Fréttatíminn - 25.04.2014, Page 34
34 grænn lífsstíll Helgin 25.-27. apríl 2014
– G Ó Ð U R Á B R A U Ð –
Í S L E N S K U R
GÓÐOSTUR
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
M
S
A
6
55
52
0
9/
13
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Hako sópar og sópvélar
– á vortilboði
Hako Profi-Flipper
Handhægur og góður sópur
Afköst: 2.300 m2 á klst.
Hako Hamster 500E
Rafdrifin og afkastamikil sópvél
Afköst: 2.400 m2 á klst.
Hako Jonas 800E
Rafdrifn og öflug sópvél
Afköst: 6.600 m2 á klst.
Hafið samband við sölumenn eða þjónustuver RV sem veita nánari upplýsingar.
Þekkjum
umhverfismerkin
N eytendur hafa gríðarleg áhrif á umhverfið með vali sínu á vörum og þjónustu.
Þegar keyptar eru vörur með áreið-
anlegum umhverfismerkjum geta
neytendur treyst því að valið sé það
besta fyrir umhverfið og heilsuna.
Umhverfismerkin tákna þó ekki
alltaf að varan sé lífræn.
Umhverfismerkin Svanurinn,
Evrópublómið, Blái engillinn og
Green Seal eiga það sameiginlegt
að vera valfrjáls leið til að markaðs-
setja umhverfiságæti vöru eða þjón-
ustu og er úttekt sinnt af óháðum
þriðja aðila. Viðmiðin eru þróuð af
sérfræðingum og notast er við lífs-
ferilsnálgun þar sem gerðar eru
kröfur til hráefnis, framleiðslu,
notkunar og förgunar. Á nokkurra
ára fresti eru viðmiðin hert sem
tryggir reglulegar endurbætur á
vöru eða þjónustu
Upplýsingar af vef Umhverfisstofnunar.
Svanurinn
Svansmerkið er opinbert um-
hverfismerki Norðurlandanna
sem stofnað var árið 1989.
Merkið þýðir ekki að varan sé
lífræn en í sumum vörurflokk-
um, til dæmis vefnaðarvöru
er gerð krafa um að varan sé
100 prósent lífræn til að fá
Svansmerkið.
Evrópublómið
Blómið var stofnað af fram-
kvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins árið 1992 og er notað
í allri Evrópu. Til að uppfylla
kröfur Blómsins eru umhverf-
isáhrif vörunnar metin, til að
mynda orkunotkun við fram-
leiðslu eða umhverfisálag við
notkun og íblöndun kemískra
efna.
Blái engillinn
Der Blaue Engel eða Blái
engillinn er þýskt umhverfis-
merki og eru það þýsk yfirvöld
sem ákveða innan hvaða vöru-
flokka hægt er að fá vottun.
Viðmið merkisins eru þróuð í
samvinnu við yfirvöld, fulltrúa
frá iðnaði, neytendasamtökum
og ýmsa hagsmunaaðila og
sérfræðinga.
Green Seal
Green Seal er elsta merki
sinnar tegundar í Bandaríkjun-
um og eru margar bandarískar
vörur í verslunum hér á landi
merktar með Green Seal.
Merkið er á vegum óháðra
samtaka sem starfa í sam-
vinnu við rannsóknarstofur og
ráðgjafa víða um heim.
Með aukinni vitund um umhverfisvernd
eru mörg fyrirtæki sem kjósa að fylgja
gæða- og umhverfisstöðlum. Slíkt ferli
hefur yfirleitt í för með sér að koma
flokkun og ráðstöfun á úrgangsefnum
í árangursríkan farveg. Efnamóttakan
býður upp á sérsniðnar lausnir fyrir fyrir-
tæki og stofnanir til að losa sig við lítil
og stór raftæki, ljósaperur, prenthylki,
trúnaðargögn og annað sem til fellur í
skrifstofurekstri. „Okkar þjónusta snýst
um bjóða upp á hentuga nálgun fyrir
hvert og eitt fyrirtæki. Við sækjum hluti
sem falla til á skrifstofum. Okkar sérsvið
eru spilliefni og þar undir falla prenthylki,
rafhlöður og raftæki. Við sækjum einnig
stærri raftæki eins og ljósritunarvélar,
ísskápa, prentara og tölvuskjái,“ segir Jón
Hólmgeir Steingrímsson, framkvæmda-
stjóri Efnamóttökunnar, en fyrir-
tækið býður einnig upp á læst ílát fyrir
trúnaðarskjöl sem síðan eru fjarlægð
og tætt. Fyllsta öryggis er gætt við þá
meðhöndlun og geta viðskiptavinir fylgst
með kjósi þeir það.
Sé farið vel með prenthylki er hægt að
endurnýta þau og segir Jón Hólmgeir
að Efnamóttökunni berist mikið af
fyrirspurnum frá fyrirtækjum um það
hvernig best sé að losa sig við þau. „Við
höfum búið til farveg þannig að koma
megi prenthylkjum í endurnýtingu. Þá
er mikilvægt að farið sé vel með þau og
þau gömlu helst sett í umbúðir nýju hylkj-
anna. Þá er hægt að fylla aftur á þau og
nota á ný,“ segir hann. Bæði hér á Íslandi
og erlendis er fyllt á notuð prenthylki.
Hluti prenthylkjanna er endurnýttur hér
á landi en öðrum er safnað saman og þau
send úr landi til endurnýtingar.
Jón Hólmgeir segir það algengan mis-
skilning að í prenthylkjum séu ekki spilli-
efni því þau tæmist við notkun. Raunin
sé þó sú að í um 95 prósent prenthylkja
séu spilliefni þó þau séu tóm. „Í rauninni
tæmast prenthylki yfirleitt ekki því það er
úrgangshólf í þeim flestum sem tekur við
duftinu sem nýtist ekki meðan á prentun
stendur. Það er því hluti af duftinu sem
rennur í gegnum búnað í hylkinu. Það
fer svo aftur inn í prenthylkið og inn í
úrgangshólfið. Því er mikilvægt að koma
notuðum prenthylkjum í réttan farveg,
bæði til að hindra að spilliefni berist út í
náttúruna og til að endurnýta þau.“
KYNNING
Umhverfisvernd í skrifstofurekstri
Jón Hólmgeir Steingrímsson er framkvæmdastjóri Efnamóttökunnar. Þar er boðið upp á sérsniðnar lausnir fyrir fyrirtæki
og stofnanir til að losa sig við lítil og stór raftæki, ljósaperur, prenthylki, trúnaðargögn og annað sem til fellur í skrifstofu-
rekstri.
edalgardar.is
• Hellulagnir
• Trjáklippingar
• Jarðvegsskipti • Smágröfuþjónusta
• Vörubíll með
krabba
Einar • 698 7258
Hamarshöfði 4 - sími 587-1960 - www.mosaik.is
Mikið úrval - Vönduð vinna
legsteinar og fylgihlutir
10-50% afsláttur
Steinsmiðjan Mosaik
TILBOÐSDAGAR