Fréttatíminn - 25.04.2014, Qupperneq 6
6 fréttir Helgin 25.-27. apríl 2014
– fyrir lifandi heimili –
R e y k j a v í k o g A k u r e y r i
E i t t s í m a n ú m E r 5 5 8 1 1 0 0
w w w . h u s g a g n a h o l l i n . i s
LOnDOn hornsófi. Slitsterkt áklæði grátt eða beige.
Stærð: 225 x 225 H: 85 cm. Einnig fáanlegur í svörtu leðri.
309.990
Fullt veRð 359.990
LOnDOn – hornsófi 2h2
KLint – 3ja sæta sófi
Klint 3ja sætasófi. svart leður á slitflötum.
stærð: 193x881 h: 80 cm.
2ja sæta sófi tiLBoÐ 169.990
tilboðsverð 149.990
179.990
Fullt veRð 209.990
DC 3600 3ja sæta sófi. Koníaksbrúnt leður
á slitflötum. stærð: 202 x 82 h: 85 cm.
DC 3600 – 3ja sæta sófi
299.990
Fullt veRð 329.990
m j ú K i r s ó fa r , s t ó r i r s ó fa r ,
h O r n s ó fa r , t u n g u s ó fa r . . .
DC 4200 3ja sæta sófi. svart leður á
slitflötum. stærð: 211 x 82 h: 85 cm.
DC 4200 – 3ja sæta sófi
310.990
Fullt veRð 349.900
Þau 2000 tonn
sem eru um
borð í Alma
er álíka mikið
og allt lang-
reyðarkjöt
sem flutt hefur
verið inn til
Japans frá
árinu 2008.
J apanskir hvalfriðunarsinnar búa sig nú undir að taka á móti flutn-ingaskipinu Alma sem er á leið til
landsins með 2.000 tonn af langreyðar-
kjöti úr frystigeymslum Hvals hf. hér á
landi.
Japanskir fjölmiðlar hafa fjallað um
málið og segja hvorki ljóst hvar skipið
eigi að koma til hafnar né hver stendur
að baki innflutningnum. Í frétt japanska
miðilsins Kyodo kemur fram að fulltrúar
Greenpeace og Alþjóða dýraverndunar-
sjóðsins fylgist með ferðum skipsins.
Talið er að skipið verði komið til Japans
um eða fyrir miðjan maí.
Þau 2000 tonn sem eru um borð í
Alma er álíka mikið og allt langreyðar-
kjöt sem flutt hefur verið inn til Japans
frá árinu 2008, samkvæmt japönskum
hagskýrslum.
Veiðar á langreyði brjóta í bága við
CITES sáttmálann, sem fjallar um al-
þjóðleg viðskipti með tegundir dýra og
jurta í útrýmingarhættu. Íslendingar og
Japanir hafa ekki staðfest sáttmálann
hvað varðar viðskipti með hvalaafurðir
og teljast því ekki brotleg við alþjóðalög
með viðskiptunum. Í fréttum japanskra
fjölmiðla kemur fram að Barack Obama
Bandaríkjaforseti hafi gefið fyrirmæli
um að allt stjórnkerfi Bandaríkjanna
eigi að vinna að því að þrýsta á Ís-
lendinga um að hætta hvalveiðum og
að hvalveiðar eigi að lita öll samskipti
bandarískra embættismanna við Ís-
lendinga.
Síðast fréttist af ferðum skipsins í
síðustu viku þegar það varð að hætta
við áform um að koma inn til hafnar í
Durban í Suður-Afríku en talið er að þar
hafi það ætlað að taka eldsneyti og vist-
ir. Greenpeace í Suður-Afríku brást við
með því að efna til undirskriftarsöfnun-
ar þar sem skorað var á hafnaryfirvöld
í Durban að neita Alma um þjónustu í
höfninni. Þetta varð til þess að Alma
hætti við að leggja að í Durban. Green-
peace hefur einnig hvatt ríkisstjórnir
annarra ríkja á svæðinu til þess að koma
í veg fyrir að Alma geti sótt olíu og vistir
í öðrum hafnarborgum á leiðinni.
Pétur Gunnarsson
petur@fretatiminn.is
Hvalveiðar Japanir búa sig undir íslenska HvalkJötssendingu
Óvíst hver er að flytja kjötið
inn og hvert skipið kemur
2.112 tonn af langreyðarkjöti hafa verið flutt inn í Japan frá árinu 2008. Um 2.000 tonn eru nú um borð í skipinu Alma á leið til
landsins.
10,9% þátttakenda í nýrri skoðanakönnun
MMR telja að Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson forsætisráðherra sé heiðarlegur.
14,7% telja að Bjarni Benediktsson, fjár-
málaráðherra sé heiðarlegur.
15,7% telja Árna Pál Árnason, formann
Samfylkingarinnar, heiðarlegan, og 26,4%
Birgittu Jónsdóttur, kaftein Pírata á þingi.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
er heiðarlegur að mati 18,9% þátttakenda í
könnuninni en 27,6% telja Guðmund Stein-
grímsson, formann Bjartrar framtíðar
heiðarlegan.
Tveir stjórnmálamenn skáru sig úr;
Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, og Jón
Gnarr. 45,2% telja Jón Gnarr heiðarlegan
en 48% Katrínu.
MMR spurði einnig um fleiri persónu-
eiginleika og hvort þátttakendur tengdu
þá við eiginleika við nokkra stjórnmála-
leiðtoga. Í frétt frá MMR segir að almennt
hafi flestir talið Jón Gnarr, Katrínu
Jakobsdóttur og Ólaf Ragnar Grímsson
gædd þeim eiginleikum sem spurt var um
en fæstir Sigmund Davíð Gunnlaugsson
og Árna Pál Árnason.
Meðal þess sem spurt var um var hvort
viðkomandi leiðtogi væri í tengslum við
almenning. Jón Gnarr kom þar best út en
42,6% töldu hann í tengslum við almenn-
ing. Hið sama sögðu 32,3% um Katrínu
Jakobsdóttur, 27,,4% um Ólaf Ragnar,
23,1% um Guðmund Steingrímsson, 22,5%
um Birgittu Jónsdóttur, 13,9% um Árna
Pál Árnason. 7,8 telja að Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra
sé í tengslum við almenning og 7,5%
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra.
980 manns svöruðu könn-
uninni og tóku 85,3% afstöðu.
Spurt var: Ef þú hugsar um
eftirtalda einstaklinga. Hvaða
kostum, af eftirfarandi, finnst
þér hver þeirra búa yfir? -pg
Japanskir fjölmiðlar búa sig undir að taka á móti skipinu Alma, sem er á leið til Japans með 2.000
tonn af langreyðarkjöti úr geymslum Hvals hf. Greenpeace og Alþjóða dýraverndunarsjóðurinn
fylgjast með ferðum skipsins og reyna að hindra að það komist í höfn að sækja olíu og vistir.
skoðanakönnun persónueiginleikar stJórnmálaleiðtoga
10,9% töldu forsætisráðherra heiðarlegan