Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.04.2014, Blaðsíða 48

Fréttatíminn - 25.04.2014, Blaðsíða 48
 Í takt við tÍmann Sigurborg Selma karlSdóttir Alltaf á háum hælum Sigurborg Selma Karlsdóttir er 25 ára og býr í Hlíðunum. Hún lærði fatahönnun í Listaháskólanum en starfar sem blaðamaður á Morgunblaðinu og skrifar um hönnun og tísku í Sunnudagsblað þess. Hún gengur alltaf í háum hælum og elskar indverskan mat. Staðalbúnaður Ég er alltaf á hælum en annars er fatastíll- inn minn voðalega kasúal. Ég geng oft í kjólum eða kósíbuxum en reyni yfirleitt að toppa þetta upp með flottum hælum og skemmtilegu skarti. Mér finnst GK mjög flott búð og svo er Zara alltaf fín til að finna trend sem eru í gangi en eru samt ódýr. Hugbúnaður Ég fer ekkert sérstaklega oft út að djamma en þegar það gerist er fínt að fara í drykk á Snaps. Vodka í tónik verður oftast fyrir valinu eða hvítvín. Það er alltaf gaman að taka sveiflu á Kaffibarnum og stundum fer ég á Live Pub í karíóki ef maður vill fá smá útrás í góðra vina hópi. Ég fer mikið á kaffihús um helgar og uppáhalds staðurinn minn núna er Cuckoo’s Nest, brunch-inn þar er æðislegur. Við vinkonurnar stefnum á að hlaupa tíu kílómetra í Reykjavíkurmara- þoninu í ágúst og erum því búnar að vera duglegar á hlaupabrettinu að undanförnu. Ég horfi ekki mikið á sjónvarp en ég er með Netflix. Ég er einnig mikill Seinfeld aðdáandi og er að fylgjast með House of Cards núna sem eru mjög skemmtilegir þættir en ég á frekar erfitt með að detta inn í seríur nema að taka þær allar í einu. Vélbúnaður Ég er með Macbook Pro og iPhone sem gagnast vel í vinnunni, það er þægilegt að vera alltaf tengd. Svo nota ég alltaf gamla góða diktafóninn. Mér finnst Instagram miklu skemmtilegra en Facebook, það er svo mikið af rusli á Facebook. Svo er ég á Twitter og er að átta mig þar, ég nota Twitter mikið til að fylgjast með tísku. Aukabúnaður Ég á fimm ára strák og reyni að vera dugleg að elda fisk fyrir okkur. Við erum samt líka dugleg að „tríta“ okkur á veit- ingahúsum. Við elskum bæði ind- verskan mat – indverskur matur er það besta sem hann fær – og erum hrifin af Bombay Bazaar í Kópavogi og Austurlandahraðlestinni. Ég stefni á að fara eitthvað til útlanda í sumar og vonandi fer ég á tískuvik- una í Kaupmannahöfn í ágúst. Fjöl- skyldan á sumarbústað í Skorradal og ég fer eflaust eitthvað þangað. Þar er alltaf frábært að vera. Viðskiptatækifæri í austri Magnús Bjarnason, forstjóri Icelandic Group Útflutningsverkefnið ÚH Útskrift og verðlaunaafhending Fundarstjóri Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, forstjóri Actavis Að loknum framsöguerindum verður boðið upp á veitingar Tækifæri í austri Ársfundur Íslandsstofu Mánudagur 28. apríl, kl. 11-13 á Grand Hótel Reykjavík Skráning á islandsstofa@islandsstofa.is eða í síma 511 4000 Nánari upplýsingar á Islandsstofa.is Dagskrá Setning fundar Vilborg Einarsdóttir, formaður stjórnar Íslandsstofu Ávarp ráðherra Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra Litið yfir árið Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu China ś International Relations Victor Gao, Director of China National Association of International Studies  appafengur The Human Body Þetta fræðandi app, The Hum- an Body, var valið eitt það besta á árinu 2013 af App Store. Það er ætlað fyrir for- vitin börn sem með appinu geta kynnt sér hvernig nánast hvaða líffæri er virkar. Hver notandi býr til sinn „prófíl“ og þar hægt að stilla hvort viðkomandi skoðar stelpu- eða stráka- líkama. Nánast er hægt að ýta á hvað sem er, kynnast blóð- rásarkerfinu, athuga hvað gerist ef bein eru fjarlægð, grandskoða virkni lungnanna, fylgjast með leið fæðunnar niður meltingar- veginn og það er meira að segja hægt að þrýsta lofbólum niður þarmana þannig að það komi prump. Það síðastnefnda vekur mikla kátínu á mínu heimili. Svona frábært app er auðvitað ekki ókeypis en kostar þó aðeins litla þrjá Bandaríkjadali. Þó það sé fróðlegt og skemmtilegt að nota það í iPhone er það enn skemmtilegra í iPad. Möguleik- arnir eru í raun óendanlegir. Það er bara að fikta sig áfram. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Ég mála mig alltaf eitthvað og ég á rosalega mörg ilmvötn. Ég get hins vegar ekki sagt hvaða ilmvötn ég nota enda á maður alltaf að vera „mysterious“ með ilmvötnin sín... Ég er búin að vera áskrifandi að Vogue síðan ég var tólf ára og það var mér svolítið til ama þegar ég var að flytja um dag- inn. En það kemur samt ekki til greina að losa sig við blöðin. Ég geng alltaf í háhæluðum skóm. Lj ós m yn d/ H ar i 48 dægurmál Helgin 25.-27. apríl 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.