlistarsögu. Unnur Sara hefur haldið þó nokkra tónleika en þeir næstu verða á Þjóðlagahátíð á Siglufirði í sumar þar sem hún syngur á frönsku lög Serge Gainsbourg með hljómsveit. Þá er hún byrjuð að vinna að smá- skífu sem verður gefin út á næsta ári. „Þetta verður spennandi,“ segir þessi unga söngkona sem sannar- lega á framtíðina fyrir sér í tónlist- inni. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is  Menning TónlisTarkonan UnnUr sara eldjárn hefUr vakið aThygli Semur draumkennda popptónlist Tónlistarkonan Unnur Sara Eldjárn sendi frá sitt fyrsta lag á dögunum og hefur vakið nokkra athygli. Tónlist hennar má lýsa sem draumkenndri popptónlist undir áhrifum frá djassi og íslenskri þjóðlaga- tónlist. Sex ára heillaðist hún af Stuð- mönnum og horfði mikið á myndina Með allt á hreinu. Unnur Sara Eldjárn er aðeins 21 árs og sendi frá sér sitt fyrsta lag í ársbyrjun. Hún semur bæði lög og texta, og helsti áhrifavaldur hennar í tónlist er Kate Bush. Ljósmynd/Hari Hugleikur Dagsson er einn aðstandenda Svartra sunnudaga í Bíó Paradís. Lokasýning vetrarins er á sunnudag og þá verður opnuð glæsileg plakatasýning.  Bíó lífleg dagskrá í Bíó Paradís UM helgina Plaköt og pólskar myndir í Paradís Pólskir kvikmyndadagar standa nú yfir í Bíó Paradís við Hverfisgötu og lýkur þeim á laugardag. Á dag- skránni eru þrjár forvitnilegar myndir sem sagðar eru þverskurður af því besta sem pólskt bíó hefur upp á að bjóða. Myndirnar eru á pólsku með enskum texta og frítt er inn á allar sýningar. Opnunarmyndin var Walesa – Maður vonar sem fjallar um Nóbels- verðlaunahafann og fyrrum forseta Póllands Lech Walesa. Hinar tvær myndirnar eru Lífið er yndislegt, sem fjallar um baráttu Mateusz sem hrjáður er af heilalömun, og hin margverðlaunaða mynd Ída. Á sunnudag mun svo költmynda- hópurinn Svartir sunnudagar kveðja veturinn með plakatasýningu. Sýn- ingin verður opnuð klukkan 19.30 en klukkan 20 verður kvikmyndin Brazil, sem þykir eitt af meistara- verkum kvikmyndasögunnar, sýnd. Á sýningunni má sjá plaköt sem listamenn gerðu sérstaklega fyrir sýningar Svartra sunnudaga í vetur. Sýningin er sölusýning og er hvert veggspjald sérprentað fyrir viðskiptavininn. Sýningin mun standa fram eftir vori. Meðal listamanna sem eiga þarna verk eru Sigtryggur Berg Sigmarsson, Helgi Þórsson, Sunna Rún Péturs- dóttir, Ingi Jensson, Sirrý Margrét Lárusdóttir, Harpa Rún Ólafsdóttir, Ómar Hauksson, Sjón, Davíð Örn Halldórsson, Snorri Ásmundsson, Evana Kisa, Bobby Breiðholt, Víðir Mýrmann, Hrefna Hörn, Ragnar Fjalar Lárusson, Ragnar Hansson, Friðrik Svanur Sigurðarson, Hall- dór Baldursson, Þorri Hringsson, Lilja Hlín Pétursdóttir og Eysteinn Þórðarson. Lj ós m yn d/ H ar i Þjóðleikhúsið frumsýnir Eldraunina eftir Arthur Miller í kvöld, föstudags- kvöld, í leikstjórn Sviss- lendingsins Stefan Metz. Sögulegur bakgrunnur Eldraunarinnar eru nornaveiðar og galdra- brennur í þorpinu Salem í Massachussets árið 1692. Miller skrifar verkið með hliðsjón af þeim ofsóknum sem fjöldi einstaklinga mátti þola á sjötta áratug síðustu aldar þegar bandarísk yfirvöld lögðu kapp á að fletta ofan af starfsemi kommúnista í landinu. Hilmir Snær Guðnason leikur bóndann John Proctor í sýningunni en áður hafði verið auglýst að Ingvar E. Sigurðsson myndi leika hlutverkið. Með hlutverk eiginkonu hans fer Margrét Vil- hjálmsdóttir, Elma Stefanía Ágústsdóttir leikur ástfangna unglings- stúlku og fjöldi annara leikara fer með hlutverk í sýningunni. Til að mynda Þórhallur Sigurðsson sem hefur ekki stigið á svið sem leikari í nokkur ár og Sigurður Skúlason. Dísa safnar fyrir plötugerð Tónlistarkonan Dísa Hreiðarsdóttir, sem síðustu ár hefur trommað og spilað á píanó í Brúðarbandinu, Grúsku Babúsku og með Elízu Newman, hyggur á útgáfu sinnar fyrstu sólóskífu undir nafninu Bláskjár. Hún hefur nú hafið söfnun á Karolina Fund til að fjármagna upptökur og framleiðslu á plötunni og stendur söfnunin til 5. júní. Nánari upplýsingar má finna á Karolina- fund.com/project/view/337. Dísa segir að tónlist Bláskjás sé ljóðræn alþýðutónlist þar sem lögð er á að segja sögur með ríkum og einlægum boð- skap. Fyrstu tónleikar Bláskjás með hljómsveit verða í Fríkirkjunni hinn 16. maí. Dísa er að ljúka meistaranámi í tónlist við LHÍ og Bláskjár er út- skriftarverkefni hennar. Eldraunin í Þjóðleikhúsinu 50 dægurmál Helgin 25.-27. apríl 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.