Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.04.2014, Síða 36

Fréttatíminn - 25.04.2014, Síða 36
36 heilsa Helgin 25.-27. apríl 2014 Nám í náttúrulækningum þekking heilsa gleði www.heilsumeistaraskolinn.com Umsóknarfrestur er til 20. júní 2014 Vantar í þig orku? Náttúrulyf ársins í Svíþjóð 5 ár í röð www.lyfogheilsa.is 20% afsláttur Frá 14. - 30. apríl É g las um Femarelle og leist vel á að prófa hormónalausa meðferð. Ég hef tekið Femarelle inn í nokkra mánuði og er búin að endurheimta mitt fyrra líf,“ segir Eva Ólöf Hjaltadóttir, 71 árs. „Mér hafði ekki liðið nógu vel í svolítinn tíma og var farið að finnast óþægilegt að vera mikið innan um fólk og orðin svolítið þunglynd af vanlíðan. Mér fannst ekki gott að vera í hávaða og hafði því einangrast félagslega,“ segir hún. Eva Ólöf er með sykursýki og skjaldkirt- ilssjúkdóm og svitnaði því mikið þó hún hafi ekki reynt á sig. „Ég þurfti að skipta um bol þrisvar sinnum á dag og var líka alltaf sveitt á höfðinu,“ segir Eva sem í dag líður miklu betur og fer daglega í sund og með hundinn í göngutúr og sækir félagsvist og bingó vikulega. „Eftir að ég hafði tekið Ferm- arelle inn í sex mánuði hætti ég að svitna og er núna í sama boln- um allan daginn og er hætt að finna fyrir verkjum. Það besta er að börnin mín og tengdabörn hafa orð á því hvað ég sé orðin lífleg og hress. Ég finn til meiri gleði þegar ég hitti barnabörnin mín því ég get veitt þeim meiri athygli en áður. Að auki hef ég misst 11 kíló án þess að reyna það sérstaklega. Ástæðan er sú að mér líður betur og ég get hreyft mig óhindrað. Ég er svo ánægð með Femarelle hylk- in að ég mæli með þeim við allar vinkon- ur mínar.“ KYNNING Nýtt líf með Femarelle Eva Ólöf Hjaltadótt- ir hefur í nokkra mánuði tekið inn náttúrulega lyfið Femarelle fyrir konur á breytinga- skeiði. Árangurinn er mjög góður og svitakóf og verkir heyra sögunni til. Eva fer nú daglega í gönguferðir og nýtur lífsins betur á allan hátt. Eva Ólöf hafði fundið til vanlíðunar vegna áhrifa breytingaskeiðsins en líður mun betur í dag eftir að hafa tekin Femarelle inn í nokkra mánuði. Fermarelle er náttúruleg vara, unnin úr soya og vinnur á einkennum tíðahvarfa hjá konum. Hitakóf, nætursviti, skapsveiflur og verkir í liðum og vöðvum eru algeng einkenni tíðahvarfa. Hámark12 fernurá mann meðan birgðir endast! – fyrst og fre mst – fyrst og fre mst ódýr! 99kr.stk. Verð áður 1 92 kr. stk. 100% Happ y day appel sínu-, epla- og 2 teg. múltív ítamínsafi, 1 lítri 48%afsláttur Sumardagurinn fyrsti var í gær og á næstunni mun þeim fjölga til muna sem þeysa um götur í skærlitum hlaupafötum. Langar þig að slást í hópinn? 5leiðir til að byrja að hlaupa 1Byrjaðu á að labba Ef það er langt síðan þú hreyfðir þig síðast og formið er slæmt er best að byrja frá grunni. Með því að byrja að labba og vinna þig þannig upp geturðu komist hjá meiðslum og því að missa móðinn. 2Kauptu þér góða skó Það er auðvitað ekkert vit í því að byrja að fjárfesta í græjunum og ætla svo að kynnast sportinu. En ef þú ætlar að endast eitthvað í hlaupum er vissara að láta ekki lélega skó eyðileggja ánægjuna af þeim. Þú getur litið á þetta sem sumar- gjöf frá þér til þín. 3Taktu tímann Til að halda sér við efnið og sjá árangur erfiðisins er gott að taka tímann og skrásetja hlaup sín. Í dag eru ótal öpp í boði sem halda utan um þinn nýja lífsstíl og minna þig á þegar komið er að næstu æfingu. Prófaðu til dæmis Runkeeper eða Endomondo. 4Gefðu þér tíma í undirbúning Hlaupin eru skemmtilegri ef þú hleypur ekki alltaf sama hringinn. Taktu þér því tíma í að leita að góðum hlaupaleiðum áður en lagt er af stað. Á nýjum leiðum gætirðu uppgötvað eitthvað nýtt í bænum þínum eða borginni 5Hlýddu líkama þínum Mikilvægast af öllu er þó að fara ekki of geyst af stað. Ef þú hefur eytt þínum tíma í sófanum fram að þessu mun það ekki reynast átakalaust að breyta um lífsstíl. Líkaminn lætur okkur vita þegar huga þarf að einhverju; hvort teygja þurfi á vöðvum, hvíla þá eða hvort líkaminn þurfi meiri næringu eða svefn – það sem þú þarft að gera er að hlusta á hann.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.