Fréttatíminn - 25.04.2014, Side 28
28 matur & vín Helgin 25.-27. apríl 2014
vín vikunnar
Höskuldur Daði Magnússon
Teitur Jónasson
ritstjorn@frettatiminn.is
Uppskrift vikunnar
Vín er gjarnan mikilvægur hluti
máltíðarinnar hjá vín- og matar-
þjóðum eins og Frökkum, Spán-
verjum og Ítölum. Það er
engin ástæða fyrir okkur
Frónbúana að vera
eftirbátar þeirra
og skapa okkar
eigin góðu vín- og
matarmenningu.
Gott vín á að passa
með góðum mat
og góður matur á að
passa með góðu víni.
Hver máltíð er samspil
bragða og innihalds
og því er nauðsynlegt
að að hafa nokkrar
grunnreglur á hreinu til
að styðjast við þegar vín og matur
eiga að fara vel saman. Svo er bara
að prófa.
Vínið gerir matinn betri
Ostar
Rauð, hvít og önnur léttvín geta gengið
með ostum – allt miðast þetta við ost-
tegundina. Mjúkir ostar passa oft betur
með sætara hvítvíni, sérstaklega blá-
mygluostar en léttara sýruríkt rauðvín
steinliggur með föstu ostunum eins og
primadonnu. Geitaostur passar best
með hvítvíni, helst Sancerre. Portvín í
sætari kantinum er líka góður kostur
með þeim blámygluðu.
Kjötbollur
Rautt skal það vera og kraftur vínsins
þarf að vera í þráðbeinu samhengi
við hversu kryddaður maturinn er. Sé
kryddið milt eru það léttari rauðvín,
til dæmis Merlot en sé kryddið sterkt
er betra að horfa til kryddaðri vína
svo sem Shiraz. Ef kjötbollurnar eða
hakkrétturinn er hins vegar ekta
ítalskur þá klikkar ítalskur Chianti
Classico ekki.
Lamb
Lambið getur verið feitt og þá þarf
sýrurík vín sem skera í gegnum
fituna. Sé rétturinn í kryddaðri
kantinum eru Spánverjar frá Rioja
eða Ribera del Duero ágætis kostur
en Bordeaux vín eru ekta góð með
klassíska lambinu; ofnsteikta
hryggnum eða læri að hætti ömmu.
Asískur og sushi
Hér er kannski best að halda sig við
bjór en eigi það að vera léttvín er
gott að hafa þau sýrurík og krydduð
eins og matinn. Riesling eða Gew-
ürztraminer ef það skal vera hvítvín
eða kryddaðan Shiraz ef það á að
vera rautt. Varðandi sushi þá getur
reynst erfitt að finna gott vín sem
passar vegna ediks í hrísgrjónunum
en þurr Riesling ætti að ráða við slíkt
verkefni.
Nautasteikin
Hér dugar ekkert hvítvín heldur er
gott að velja tannínrík rauðvín því
prótín og tannín spila saman þannig
að vínið virkar ekki eins tannínríkt
með kjötinu auk þess sem aðrir góðir
eiginleikar vínsins fá að njóta sín.
Góður Cabernet Sauvignon til dæmis
frá Kaliforníu eða Ástralíu er góður
kostur hér, já eða góð Cabernet-Mer-
lot blanda frá Bordeaux.
Kjúklingur og kalkúnn
Bæði hvítt og rautt gengur með kjúlla,
það verður bara að passa að vínið sé
ekki of kröftugt. Sé kjúklingarétturinn
hins vegar mjög kryddaður eða sterkur
hentar rauðvín betur. Gott rauðvín væri
til dæmis eitthvað í mildari kantinum
frá Norður-Ítalíu eins og Valpolicella.
Grillaður kjúlli og franskur Beaujolais
eru líka bestu vinir.
Eftirréttirnir
Hér ráða sætvínin ríkjum, dökk sætvín
með súkkulaðieftirréttum og ljós
með ávaxttengdum eftirréttum. Ekki
gleyma því samt að gott dökkt súkkul-
aði passar fullkomlega við kaliforn-
ískan Cabernet Sauvignon.
Skeldýr
Hér gildir hvítvínið og sérstaklega
ungur og ferskur Sauvignon Blanc til
dæmis frá Nýja Sjálandi. Pinot Grigio
og Riesling þrúgurnar eru líka á
heimavelli hér með hráefni á borð við
fisk og skeldýr. Ef þú ert svo heppinn
að fá ostrur þá klikkar Chablis ekki.
Lax
Chardonnay hvítvín eiga vel við hér.
Sérstaklega þau sem hafa fengið að
kynnast eikartunnum og hafa smjör-
kenndan og feitan blæ. Áströlsk og
kalifornísk Chardonnay eiga vel við.
En það sem þó passar eiginlega best
með laxi eru léttari rauðvín eins og
til dæmis Pinot Noir sem steinliggur
með.
Auglýsing um sveinspróf
Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin sem hér
segir:
Í snyrtifræði í maí-júní. Umsóknarfrestur er til 1. maí.
Í málmiðngreinum í maí - júní. Umsóknarfrestur til 1. maí.
Í vélvirkjun í september. Umsóknarfrestur til 1. júní.
Í ljósmyndun í september – október. Umsóknarfrestur til 1. júlí.
Dagsetningar prófanna verða birtar á heimasíðu okkar um
leið og þær liggja fyrir.
Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi,
lífeyrissjóðsyrlit og burtfararskírteini með einkunnum eða
staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í maí 2014.
Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir
iðngreinum.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu okkar, veang:
www.idan.is og á skrifstofunni.
IÐAN - fræðslusetur,
Skúlatúni 2, 105 Reykjavík,
sími: 590 6400, bréfsími: 590 6401,
netfang: idan@idan.is
2 0 1 4
00000
w w w . v e i d i k o r t i d . i s
Eitt kort
36 vötn
6.900 kr
FLEIRI VÖTN ÓB EYTT VERÐ
2 0 1 4
J.Lohr Riverstone
Chardonnay
Gerð: Hvítvín
Þrúga: Chardonnay
Uppruni: Kalifornía
Verð: 3.258 kr. (750 ml)
Næstum því sumardrykkur
Loksins er farið að hlýna og þá er tími til að skella
sér í vorverkin og verðlauna sig svo með kældu
hvítvíni á eftir. Það er samt ekki alveg nógu hlýtt til
að fara beint í frískandi sumardrykk heldur er upp-
lagt að fá sér eikuð hvítvín frá Kaliforníu þar til
hitinn kemst yfir tveggja stafa töluna. Þegar vín-
gerð í Kaliforníu var að byggjast upp á seinni
hluta síðusta aldar sóttu þeir hugmyndir sínar
í það sem best er gert í Frakkalandi og því eru
mörg vín þaðan með afar frönskum einkenn-
um og eru stundum jafnvel enn franskari en
sjálf frönsku vínin. Úrvalið af þessum vínum
mætti reyndar vera betra hér á landi en þetta
Chardonnay frá hinum stórgóða framleiðanda
J. Lohr er dæmi um vel heppnað svona hvít-
vín með frískum ávaxtakeim en samt mikilli
fyllingu sem einkennist af vanillu og eik.
Frábært með feitum fiski og hollandaise sósu.