Fréttatíminn - 25.04.2014, Qupperneq 27
J afnrétti kynjanna er rauði þráðurinn í starfinu en við getum ekki aðskilið jafn-
rétti annarra hópa. Það er enginn
bara kynið sitt heldur skiptir líka
máli hvaða stöðu þú hefur að öðru
leyti, til dæmis hvort þú ert fötluð
eða ófötluð, samkynhneigð eða
gagnkynhneigð. Mér hefur fundist
skemmtilegast og áhrifaríkast að
skoða þetta allt í samhengi,“ segir
Auður Magndís Auðardóttir, verk-
efnisstjóri Jafnréttisskóla Reykja-
víkur.
Borgarstjórn Reykjavíkur sam-
þykkti síðasta vor að setja á stofn
Jafnréttisskóla að fyrirmynd Nátt-
úruskóla Reykjavíkur sem hefur
starfað undanfarin ár, en hann
sinnir fræðslu á sviði sjálfbærni og
umhverfismenntunar. Auður var
ráðin sem sérfræðingur í október
síðastliðinum og skólinn form-
lega settur á laggirnar en mark-
miðið með Jafnréttisskólanum er
að skapa vettvang fyrir heilsteypt
jafnréttisstarf í skólum í samræmi
við lög, nýjar aðalnámskrár og
mannréttindastefnu borgarinnar.
Auður bendir á að þó ýmis átaks-
verkefni í jafnréttismálum hafi ver-
ið í gangi í gegnum tíðina hafi gef-
ist vel þá hafi þau verið tímabundin
og jafnvel staðbundin og því hafi
skort samfellu í jafnréttisfræðslu
barna og ungmenna. Tilgangur
skólans er að styðja við jafnréttis-
fræðslu í leikskólum, grunnskól-
um og frístundastarfi. „Ég hef til
dæmis mikið mætt á starfsdaga og
ýmist haldið erindi eða fengið fólk
til að skoða sinn starfsvettvang út
frá því hvernig er betur hægt að
huga að jafnréttisstarfi. Í síðustu
viku var ég með sex fundi þar sem
mættu samtals yfir 120 manns, að-
allega stjórnendur hjá leikskólum,
grunnskólum og frístundastarfi
borgarinnar. Staðalmyndin af jafn-
réttisumræðunni er að hún sé erfið
og að margir séu á móti henni en
það er alls ekki mín reynsla. Það
hefur eiginlega komið mér á óvart
hvað fólk er móttækilegt, og yfir-
leitt fer fólk út með meiri orku en
þegar það kom inn,“ segir hún.
Þótt ýmsir telji jafnréttismál
í góðu lagi á Íslandi eru ýmsar
vísbendingar um að menntasam-
félagið megi ekki sofna á verðin-
um. Auður bendir á að niðurstöður
rannsókna Andreu Hjálmsdóttur
við Háskólann á Akureyri sýni að
viðhorf íslenskra ungmenna til
jafnréttis, til að mynda til hefð-
bundinna kynjahlutverka, eru að
mörgu leyti íhaldssamari nú en
fyrir 20 árum. „Jafnrétti kemur
ekki af sjálfu sér og því getur sann-
arlega farið aftur,“ segir hún.
Auður segir mikilvægt fyrir
lýðræði í samfélaginu að jafnrétti
sé sem mest og staðalmyndum
kynjanna eytt. „Staðalmyndir snú-
ast um að setja fólk í ákveðin box.
Við þurfum að búa til samfélag þar
sem frelsi einstaklingsins er í há-
vegum haft þar sem staðalmyndir
eru fólki ekki til trafala. Það er
ekki fullkomið frelsi ef við getum
ekki valið okkur starfsvettvang,
til að mynda, óháð utanaðkomandi
þrýstingi um að velja starf sem
„hæfir okkar kyni“. Jafnréttis-
fræðsla vinnur líka á einelti. Það
eru fjölmörg dæmi um að krakkar
sem fara út fyrir kynjaboxið séu
lagðir í einelti. Þá er hópurinn að
ýta þeim sem brjótast úr út staðal-
myndunum aftur inn í kassann.
Markmiðið er að allir geti verið
þeir sjálfir og notið sín, óháð kyni,
kynhneigð og stöðu.“
Jafnréttisskólinn er í raun þekk-
ingar- og upplýsingamiðstöð
þar sem veitt verður aðstoð og
ráðgjöf við skipulagningu jafn-
réttismenntunar í samræmi við
þarfir skólanna. Auður er til húsa
á skrifstofum Reykjavíkurborgar
í Borgartúni þar sem hún nýtur
aðstoðar fjölda fagfólks í skóla-
málum. „Hér eru til að mynda
sérfræðingar í fjölmenningu og
í málefnum fatlaðra barna. Við
vinnum þetta saman og bæði hér
og úti á vettvanginum er til staðar
gríðarleg þekking sem ég nýti í
mínu starfi,“ segir hún.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Jafnrétti kemur
ekki af sjálfu sér
Stofnun Jafnréttisskóla Reykjavíkur á síðasta ári var mikilvægur
liður í að mynda samfellu í jafnréttisfræðslu á leikskólum, grunn-
skólum og frístundastarfi. Verkefnastjóri segir mikilvægt að sofna
ekki á verðinum enda sé jafnrétti forsenda lýðræðis í samfélaginu
þar sem hver einstaklingur nýtur sín á eigin forsendum í stað þess
að vera heftur af staðalmyndum kynjanna.
Auður Magndís
Auðardóttir,
verkefnisstjóri
Jafnréttisskóla
Reykjavíkur,
segir að jafn-
réttisfræðsla
geti spornað
gegn einelti enda
séu dæmi um að
börn sem ögra
staðalmyndum
kynjanna séu
jaðarsett af
hópnum. Ljós-
mynd/Hari
Helgin 25.-27. apríl 2014 viðhorf 27